Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 99
99. Fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar mánudaginn 17. desember 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Hjördís Svan Aðalheiðardóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Fundargerð 98. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
- Frumvarp til laga um leikskóla
Farið yfir frumvarpið og athugasemdir teknar niður við nokkrar greinar frumvarpsins.
- Frumvarp til laga um grunnskóla
Farið yfir frumvarpið og athugasemdir teknar niður.
- Frumvarp til laga um menntun og ráðningu kennara við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla
Farið yfir frumvarpið og athugasemdir teknar niður. Samþykkt að starfsmaður nefndarinnar sendi í tölvupósti þeim sem fundinn sátu athugasemdir sem gerðar voru við frumvörpin, sbr. 2. - 4. lið á dagskrá. Þessar athugasemdir verði notaðar í almennri umsögn um frumvörpin verði óskað eftir slíku.
- Erindisbréf fyrir foreldraráð
Erindisbréf fyrir foreldraráð var til umfjöllunar á 98. fundi nefndarinnar. Í frumvarpi til laga um grunnskóla segir í 8. gr.: „Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. ... Skólaráð skal skipað sjö einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra.” Jafnframt er gert ráð fyrir að foreldraráð starfi ekki við grunnskóla þegar ný lög hafa verið samþykkt.
Í ljósi þessara boðuðu breytinga samþykkir skólanefnd að setja foreldraráði ekki erindisbréf þegar svo skammt er eftir af starfstíma þess en gert er ráð fyrir að ný lög öðlist gildi 1. júlí 2008.
- Önnur mál
Torfi óskaði grunnskólanum til hamingju með góðan árangur í “Fyrst Legó-keppninni.” Var undir það tekið af öðrum nefndarmönnum. Einnig óskaði hann eftir því að fá upplýsingar um hver hafi tekið ákvörðun um að fara ekki til Japan heldur til Bandaríkjanna. Guðmundur sagði þetta hafa verið sameiginlega ákvörðun starfsmanna skólanna og foreldra barnanna sem þátt tóku í keppninni. Sigríður leggur til að sveitarfélagið styrki myndarlega ferð barnanna í fyrirhugaðri Legó-keppni í Bandaríkjunum. Voru skólanefndarmenn sammál Sigríði.
Sigríður ræddi niðurstöður á samræmdum prófum í Suðurkjördæmi. Einnig ræddi hún úttekt á matseðlum skólanna. Stefán greindi frá heimsókn næringarfræðings á vegum Lýðheilsustöðvar sem m.a hafi fengið matseðla skólanna til skoðunar. Engar formlegar athugasemdir hafi komið frá þeim starfsmanni. Einnig gerði hún að umtalsefni framlög menntamálaráðuneytis til námsgagnakaupa og nýtingu á því fjármagni.
Fundi slitið kl. 18:40


