Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 90

90. fundur

Fundur haldinn      í skólanefnd Hornafjarðar fimmtudaginn 22. febrúar 2007 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.

 Mætt voru:     Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Torfi Friðfinnsson, Stephen Róbert Johnson, Sigríður Kristinsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Guðmundur H. Gunnarsson, Þórgunnur Torfadóttir, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson. 

 

 Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 1. Fundargerð 90. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 2. Eftirfylgni könnunar á starfsemi leikskóla, erindi frá menntamálaráðuneytinu

Könnunin nær til allra leikskóla í landinu og var svarhlutfall 76%. Fram kemur í yfirliti að upplýsingar hafi borist frá Krakkakoti og Lönguhólum en ekki frá leikskóladeildinni í Hofgarði. Skólanefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar hafi sambandi við skólastjóra í Hofgarði vegna skorts á upplýsingum frá leikskóla-deildinni í Hofgarði. Undir þessum lið var einnig rætt um uppeldisstefnur leikskólanna á Höfn en þær má finna á heimsíðum skólanna.

3. Erindi menntamálaráðuneytisins: Æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk, menntun, menning, tómstundir og íþróttaiðkun ungmenna á Íslandi.

Frá árinu 1992 hefur menntamálaráðuneytið stuðlað að framkvæmd rannsóknanna Ungt fólk, þar sem kannaðir eru þættir sem snúa að menntun, menningu, tómstundum og íþróttaiðkun ungmenna. Skýrslan nær til þeirra nemenda sem voru í 9. og 10. bekk í grunnskólum landsins vorið 2006. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir sérstök úttekt á stöðu þessa aldurshóps á Hornafirði má draga þær ályktanir að niðurstöður könnunarinnar séu einnig lýsandi fyrir okkar nemendur. Sigríður óskaði eftir að fá skýrsluna og var undir það tekið.

 4. Skýrsla menntamálaráðherra til Alþingis um framkvæmd skólahalds í grunnskólum (Skýrslan er á vef ráðuneytisins.)

Skýrslan nær til framkvæmdar skólahalds í grunnskólum landsins skólaárin 2001-2002, 2002-2003 og 2003-2004. Niðurstöður eru ekki greindar eftir sveitarfélögum eða skólum.

 5. a) Heimild menntamálaráðuneytis til Sveitarfélagsins Hornafjarðar – undanþága frá lögum um grunnskóla.  b)Tillaga að stjórn sameinaðs grunnskóla

a) Farið yfir útsent bréf menntamálaráðuneytisins, dagsett 31. janúar 2007. Með bréfinu heimilar menntamálaráðherra Sveitarfélaginu Hornafirði að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði.

b) Formaður skólanefndar lagði fram eftirfarandi bókun: Fyrir liggur eftirfarandi heimild menntamálaráðherra, dagsett 31. janúar 2007: „Menntamálaráðherra heimilar Sveitarfélaginu Hornafirði með vísan til 53. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði, til næstu þriggja ára frá skólaárinu 2007-2008 að telja. Sveitarstjórn Hornafjarðar fær því undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða um fyrirkomulag stjórnunar grunnskóla. Menntamálaráðuneytið setur það skilyrði fyrir tilraun með nýtt stjórnunarform að ávallt sé ljóst gagnvart öllum aðilum hver sé forsvarsmaður og fyrsti aðili skólans, þ.m.t. ráðuneytinu og stofnunum skólakerfisins.” Með hliðsjón af framangreindri samþykkt menntamálaráðherra samþykkir skólanefnd að við sameinaðan grunnskóla starfi þrír skólastjórar og tveir deildarstjórar. Jafnframt er samþykkt að verkefni sérkennslufulltrúa við skólaskrifstofu færist yfir til skólans og falli undir starfssvið annars tveggja deildarstjóra. Í ljósi fyrri samþykkta er áréttað að verði breytingar á hópi stjórnenda á því tímabili sem heimild menntamálaráðherra nær til muni fyrirkomulag skólastjórnunar verða endurskoðað. Í lok þessa þriggja ára tímabils fari fram faglegt og fjárhagslegt mat á hvernig til hafi tekist og í ljósi þess tekin ákvörðun um fyrirkomulag stjórnunar til lengri tíma litið.

Sigríður fór yfir málið og sagði að sameining skólanna undir eina skólastjórn og að breyting verði á skipulagi sérkennslumála sé í anda þess sem hefur verið til umræðu allt frá skólamálaþinginu í febrúar 2005. Spurði hún hvort deildarstjóri sérkennslu verði með önnur verkefni á sínum höndum. Fram kom að það verði meginstarf  þess deildarstjóra. Einnig velti Sigríður fyrir sér hvers vegna þyrfti annan deildarstjóra. Farið var yfir helstu störf hins deildarstjórans sem snúa að samræmingu skólastiganna, samþættingu náms, sjálfsmati skólans og foreldrasamskiptum. Framangreind bókun um skipan skólastjórnar í sameinuðum grunnskóla borin undir atkvæði og hún samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu.

Sigríður sagðist ekki geta samþykkt þetta. Hún vildi sjá þrjá skólastjóra og einn deildarstjóra en ekki tvo. Hún sagðist telja að nú væri tækifæri án uppsagnar að koma því skipulagi á. Fram kom að hjá kennurum sé bjartsýni á að þetta sé mjög góð samþykkt fyrir skólaumhverfið. Það heyrist ekki neinar raddir sem séu á móti þessu nýja skipulagi. Þá væri mikil ánægja með það í skólunum að hægt verði að gera þessar skipulagsbreytingar án átaka í skólunum.

 6. Önnur mál

  • Torfi spurði um hvernig samskiptum væri háttað á milli íþróttahúsanna og skólanna í sambandi við eineltismál. Fram kom að starfsmenn íþróttahúsa hafi ekki komið mikið að umræðu um þau mál. Torfi lagði áherslu á að þeir þyrftu að vera með í þeirri vinnu með skólunum. Guðlaug kom inn á  nauðsyn þess að til staðar séu baðverðir af báðum kynjum í íþróttahúsinu. Fram kom að íþróttahús og sundlaugar séu viðkvæmir staðir þegar kemur að einelti.
  • Sigríður ræddi um bréf kennara sem ekki hefur verið tekið til umræðu í skólanefnd. Þá gerði hún að umtalsefni að nemandi hafi komið heim úr Heppuskóla með þær upplýsingar að von væri á verkfalli kennara á næsta skólaári. Guðlaug tók undir að það væri alvarlegt ef svo hafi verið og skýrði auk þess hvað gæti hafa verið til umræðu.
  • Sigríður gerði að umtalsefni skólatíma í leikskólum. Spurði hvort búið væri að auglýsa skólatíma leikskólanna eins átt hafi að gera í byrjun þessa árs. Fram kom að ekki hafi verið auglýstur nýr skólatími í leikskólum.

 

 

Fundi slitið kl. 17:40

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica