Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 92

92. fundur

Fundur haldinn     í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 25. apríl 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.

 

Mætt voru:     Guðrún Jónsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Sigurjónsson, Sigríður Kristinsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Eyrún Axelsdóttir, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Pálína Þorsteinsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Stefán Ólafsson.   

  Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 1.            Fundargerð 91. fundar

Engar athugasemdir voru gerðar

 

2.      SOS-námskeið fyrir starfsmenn skóla og foreldra

Farið yfir greinargerð Ragnhildar Jónsdóttur. Þar kemur fram að ?SOS ? hjálp fyrir foreldra er leiðarvísir um uppeldi barna þar sem aðferðir atferlismótunar eru virkjaðar til þess að hjálpa foreldrum og börnum að stjórna hegðun og skapsmunum barnsins, þær miðast við uppeldi 2 til 12 ára barna. Í þessari aðferð fá foreldrar í hendur vel skipulagða, aðgengilega og skýra aðferðafræði um uppeldi og jákvæða hvatningu til hegðunarstjórnunar. Lögð er áhersla á að foreldrar hvetji börn með því að vera óspör á bros, knús og hrós. Aðferðirnar styrkja foreldra jafnframt í því að vera fastir fyrir, leiðbeinandi og samkvæmir sjálfum sér þegar kemur að reglum í samskiptum og hegðun. Námskeiðið er ekki einungis ætlað foreldrum heldur einnig starfsfólki í leik-og grunnskólum, svo og fjölskylduráðgjöfum og ráðgefandi aðilum um uppeldi barna.?

Einnig var farið yfir kostnaðaráætlun vegna þessara námskeiða. Fram kom að starfsmenn og foreldrar eigi kost á að sækja í starfsmenntasjóði vegna námskeiðanna. Misjafnt er þó hversu mikið viðkomandi hafa nýtt sér þá sjóði, sumir jafnvel að fullu vegna náms. Einnig kom fram að fé til þessara námskeiða er ekki á fjárhagsáætlun skólanna. Skólanefnd hvetur til að næsta haus verði farið af stað með þessi námskeið meðal starfsmanna leikskólanna. Í framhaldinu verði komið á námskeiðum fyrir foreldra leikskólabarna.

Undir þessum lið var einnig kynnt námskeið um uppbyggingarstefnuna ? uppeldi til ábyrgðar, sem verður fyrir starfsmenn leik- og grunnskóla í ágúst.

 3.      Samkeppni um nafn og merki á nýsameinuðum grunnskóla

Borist hefur nokkur fjöldi tillagna, flestar frá nemendum í Hafnarskóla. Skólanefnd samþykkir að vísa þessu máli til vinnufundar í skólanefnd.

 4.      Skóladagatal 2007 - 2008

Þórgunnur fór yfir tillögu að skóladagatali nýsameinaðs grunnskóla. Gert er ráð fyrir 180 skóladögum, þar af tveimur ?stöfluðum? dögum vegna félagslífs. Skipulagsdagar á starfstíma skólans eru  fimm og átta að sumri.  Pálína fór yfir skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði. Gert ráð fyrir 180 skóladögum, þar af 6 stöfluðum vegna félagslífs. Skipulagsdagar eru fimm að vetri og sjö að sumri. Skólanefnd samþykkir fram lögð skóladagatöl grunnskólanna.  

 5.      Skipting í bekkjardeildir og kennslustundir 2007 - 2008

Gert er ráð fyrir að tvískipta 2. ? 10. bekk eins og verið hefur en að fyrsti bekkur grunnskólans verði í einni bekkjardeild með viðbótarstuðning inni í bekk. Ekki liggja fyrir endanlegar tillögur skólastjórnenda um kennslustundafjölda

Pálína gerði grein fyrir óskum Grunnskólans  í Hofgarði  um kennslustundafjölda skólans á næsta skólaári sem tekur meðal annars mið af því að þar verði kennt í 8. bekk.  

Undir þessum lið var rætt var um kennaraskort, einkum skort á vel menntuðum kennurum með reynslu. Sú staðreynd hafi áhrif á möguleika til að steypa saman árgöngum í stærri bekkjardeildir.     

 6.      Húsnæði Nesjaskóla

Greint frá umræðu í bæjarráði um húsnæði Nesjaskóla og hvað gera eigi við allt hið vannýtta húsnæði sem þar er til staðar, heimavist o.fl.. Á 373. fundi bæjarráðs var eftirfarandi bókað:  ?Starfsmönnum falið að leggja fram tillögur að nýtingu Nesjaskóla.? Rætt var m.a.um skort á sal og mötuneyti fyrir nemendur Hafnar- og Heppuskóla. Sigríður sagði mikilvægt að gerð verði þarfakönnun vegna húsnæðis grunnskólanna. Skólanefnd telur mikilvægt að hugsanleg sala á húsnæði Nesjaskóla valdi sem minnstri röskun á skólastarfi. Jafnframt óskar nefndin eftir því að fullt samráð verða haft við skólann og skólanefnd um þessi mál. 

 7.      Önnur mál

  • Gunnar ræddi um hvort nemendur í sveitum sem stunda nám í FAS geti nýtt sér skólaakstur með grunnskólanemendum. Sagði hann þetta geta haft einhver áhrif á skipulag framhaldsskólans þar sem aksturinn væri miðaður við grunnskólann sem byrjar kl. 8:30. Skólanefnd var því sammála að þetta eigi að skoða. Það væri hagur að því að nemendur í okkar sveitarfélagi geti sótt framhaldsskóla í sveitarfélaginu. Undir þessari umræðu var bent á að Reykjavíkurborg hyggist bjóða sínum nemendum frítt í strætó á næsta skólaári.
  • Rætt um skort á sérstökum merkingum á skólabílum. Samþykkt að það þurfi að lagfæra.

 

Fundi slitið kl. 18:45

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica