Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 91
91. fundur
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 90. fundar
Bent á að fundargerð 89. fundar hafi átt að vera til athugasemda á síðasta fundi en ekki 90. fundargerð eins og misritað var.
2. Greinargerðog tillögur nefndar, skipaðri af Félagi leikskólakennara, um leikskólabyggingar
Í greinargerðinni er m.a. fjallað um eftirfarandi: „Leikskólabyggingar og vistunartími barna ... Hávaði álag og áreiti ... Takmörkuð aðstaða fyrir börn til að finna frið í dagsins önn ...Ófullnægjandi rými til sérkennslu ... Of mörg börn (18- 30 börn) á deildum í tiltölulega litlu rými ... Þrengsli í sameiginlegu fataherbergi ... Langur dvalartími/vistunartími barna ... Óviðunandi vinnuaðstaða kennara og rými til næðis ... Erfiðleikar í starfsmannahaldi. Undir þessum lið var einnig kynnt reglugerð um leikskóla nr. 225/1995. Spurt var um fjölda barna á deildum í okkar leikskólum Á Lönguhólum eru 13, 16, 17 og 19 börn á deild. Í Krakkakoti eru mest 26 á eldri deild og 16 á yngri deild. Rætt um hávaða í leikskólum og hvort það sé eitthvað sem skoða þurfi í okkar skólum. Fram kom hjá leikskólastjórum að nægilegt pláss sé í okkar skólum, andstætt við það sem fram kemur í greinargerðinni. Hér skorti hins vegar rými til sérkennslu á Lönguhólum og undirbúningsrými fyrir starfsmenn.
3. Nafn á nýsameinuðum grunnskóla
Skólanefnd samþykkir að efna til samkeppni um nafn á hinum sameinaða skóla og einnig um merki (lógó) fyrir skólann. Vísað til starfsmanna að útfæra samkeppnina. Undir þessum lið var rætt um mikilvægi þess að tekin verði sýnileg skref í hinum sameinaða skóla sem birtist íbúunum.
4. Ráðning skólastjóra nýsameinaðs grunnskóla
Í ljósi fyrri samþykkta í skólanefnd og bæjarstjórn leggur skólanefnd til að Þorvaldur Jón Viktorsson, skólastjóri Nesjaskóla, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, skólastjóri Heppuskóla og Þórgunnur Torfsdóttir, skólastjóri Hafnarskóla verði ráðin sem skólastjórar við sameinaðan grunnskóla.
5. Bréf til starfsmanna grunnskólanna
Stefán greindi frá tillögu að bréfi til allra kennara við grunnskólana. Skólanefnd samþykkir að senda kennurum þetta bréf og að öðrum starfsmönnum verði einnig sent sambærilegt bréf.
6. Fjöldi nemenda á næsta skólaári og skipting í bekkjardeildir
Miðað við fjölda nemenda í skólunum þremur og upplýsingum úr þjóðskrá verður fjöldi nemenda í árgöngum á næsta skólaári sem hér greinir:
Árg. 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001
Nem. 39 41 29 44 27 41 28 35 39 25
Skólanefnd leggur til að skólastjórnendur komi með tillögur að skiptingu árganga sem eru undir 30 nemendum með það að markmiði að fækka heildarkennslustundfjölda skólans. Tillögur þar að lútandi verði teknar til afgreiðslu á næsta fundi skólanefndar. Fram kom undir þessum umræðum að skortur er á skólastofum sem rúma stórar bekkjardeildir.
7. Hugmyndabanki lýðheilsuhóps
Í hugmyndabankanum koma fram margvíslegar tillögur sem lúta að því að bæta mataræði skólabarna og annarra íbúa sveitarfélagsins, aukinni hreyfingu o.fl. atriði er bætt geta líkamlegt ástand fólks. Í tillögunum er bent á hlutverk hinna ýmsu stofnana sveitarfélagsins og þar er þáttur skólanna verulegur.
8. Kynning á námskrárdrögum
Til kynningar.
9. Nýútgefnar námskrár á rafrænu formi á vef menntamálaráðuneytisins
Til kynningar.
10. Önnur mál
· Skólanefnd samþykkir að nefndin í samvinnu við sameinaðan grunnskóla standi fyrir almennum kynningarfundi um skólastarfið. Fundurinn verði haldinn nú á vordögum.
· Guðrún lagði til að skólastefnan verði gefin út í fallegum bæklingi og honum dreift inn á öll heimili í sveitarfélaginu. Skólanefnd samþykkir þetta.
· Sigríður ræddi námskeið sem haldin hafa verið í tengslum við styttingu náms til stúdentsprófs og spurði hvort einhverjir kennarar hafi farið á þau námskeið. Fram kom að einn kennari hafi byrjað í þessu námi. Einnig lagði Sigríður fram tillögu um að farið verði í vísinda- og menningarferðir til Reykjavíkur með efri bekki (t.d. 8. eða 9. bekk). Þetta yrði árlegur viðburður. Var undir þessi orð tekið. Fram kom að ferðalögum með nemendur fylgi verulegur kostnaður sem takmarkaði slíkar ferðir. Einnig kom fram að það verði eitt af verkefnum hins sameinaða grunnskóla að skipuleggja allar námsferðir skólans. Þá var rætt um námsferðir innan sveitarfélagsins og mikilvægi þeirra.
Fundi slitið kl. 17:55


