Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 87
87. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Torfi Friðfinnsson, Stephen Robert Johnson, Bryndís Hólmarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir,Guðmundur H. Gunnarsson, Þórgunnur Torfadóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 86. fundar
Engar athugasemdir gerðar
2. Reglur um leikskóla ? ákvörðun um gildistöku
Skólanefnd samþykkir að reglur um leikskóla sem samþykktar voru á 86. fundi skólanefndar þann 8. nóv. 2006 taki gildi 1. janúar 2007.
3. Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Á fundi bæjarráðs var eftirfarandi bókað: ?Farið yfir reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla, dagsett 21. nóvember 2002. Vísað til umræðu í skólanefnd.? Skólanefnd leggur til að 6. grein reglnanna hljóði svo: Hámarksupphæð á ári skal ekki fara fram yfir krónur 125.000 á ári og miðast við neysluvísitölu í janúar 2003. Ef barn er í leikskóla hluta úr ári skal hámarksgreiðsla taka mið af lengd tímabilsins. Skólanefnd samþykkir að reglurnar gildi áfram með áorðnum breytingum á 6. grein. Undir þessum lið var einnig rætt að börn í dreifbýli á leið í leikskóla hafi í nokkrum mæli getað nýtt sér skólabíla á leið til Hafnar.
4. Ósk um að fá húsgögn úr Hrollaugsstaðaskóla í náttúruskóla í Skaftafellsþjóðgarði
Skólanefnd felur starfsmanni sínum að kanna hvaða húsgögn skólans og annar búnaður geti nýst í skólum sveitarfélagsins áður en honum verði ráðstafað annað. Að öðru leyti er nefndin því sammála að náttúruskólinn megi nýta annan búnað sem er í Hrollaugsstaðaskóla. Það sem snýr að félagsheimilinu verði hins vegar á engan hátt skert.
5. Mötuneytismál ? svör starfsmanna mötuneytanna
Skólanefnd telur að svör starfsmanna leiði í ljós að matur sem á borð er borinn í mötuneytum skólanna sé almennt hollur og góður. Fram kom m.a. í umræðunni að þegar rætt er um unnar matvörur er ekki alltaf verið að ræða um sama matinn. Einnig var rætt um verð á matnum, einkum þeim aðkeypta, sem væri of hátt. Þórgunnur lagði áherslu á að þetta væri vandasöm umræða en við yrðum að gæta þess að vera metnaðarfull. Skólanefnd leggur til að fiskidagar verði samræmdir á milli mötuneyta í leik- og grunnskólum. Sem fyrr leggur skólanefnd áherslu á hollustu þess fæðis sem í boði er og vitnar til skólastefnu sem er í vinnslu.
Undir þessum lið voru einnig kynntar niðurstöður norskrar rannsóknar sem sýna fram á tengsl morgunmatar og einkunna og hvernig nemendum líður. Þar kemur fram að þeir sem ekki borða morgunmat fá lélegri einkunnir og eiga frekar hættu á að upplifa sálræn vandamál en þeir sem neyta morgunmatar.
6. Önnur mál
· Erindi menntamálaráðuneytisins ? tillögur nefndar um fjölgun nemenda í raungreinum. Guðlaug gerði athugasemd við skamman fyrirvara sem skólar fá til að gera formlegt mat á þessum þætti skólastarfsins.
· Ályktun frá stjórnendum grunnskólanna til stýrihóps um skólastefnu, skólanefndar og bæjarstjórnar þess efnis að ljúka stefnumótunarvinnu hið fyrsta, dagsett 28. nóvember 2006. Elín upplýsti að stýrihópurinn hafi ákveðið að skila tillögum sínum fyrir jólaleyfi.
· Stefán greindi frá málþingi um framtíðarsýn í málefnum grunnskólans og ný grunnskólalög.
· Elín kynnti að hún muni víkja úr skólanefndinni að loknum þessum fundi. Ástæðan er sú að hún hafi ráðið sig til starfa á Leikskólanum Lönguhólum og því vanhæf til setu í skólanefnd. Elín þakkaði nefndinni, áheyrnarfulltrúum og starfsmönnum fyrir samvinnuna og var henni einnig þakkað fyrir góð störf.
Fundi slitið kl. 18:30


