Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 82
82. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, fimmtudaginn 24. maí 2006 kl. 16:10
Mætt voru Sigríður Kristinsdóttir,Elín Magnúsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Íris Gísladóttir Jóhann Morávek, Pálína Þorsteinsdóttir (í síma), Margrét Ingólfsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 81. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði og Tónskóla A-Skaft.
Jóhann gerði grein fyrir tillögum að skóladagatali Tónskólans. Samkvæmt því verður fyrsti kennsludagur 24. ágúst og síðasti kennsludagur 16. maí. Gert er ráð fyrir 15 – 16 tónleikum yfir skólaárið. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal Tónskólans.(Jóhann vék af fundi og þakkaði um leið samstarfið undanfarin 4 ár. Skólanefnd þakkaði sömuleiðis fyrir sig). Pálína fór yfir skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði sem gerir ráð fyrir skólasetningu 21. ágúst, skólaslitum 18. maí og sundkennslu eftir það til 31. maí. Gert er ráð fyrir fjórum stöfluðum dögum á skólaárinu. Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði. (Pálína vék af fundi og þakkaði fyrir samstarfið undanfarin 4 ár. Skólanefnd þakkaði sömuleiðis fyrir sig.)
3. Aukinn stuðningur í Nesjaskóla
Halldóra fór yfir málið. Sagði hún að gert væri ráð fyrir að annar tveggja núverandi stuðningsfulltrúa starfaði áfram á næsta skólaári. Vegna mjög erfiðra aðstæðna teldu skólastjórnendur hins vegar nauðsynlegt að bæta við 10 kennslustundum (vikustundum) til að auka stuðning við ákveðna nemendur. Skólanefnd leggur til að umrædd beiðni skólans verði samþykkt. (Halldóra vék af fundi, gagnkvæmar þakkir samstarfið.)
4. Nefndarálit stýrihóps við gerð skólastefnu
Sigríður fór yfir þá vinnu sem að baki er við gerð nýrrar skólastefnu og stöðuna eins og hún er í dag. Sagði hún það miður að ekki hafi tekist að ljúka við vinnu að skólastefnunni þannig að hægt hefði verið að samþykkja hana fyrir lok þessa kjörtímabil. Rætt var um nefndarálit stýrihópsins og sérálit Kristínar Gestsdóttur í stýrihópnum. (Margrét mætti á fundinn)
Undir þessum lið var einnig kynnt bréf starfsmanna leikskólanna þar sem segir meðal annars orðrétt: „Með bréfi þessu erum við að lýsa yfir óánægju okkar með framgang á ákvarðanatöku stýrihóps að skólastefnu Hornafjarðar um að fresta ákvarðanatöku um það hvernig stjórn og skipulag leik- og grunnskóla sveitarfélagsins verði háttað í framtíðinni.” Greint var frá afgreiðslu þessa bréfs í bæjarráði. Nefndarmenn voru því sammála að það hafi verið vonbrigði að ekki hafi tekist að ljúka vinnu við skólastefnuna fyrir lok kjörtímabilsins. Margrét taldi það stór mistök að ekki hafi verið nægt samband á milli stýrihóps og vinnuhópa. (Margrét vék af fundi)
5. Fagstjórar í grunnskólum
Tekið fyrir bréf skólastjóra Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla þar sem óskað er eftir að ráðnir verði 3 – 4 fagstjórar sem taki til starfa 15. ágúst 2006 og starfi til 31.05. 2007. Skólanefnd mælir með því að ráðnir verði fagstjórar enda er það í samræmi við þær niðurstöður sem náðst hafa við vinnu að gerð nýrrar skólastefnu.
6. Önnur mál
· Kynntur bæklingur, Starfskynnig og skyndihjálp, skipulag á vinnu nemenda í 10. bekk eftir samræmd próf.
· Elín gerði að umtalsefni fyrirspurn á framboðsfundi þar sem fram kom í svari eins framboðanna að spara mætti fimm milljónir með því sameina leikskólana undir eina stjórn. Velti hún fyrir sér hvernig sú niðurstaða hafi fengist.
· Rætt um styrki til foreldrafélaganna sem samþykktir hafi verið á fjárhagsáætlun fyrir 2006.
· Valdís leggur til að nemendur í 3. bekk Nesjaskóla fái hádegismat í Hafnarskóla á kynningardögum.
· Stefán þakkaði skólanefnd og áheyrnarfulltrúum fyrir samstarfið á kjörtímabilinu. Sigríður þakkaði fyrir samstarfið í nefndinni. Nefndi færði starfsmanni einnig þakkir.
Fundi slitið kl. 17:35


