Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 93
93. fundur
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Guðmundur H. Gunnarsson, Pálína Þorsteinsdóttir (í síma), Magnús J. Magnússon, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 92. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Sérkennsla, skipulag og úrræði
Magnús fór yfir fyrirliggjandi drög að sérkennsluúrræðum í grunnskólanum. Lögð verður áhersla á samræmi og samfellu í sérkennslu á milli skólastiganna í hinum sameinaða grunnskóla sem og ferli mála. Til staðar eiga að vera úrræði bæði fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með nám sem og bráðger börn. Einnig verður áhersla lögð á þjónustu við nemendur með hegðunarerfiðleika. Margrét gerði að umtalsefni að leikskólarnir væru ekki nefndir á nafn í þessum hugmyndum, sérkennslu í þeim þyrfti að sinna vel alveg eins og í grunnskólum.
3. Kennsla í Grsk. í Hofgarði á næsta skólaári
Pálína (í síma) greindi frá ýmsum þáttum sem snúa að skólastarfinu á næsta skólaári.
Skólanefnd leggur til að bætt verði við 4 kennslustundum vegna kennslu í 8. bekk á næsta skólaári við Grsk. í Hofgarði.
4. Ósk um fartölvur og símkerfi fyrir sameinaðan skóla
Tekið fyrir bréf, dagsett 25. apríl 2007, undirritað af Guðmundi Inga Sigbjörnssyni þar sem óskað er eftir aukafjárveitingu til að kaupa 16 fartölvur til afnota fyrir þá starfsmenn sameinaðs skóla (nú Hafnarskóla) sem ekki hafa afnot af fartölvum. Einnig tekin fyrir ósk sameinaðs grunnskóla um símkerfi fyrir stofnunina sem og fundargerð frá 16. maí um framangreind mál. Kostnaður vegna þessara tveggja óska, tölvur og símkerfi, er með eftirfarandi hætti: 2007: Krónur 706.000.- 2008: Krónur 1.694.400.-. 2009: Krónur 1.694.400.-. 2010: Krónur 988.400.-. Skólanefnd sammála um að leggja það til að keyptar verði fartölvur í samræmi við óskir skólans og að komið verði upp sameiginlegu símkerfi fyrir sameinaðan skóla.
5. Ósk leikskólanna um starfsdaga í ágúst vegna námskeiðs
Tekið fyrir bréf leikskólanna, dagsett 7. maí, undirritað af leikskólastjórum þar sem óskað er eftir að skólarnir fái heimild til að senda alla sína starfsmenn á námskeið um Uppbyggingarstefnuna sem stefnt er að 15. og 16. ágúst. Á þetta fara allir starfsmenn grunnskólanna sem og þeirra stofnana sem þeim tengjast.
Skólanefnd samþykkir beiðni leikskólanna um tvo starfsdaga í ágúst vegna námskeiðs.
6. Leikskólinn Lönguhólar, hugmynd að nýjum áherslum
Margrét greindi frá hugmyndum um að auka útivist barnanna á Lönguhólum, þ.e þriggja eldri árganganna sem sækja skólann. Þar verði lögð áhersla á að nám fari að verulegu leyti fram utan dyra, lært úti í náttúrunni og matast úti þegar veður leyfir. Tóku nefndarmenn vel undir þessar hugmyndir.
7. Nafn og merki sameinaðs grunnskóla
Tillögur bárust frá 157 einstaklingum um merki og nafn, flest frá nemendum Nesjaskóla og Hafnarskóla. Samþykkt að taka þetta til afgreiðslu á næsta fundi.
8. Önnur mál
- Skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Skólanefnd samþykkir skóladagatal Tónskólans.
- Merkingar á skólabílum. Stefán greindi frá samtölum sínum við verktaka í skólaakstri vegna þessa máls. Kynntar hugmyndir verktaka að merkingu skólabíla, þ.e. minni bílanna. Skólanefnd gerir ekki efnislega athugasemd við tillögu verktaka að merkingu en telur æskilegt að merkingin verði stærri. Þetta verði haft til reynslu næsta skólaár.
- Dreift bæklingi vegna lengdrar viðveru fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Rætt um nafngiftina lengda viðveru og bent á önnur nöfn svo sem frístundaheimili og heilsdags skóla. Einnig rætt um gjaldskrá sem er talin af mörgum of há. Nefndarmenn lýstu ánægju sinni með bæklinginn, töldu hann góðan til að kynna þetta þjónustutilboð.
- Samþykkt að kynningarfundur skólanefndar og skólanna um skólamál verði í byrjun næsta skólaárs.
- Tilkynnt að Guðmundur Ingi Sigbjörnsson verði talsmaður sameinaðs grunnskóla á næsta skólaári.
- Rætt um hvort ekki eigi að senda varamönnum fundargögn, sem ekki er gert.
Fundi slitið kl. 18:50


