Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 105
Fundur 105
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 25. júní 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Sædís Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Fundargerð 104. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
- Starfsmannamál við Grunnskóla Hornafjarðar
Guðmundur fór yfir stöðu mála, ráðningu nýrra kennara o.fl. Allt stefnir í að réttindakennurum fækki frá fyrra ári. Mikið hefur verið auglýst eftir kennurum sem ekki hefur skilað sér með umsóknum réttindakennara. Því er gripið til þess ráðs að ráða starfsmenn án fullra kennsluréttinda. Fram kom að enn vantar kennara í textílmennt. Urðu verulegar umræður um stöðu starfsmannamála, stærð bekkjardeilda, skipulag o.fl.
- Niðurstöður samræmdra prófa
Farið yfir útsend gögn. Fram kemur að útkoma 10. bekkinga á samræmdum prófum 2008 er mun betri en verið hefur undanfarin ár er við landsmeðaltal.
- Valgreinar í 10. bekk og samstarf við Framhaldsskóla A.-Skaft.
Guðmundur greindi frá vali nemenda í 10. bekk og samstarfi Grunnskóla Hornafjarðar og Framhaldsskóla A.-Skaft. Þannig munu allar bóklegar greinar í vali 10. bekkjar á næsta skólaári verða á vegum FAS. Einnig fjallað um yfirlit yfir þær námsgreinar sem nemendur í 10. bekk tóku á liðnu skólaári við FAS en samtals 33 af 35 nemendum tóku framhaldsskólaáfanga við skólann.
- Skóladagatal Tónskóla A.-Skaft.
Fram kom í útskýringum sem skólastjóri sendi að skóladagatalið sé gert á sömu forsendum og undanfarin ár þar sem skóladagatal grunnskólans er haft til viðmiðunar. Skólanefnd samþykkir fram lagt dagatal Tónskólans.
- Önnur mál
Guðmundur greindi frá því að á næsta skólaári verði Þorvaldur J. Viktorsson talsmaður Grunnskóla Hornafjarðar. Þakkaði Guðmundur fyrir sig og nefndin þakkaði Guðmundi sömuleiðis.
Fundi slitið kl. 17:30


