Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 84
84. fundur
Mætt voru: Gunnar Sigurjónsson, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Anna María Ríkharðsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Sigríður Kristinsdóttir, Stefán Ólafsson, Guðlaug Úlfarsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 83. fundar
Engar athugasemdir gerðar
2. Samningar um skólaakstur, heimavist og mötuneyti
Stefán gerði grein fyrir ofangreindum samningum, afhenti skipulag á skólaakstri 2006 – 2007, greindi frá samskiptum við foreldra í Öræfum vegna heimavistarnemenda og fjallaði um mötuneytismál. Sigríður gerði að umtalsefni kostnað við akstur á milli Hafnar og Nesjaskóla og óskaði eftir upplýsingum um kostnað við þann akstur. Rætt var um stærð matarskammta og hvort bjóða ætti upp á þann möguleika að kaupa mætti stærri skammta og greiða fyrir þá. Greindi Stefán frá viðræðum við verktaka um það atriði.
3. Nemendafjöldi í leik- og grunnskólum
Samkvæmt yfirliti frá skólunum verða nemendur í grunnskólum samtals 382, þar af 146 í Hafnarskóla, 124 í Heppuskóla, 102 í Nesjaskóla og 10 í Grunnskólanum í Hofgarði. Nemendur í leikskólum þann 9. ágúst skiptast þannig að í Krakkakoti voru 41 nemandi, 54 á Lönguhólum og gert er ráð fyrir 3 í leikskóladeild í Hofgarði. Enn eru nemendur að innritast í leikskólana og þetta því ekki endanleg tala. Undir þessum lið var m.a. rætt um aldursskiptingu á milli leikskólanna og hvað langan tíma tæki að ná jafnri aldursskiptingu á milli skólanna og hvort hún næðist. Torfi lagði áherslu á að skiptingin milli skólanna eins og hún er nú væri grafalvarlegt mál. Einnig var bent á fámenna árganga í yngstu aldurshópum. Sigríður sagði það hafa verið faglega rétta ákvörðun að breyta leikskólunum í það horf sem nú er.
4. Önnur mál
· Farið yfir lög um breytingar á lögum nr. 66/1995 um grunnskóla og gögn vegna heildarendurskoðunar grunnskólalaga. Sigríður greindi frá yfirferð sinni yfir breytingar á grunnskólalögum og vakti athygli á nokkrum atriðum svo sem væntanlegum reglum um skólaakstur, að skólanefnd sé orðin úrskurðarnefnd að hluta til, samstarf leik- og grunnskóla og grunnskóla og framhaldsskóla og aukið hlutverk foreldraráða og nemendaráða í skólastarfi. Sagðist hún sjá margt sem verið er að gera í okkar skólasamfélagi sem er í fullu samræmi við nýorðnar breytingar á lögunum. Sagðist hún sjá fyrir sér mikla breytingu á skólamálum í næstu framtíð. Guðlaug greindi frá vaxandi samstarfi Heppuskóla og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Gunnar gerði að umtalsefni þann tíma sem varið er í nám og mismun á aðstöðu nemenda í fámennum skólum og fjölmennum. Nemendur í fámennum skólum hafi greiðari aðgang að kennurum og þyrftu fyrir vikið e.t.v. ekki sama árlega tíma til náms, þeir næðu oft námsmarkmiðum á skemmri tíma vegna fámennis í skólanum.
· Greint frá störfum sérkennsluteymis og afhent samantekt um markmið þess og hlutverk.
· Greint frá gjaldskrá fyrir lengda viðveru.
· Sigríður spurðist fyrir um vinnu við skólastefnu og hvort breytinga sé að vænta. Einnig spurði hún um skipan stýrihóps og hvort byggt verði á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin.. Greint frá því að næstu skref við vinnu að skólastefnu séu til umræðu en ekki komin ákvörðun þar um.
Fundi slitið kl. 17:42


