Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 85
85. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Gísli Vilhjálmsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Sigríður Kristinsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 84. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Reglur um leikskóla
Farið yfir drög að nýjum reglum og þeim reglum sem í gildi eru. Ástæða þess að setja þarf nýjar reglur er að breyting hefur verið samþykkt á starfsemi leikskólanna þannig að ýmislegt sem er í núverandi reglum á ekki lengur við, svo sem um aldursskipta leikskóla og umsóknir um leikskólapláss. Einnig er horfið út úr reglunum orðið vistunartími og í stað þess komið orðið skólatími. Fram komu tillögur frá Önnu Maríu um að við fyrirliggjandi drög bætist skólatími sem byrjar kl. 12. Sigríður tók undir það sjónarmið að boðið verði upp á tíma sem byrjaði nálægt hádegi. Þeir sem þann tíma nýttu yrðu þá einnig að kaupa mat enda sé hann fram borinn á þessum tíma. Margrét sagði að þetta hentaði ekki skólastarfi á Lönguhólum. Þar byrjar hádegismatur kl. 11:40. Snæfríður tók undir orð Margrétar. Sigríður lagði áherslu á að boðið verði upp á skólatíma sem byrjar með hádegismat, hvort sem hann byrjar nákvæmlega kl. 12 eða eitthvað fyrr. Að öðru leyti hefði hún ekkert um þessar breytingar á reglunum að segja og gæti samþykkt þær. Torfi tók undir orð Sigríðar, auka þyrfti sveigjanleika. Elín lagðist gegn því að bætt verði við skólatíma frá því sem tillögur gera ráð fyrir. Samþykkt að fresta afgreiðslu þessa liðar til næsta skólanefndarfundar. Sigrún spurðist fyrir um afslátt á leikskólagjöldum og hvort hann sé ekki sá sami í báðum skólunum. Því svarað að afslátturinn sé sá sami.
3. Önnur mál
- Eftirfarandi var bókað á 346. fundi bæjarráðs: "Björn Ingi gerði að umtalsefni ferðlag nokkurra starfsmanna skólanna í síðustu viku. Spurði hvernig kennsla og önnur störf hafi verið leyst á meðan nokkrir starfsmenn fara frá stofnunum á sama tíma. Fyrirspurnin send til viðkomandi stofnana og einnig til skólanefndar. Einnig spurðist Björn Ingi fyrir um skyndileg starfslok kennara við Nesjaskóla og hvernig það mál hafi verið leyst. Vísað til skólastjóra Nesjaskóla." Í ljósi þess að fyrirspurninni var einnig vísað til skólanefndar afhenti starfsmaður nefndarinnar svör skólastjórnenda við henni.
· Þórgunnur greindi frá því að 5 ? 10 börn hafi verið í lengdri viðveru sl. skólaár og auk þeirra 6 börn úr dreifbýli sem biðu eftir skólabíl. Þann 6. september sl. voru skráð 13 börn í lengda viðveru og auk þess eru þar 3 börn sem bíða eftir skólaakstri. Sigríður spurði um aðstoð við lærdóm og starf að öðru leyti í lengdri viðveru. Þórgunnur sagði erfitt að halda utan um aðra starfsemi en heimanám, börnin væru mikið að koma og fara, til dæmis í íþróttir, tónlist o.fl.
· 1. fundargerð nýs stýrihóps vegna skólastefnu. Til kynningar. Elín sagði það mikilvægt að unnið verði að nýrri skólastefnu í sátt og af einhug, sama hvar í flokki sem menn standa. Þórgunnur kom með ábendingar um þá tíma sem henta til samráðsfunda með starfsmönnum skólanna vegna nýrrar skólastefnu. Guðlaug fagnaði því að kennarar skuli verða með í ráðum við gerð nýrrar skólastefnu. Undir þessum lið var einnig rætt um þá nemendur sem enn eru í grunnskóla en sækja hluta af námi sínu í framhaldsskóla og í því sambandi um samstarf þessara skólastiga. Sagði Sigríður okkur í þessu sveitarfélagi vera komin þó nokkuð langt í þessum efnum.
· Ályktun skólamálanefndar Sambands íslenskara sveitarfélaga vegna skýrslu OECD. Til kynningar. Ályktunina og umrædda skýrslu OECD má finna á heimasíðu Sambands. ísl. sveitarf. - samband.is.
· Ákvörðun um fundartíma. Samþykkt að breyta fundartíma til kl. 17:10.
· Gísli spurði um gildistíma skólaaksturs og gerði einnig að umtalsefni samning um skólamötuneyti sem er til eins árs í senn. Stefán sagði samning um skólaakstur vera til 5 ára og skólamötuneyti Hafnar- og Heppuskóla til eins árs í senn.
· Sigríður ræddi vernd barna og ungmenna, útivistartíma og vinnu grunnskólabarna. Ræddi hún þetta í tengslum við vinnu barna eftir að skólatíma lýkur. Skorar hún á fræðslu- og félagssvið að upplýsa fyrirtæki og foreldra um gildandi lög og reglur um þessi mál. Guðlaug tók undir þetta og sagði mikla vinnu grunnskólabarna eftir skóla vera vandamál.
· Kynnt drög að könnun sem væntanlega verður lögð fyrir íbúa sveitarfélagsins (úrtak) á þessu hausti. Farið yfir grunnupplýsingar og þá þætti sem snúa að skólamálum.
· Gerð grein fyrir "véladeild" Heppuskóla. Deildin starfar frá kl. 8:30 - 11:20 á miðvikudagsmorgnum. Í henni eru 5 strákar úr 10. bekk. Er þetta gert í samstarfi við Menningarmiðstöð og hefur Björn Arnarson umsjón með þessari vinnu í vetur. "Deildin" hefur aðsetur í kjallara Vöruhúss við Hafnarbraut.
.
Fundi slitið kl. 17:25


