Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 88
88. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 29. desember 2006, kl. 15:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á.Valdimarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 87. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Barngildi og starfsmenn í leikskólum
Starfsmaður nefndarinnar og leikskólastjórar fóru yfir yfirlit frá leikskólunum og skólaskrifstofu sem sýnir mönnun leikskólanna og fjölda barngilda í skólunum. Starfsmenn svöruðu og spurningum sem fram komu. Einnig farið yfir skýrslu, dags. 12. september 2003, úttekt á leikskólastarfi. Sigríður lagði til að í vor verði gerð sambærileg úttekt og gerð var 2003. Var undir það tekið og minnt á mikilvægi slíkrar úttektar vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á leikskólunum.
3. Styrkir til foreldrastarfs og foreldrafélaga.
Samþykkt að styrkir til foreldrastarfs af fjárhagsáætlun 2006 verði með eftirfarandi hætti: Foreldrafélagið Krakkahólar kr. 70.000, Foreldrafélag Nesjaskóla kr. 45.000 , Foreldrafélag Hafnarskóla kr. 45.000, foreldrastarf í Heppuskóla kr. 45.000 , foreldrastarf í Grunnskólanum í Hofgarði kr. 50.000, foreldrastarf við Tónskóla A-Skaft. kr. 45.000.
4. Samþykktir stýrihóps um skólastefnu og stjórnfyrirkomulag skólanna
Farið yfir fyrirliggjandi gögn og þau rædd. Fram kom að hin nýja skólastjórn, sbr. tillögur stýrihóps, verði skipuð þremur skólastjórum. Sigríður spurði um skipan starfshóps sem leiði þessar breytingar og spurði hvort það verði þessi nýja skólastjórn. Hún sagðist hafa verið talsmaður þess að fara mjúka leið í breytingum á skólakerfinu. Lagði hún áherslu á að hið nýja skipulag taki gildi frá byrjun skólaárs 2007 ? 2008. Þórgunnur taldi það vera skólanefndarinnar að vera bakhjarl þessara breytinga.
Samþykkt var að færa síðasta lið í kaflanum ?Starfsfólk? í skólastefnu, ?leita leiða til að jafna kynjahlutföll í skólum eins og kostur er? í kaflann markmið.
Skólanefnd samþykkir samhljóða tillögur stýrihóps um skólastefnu og fyrirkomulag á stjórnunarþætti grunnskóla, tónskóla og leikskóla, dagsett 19. desember 2006.
5. Önnur mál
- Greint frá breytingum á reglugerð nr. 415/2000 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa í 4. og 7. bekk grunnskóla.
- Sigríður lagði til að gerð verði eignaskrá fyrir alla skólana sem verði uppfærð með reglulegu millibili. Skapaðist töluverð umræða um slíka skrá og nauðsyn hennar.
- Guðrún ræddi fundartíma nefndarinnar. Samþykkt að hann verði kl. 16:10 í stað 17:10 eins og verið hefur.
- Guðlaug spurðist fyrir um bréf frá kennurum þar sem lýst er áhyggjum út af því að ekki hafa verið teknar upp kjaraviðræður. Stefán sagðist munu fara yfir þetta mál og hafa samband við fulltrúa kennara.
Fundi slitið kl. 16:40


