Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 101
101. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 27. febrúar 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Gunnar Sigurjónsson varaformaður, Gísli Vilhjálmsson, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 100. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Heimsókn skólanefndar í leik-, grunn- og tónskóla
Dagana 31. janúar og 5. febrúar sl. heimsótti skólanefnd ásamt starfsmanni nefndarinnar alla skóla sveitarfélagsins. Nefndarmenn skoðuðu húsnæði og ræddu við starfsmenn um skólastarfið og ýmsa þætti sem snúa að skólastarfinu. Torfi sagðist ánægður með þessar heimsóknir í skólana og taldi þær gagnlegar. Var undir það tekið af öðrum nefndar-mönnum. Starfsmenn skólanna voru á sama máli og skólanefndarmenn og lögðu áherslu á mikilvægi þessara heimsókna. Fram kom það sjónarmið að þær mættu jafnvel vera einu sinni á ári.
3. Bréf leikskólastjóra
Í bréfinu er farið fram á að einum starfsdegi, þ.e. þar sem börnin mæta ekki í skólann, verði bætt við þá fjóra sem fyrir eru, þrír á haustönn og einn á vorönn, og kæmi viðbótardagurinn á vorönn. Meginrökin fyrir þessari ósk eru þau að ekki gefist nægur tími til að undirbúa leikskólastarfið. Starfsdagarnir eru, auk undirbúnings fyrir skólastarfið, nýttir til sí- og endurmenntunar, heimsóknir í aðra leikskóla, foreldraviðtöl, endurmat á skólastarfi og tiltekt í skólunum. Margrét sagði slíka starfsdaga vera 2 – 5, misjafnt eftir skólum. Spurt var hvernig foreldrar tækju þessum dögum. Ekki kom fram ákv. svar við því en bent á að reynt er að láta þá falla að sambærilegum dögum í grunnskólunum.
Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti þessa viðbót um einn starfsdag en leggur jafnframt áherslu á að starfsdagar leik- og grunnskóla sveitarfélagsins falli saman eins og kostur er.
4. Greinargerð starfshóps um félagslíf grunnskólanema á Hornafirði
(Sædís mætti á fundinn undir þessum lið.)
Síðastliðið haust var skipaður starfshópur til að gera úttekt og koma með tillögur að fyrirkomulagi félagslífs grunnskólanema á Hornafirði. Í samantekt starfshópsins kemur eftirfarandi m.a fram:
- Félagsmiðstöðvar eru einn liður í því að gefa ungu fólki kost á að stunda áhugamál í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi, hitta jafnaldra sína og sinna áhugamálum sem byggja á eigin frumkvæði.
- Aðsókn sýnir að nauðsynlegt er stokka spilin upp. Leggja meiri áherslu á fræðslu-kvöld, viðburði eins og t.d. sundstuð, innilegu og efla þátt klúbba, s.s. smíði, listir og skák, allt eftir áhuga nemenda.
- Nauðsynlegt er að starfsmaður með menntun á sviði tómstundafræða verði ráðinn í fullt starf. Mikilvægt er að í félagsmiðstöðinni séu starfsmenn af báðum kynjum.
- Opnunartíma í félagsmiðstöðinni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk þarf að lengja þannig að þeir geti sótt Þrykkjuna strax að loknum skóla.
- Húsnæði Þrykkjunnar þarf að taka til endurskoðunar með það að markmiði að það henti betur þeirri starfsemi sem þar fer fram. Skoða mætti kosti þess að samnýta að einhverju leyti húsnæði félagsmiðstöðvar og grunnskólans.
- Bæta þarf tækjakost félagsmiðstöðvar.
- Sérstök áhersla skal lögð á forvarnir gegn vímu- og fíkniefnum, ofbeldi, einelti, fordómum og félagslegri einangrun.
- Starfshópurinn leggur áherslu á að unnin verði starfsskrá félagsmiðstöðvar og einnig verði siðareglur um starfsemina til staðar í félagsmiðstöðinni.
- Nauðsynlegt er að rekstur félagslífs grunnskólans og félagslífs Þrykkjunnar sé aðskilinn. Skýr mörk þurfa að vera á milli félagsmiðstöðvar og skóla bæði stjórnunar- og skipulagslega. Í öllu félagsstarfi skólans gilda reglur skólans og í félagsmiðstöðinni gilda starfsreglur félagsmiðstöðvarinnar. Samráð og samvinna á að vera á milli þessara aðila en jafnframt þarf að vera ljóst að þetta eru tvær aðskildar stofnanir.
- Starfshópurinn leggur áherslu á samvinnu þeirra sem vinna að félagsstörfum og íþróttaiðkun barna á grunnskólaaldri.
- Starfshópurinn hvetur til að haldið verði ungmennaþing.
Töluverð umræða skapaðist um greinargerðina og var almenn sátt fundarmanna með þá vinnu og þær tillögur sem þar koma fram. Minnt var á að tímar væru breyttir, við því þurfi að bregðast og endurskipuleggja starfið. Sigríður ræddi vinnu nefndar sem gera á úttekt á nýtingu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins, hennar störf muni einnig beinast að þörfum félagsmiðstöðvar sem annarra. Guðmundur lagði áherslu á að innra starfið skipti mestu máli, það þurfi að vera í góðu lagi. Gísli sagðist almennt sammála því sem fram kemur í skýrslunni. Þá gerði hann að umtalsefni núverandi húsnæði félagsmiðstöðvar, einkum innanstokksmunum. Sagði hann þessum aldurshópi ekki sýnd mikil virðing með aðstöðunni. Þá ræddi hann þau miklu skil sem verða við 18 ára aldurinn og um leið á ýmsum þáttum félagslífsins. Sigríður taldi Sindrabæ ekki hentugan fyrir starfsemi félagsmiðstöðvar. Guðmundur sagði að framhaldsskólinn eigi að bera ábyrgð á félagslífi nemenda skólans. Gerð var athugasemd við mannahald eins og það er núna í félagsmiðstöðunni einkum það að nemendur framhaldsskólans séu við starfsnám án þess að kennari fylgdi.
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með skýrsluna og hvetur til að eftir henni verði unnið. Einnig hvetur nefndin til þess að haldið verði ungmennaþing.
5. Sameiginleg framtíðarsýn fyrir grunnskólastarfið 2007 - 2020
Framtíðarsýnin er afrakstur af sameiginlegri vinnu Félags grunnskólakennara, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Hópurinn sem stóð að þessari vinnu skilaði af sér í nóvember 2007. Kynning á framtíðarsýninni hefur að mestu farið fram í febrúar 2008.
Stefán sagði að þegar sameiginleg framtíðarsýn þessara aðila er borin saman við skólastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar komi í ljós að mikill samhljómur er með þeim þó vissulega komi einnig fram áherslumunur. Tók Guðmundur undir þessi orð. Sagði Guðmundur þetta vera góða skýrslu og hann vera ánægður með hana.
6. Prófdagar samræmdra prófa 2008
Prófdagar samræmdra prófa eru með eftirfarandi hætti:
Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 16. október 2008 kl. 9:30 – 12:00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 17. október 2008 kl. 9:30 – 12:00
Gísli sagðist vera andsnúinn samræmdum prófum.
7. Önnur mál
Spurt var um hver framtíð Hrollaugsstaða. Í svari var vísað til nefndar sem er að gera úttekt á fasteignum sveitarfélagsins.
Fram kom sú hugmynd frá Gísla að á Hrollaugsstöðum fari fram íslenskukennsla og kennsla um Ísland fyrir nýbúa á öllu landinu. Þetta nám yrði auglýst á landsvísu. Sveitarfélagið tæki að sér að reka þessa starfsemi.
Fundi slitið kl. 17:47


