Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar103
103. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Torfi Friðfinnsson, Sigríður Kristinsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 102. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði 2008 – 2009
Farið yfir útsend gögn frá skólanum. Skólanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði 2008 – 2009.
3. Breytingar á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk 1995 – 2007, rannsókn ESPAD
Rannsóknin er hluti af evrópskri rannsókn á áfengis-, vímuefna- og tóbaksnotkun ungmenna. Fram kemur í niðurstöðum að verulega hefur dregið úr slíkri neyslu frá 1995 – 2007 á Íslandi og eru hornfirsk ungmenni á svipuðum slóðum með verulega minnkun á neyslu framangreindra efna. Lýstu fundarmenn ánægju með þessa þróun.
4. Verkefnið „Þjóðleikur”, leiklistarhátíð ungs fólks á aldrinum 13 – 20 ára
Guðrún Jónsdóttir gerði grein fyrir kynningu á þessu verkefni sem felst í því að Þjóðleikhúsið mun fá reynd/þekkt leikskáld til samstarfs. Skáldin munu skrifa leikrit sem miðuð eru við þennan aldurshóp. Einnig verða námskeið á vegum Þjóðleikhússins fyrir stjórnendur leikhópanna. Guðrún sagði þetta vera einstaklega ánægjulegt verkefni og hvatti til þess að okkar skólar taki þátt í því. Sigríður taldi það geta verið spennandi að grunnskólinn og framhaldsskólinn færu sameiginlega í þetta verkefni.
5. Skólamálastefna Sambands íslenskra sveitarfélaga
Stefnan greinist í fjóra meginþætti – hlutverk, leiðarljós, almenn stefnumið, eftirlit og gagnaöflun. Sigríður sagði að það veki m.a. athygli að rætt sé um að sveitarfélög geti tekið að sér rekstur framhaldsskóla. Einnig ræddi hún um áherslur á faglega þætti skólastarfsins og hlutverk skólanefndarinnar í þeim efnum. Spurði m.a. þeirrar spurningar hvað við viljum fá út úr okkar skóla. Guðmundur ræddi um þátt kjarasamninga í skólaþróun og benti á ákvæði í nýjum kjarasamningi sem styðja þann þátt. Þá lýsti hann yfir ánægju með það sem Samband ísl. sveitarfélaga er að gera í skólamálu.
6. Önnur mál
- Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2009 (uppl. frá menntamálaráðuneyti): Íslenska - 7. maí, enska - 8. maí, stærðfræði -11. maí.
- Undir þessum lið spannst umræða um samræmd próf almennt. Guðmundur lýsti yfir óánægju með þessi samræmdu próf að vori og um leið að tilgreint skuli í hvaða greinum skuli prófað sem er þó í samræmi við frumvarp til laga. Sigríður telur það alvarlegt að skoðun skólamanna á samræmdum prófum skuli smitast til nemenda. Minnti hún á að samræmd próf séu bundin með lögum. Sagðist hún einkum eiga við próf í 10. bekk. Þá spurði hún hvort allir nemendur væru að taka öll próf eða hvort látið verði nægja að taka þrjú próf sem nauðsynlegt er að taka. Guðmundur sagði að langflestir væru að taka a.m.k. fjögur próf. Þá greindi hann frá vali nemenda á hvaða próf þeir ætli að taka, svo sem mismun á því hvort nemendur ætli raungreinaleið, málanám eða félagsfræðinám og greindi um leið frá þeirri vinnu sem fram fer í skólanum þegar kemur að vali nemenda sem hefst strax í 9. bekk.
- Sigríður lýsti yfir ánægju með kennaraauglýsingu frá skólunum sem birtist í blaðinu 24 stundum.
- Afhentar upplýsingar frá Hagstofu Íslands, börn í leikskólum í desember 2007 og starfslið í leikskólum í desember 2007.
Fundi slitið kl. 17:35


