Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 71
71. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, þriðjudaginn 18. maí 2005 kl. 13:00
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Uppsögn skólastjóra Hafnarskóla og tillaga um tímabundna ráðningu skólastjóra
Sigríður greindi frá þeim hugmyndum sem ræddar hafa verið frá því að ljóst var að Arnbjörg Stefánsdóttir segði starfi sínu lausu. Elín fór sömuleiðis yfir málið og greindi frá sinni afstöðu. Niðurstaða þeirra umræðna, sem fram hafa farið, er sú að gengið verði til samninga við Þórgunni Torfadóttur um að taka að sér starf skólastjóra Hafnarskóla skólaárið 2005 – 2006. Einnig að henni verði falið að gera tillögu um ráðningu aðstoðarskólastjóra til eins árs. Þær Sigríður og Elín lögðu áherslu á að um væri að ræða ráðningu til eins árs þar sem vinna að nýrri skólastefnu er að hefjast. Stefnu sem einkennast eigi meðal annars af nýrri sýn á skipan skólamála i sveitarfélaginu.
Skólanefnd mælir með að Þórgunnur Torfadóttir verði ráðin skólastjóri Hafnarskóla til eins árs og einnig að henni verði falið að ráða aðstoðarskólastjóra til sama tíma, sbr. ofangreinda tillögu.
Fundi slitið kl. 13:45


