Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 83
83. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, fimmtudaginn 26. júní 2006 kl. 16:10
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Eyrún Axelsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Skoðað húsnæði fyrir heimavist
Skoðað var húsnæðið að Bogaslóð 6, neðri hæð.
2. Skipan skólanefndar og skipting embætta
Í skólanefnd sitja sem aðalmenn: Elín Magnúsdóttir formaður, Gunnar Sigurjónsson varaformaður, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir. Varamenn eru Gísli Már Vilhjálmsson, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Stephen Robert Johnson, Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir.
3. Heimavist fyrir nemendur úr Öræfum
Farið yfir skoðunarferðina, sbr. 1. lið. Nefndarmönnum leist vel á húsnæðið. Rætt var um nettengingu, matmálstíma með fjölskyldunni og fleiri þætti sem snúa að dvöl nemenda á heimavist. Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að ganga til samninga við Halldór Birgisson, eiganda húsnæðisins um að leigja það næsta skólaár. Nefndin samþykkir að heimavistin sé eingöngu fyrir nemendur sem koma úr Öræfum enda daglegur skólaakstur í aðrar sveitir. Þá samþykkir nefndin að foreldrar þeirra barna sem rétt eiga á að nýta vistina staðfesti með undirskrift sinni að þeirra barn muni nýta vistina næsta skólaár.
4. Breytingar í leikskólum
Farið yfir minnisblað leikskólastjóranna vegna þessa máls. Snæfríður gerði grein fyrir þeirri vinnu sem er að baki og áætlunum eins og þær líta út í dag. Í minnisblaðinu kemur þetta meðal annars fram:
„Skipting er nokkuð jöfn á milli leikskólanna hvað varðar börn/barngildi og starfsfólk. - Biðlisti í dag er nánast enginn, þar eru aðeins örfá börn foreldra sem enn eru að hugsa málið og eiga eftir að ákveða á hvorn leikskólann þeir setja sitt barn. - Laus pláss eru á báðum leikskólum bæði fyrir og eftir hádegi. - Skipulagsbreytingarnar hafa engin áhrif á biðlista eða laus pláss, vitað var fyrirfram að í haust væri útlit fyrir fækkun barna á báðum leikskólunum. Vonandi breytist það eitthvað. - Breytingarnar munu taka einhvern tíma, hugsanlega 1-2 ár.”
Spurt var um hvers vegna farið var út í þær breytingar í leikskólunum sem nú eru orðnar að veruleika. Þar lögðu leikskólastjórarnir mesta áherslu á samfellu í námi nemenda og það að vera laus við að skipta um skóla.
Einnig var rætt um aukna samvinnu leikskólanna. Undir þessum lið var einnig farið yfir óskir leikskólans Krakkakots um að leggja niður morgunverð í skólanum og taka upp ávaxtabita, græmeti og fleira síðar um morguninn. Börnin myndu þannig borða sinn morgunverð áður en þau koma í leikskólann. Skólanefnd samþykkir að þetta verði reynt frá og með september nk.
Áhersla var lögð á góða kynningu meðal foreldra.
5. Önnur mál
· Gerð grein fyrir útboði á skólaakstri, akstursleiðum, fjölda bíla og fleira. Sex aðilar sóttu útboðsgögn.
· Staða í kennararáðningum. Ráðningum er að mestu lokið en ekki hefur verið gengið frá undanþágum fyrir alla starfsmenn sem ekki hafa fullgild kennararéttindi.
· Mötuneytismál fyrir Hafnar- og Heppuskóla. Gerð grein fyrir viðræðum við eigendur Kaffihornsins vegna næsta skólaárs.
Torfi sagði að skoða þurfi kostnaðinn við mötuneytið og einnig það að nemendur eins skóla borði á veitingastað sem notaður er sem matsölustaður, vínveitingahús og kosningaskrifstofa.
Sigríður lagði áherslu á úthýsingu og einnig að Kaffihornið leysi mötuneytisaðstöðu fyrir Heppuskóla. Sagði hún einnig að koma þurfi upp viðunandi aðstöðu til að matast í Hafnarskóla.
Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við Kaffihornið fyrir næsta skólaár á þeim grundvelli sem kynntur var af starfsmanni nefndarinnar.
· Fjallað um hvort setja eigi erindisbréf fyrir foreldraráð grunnskóla og farið yfir fyrirmynd að slíku erindisbréfi. Málið verður tekið upp þegar skólar hafa tekið til starfa.
· Lagt er til að fundartími nefndarinnar verði 3. miðvikudag í mánuði kl. 16:10.
· Nefndarmenn undirrituðu yfirlýsingu um þagnarskyldu.
Fundi slitið kl. 17:35


