Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 80
80. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 22. mars 2006 kl. 16:10
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Snorri Aðalsteinsson, Íris Gísladóttir, Rósa Valdimarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 79. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Málefni grunnskólanema í Öræfum, 8. – 10. bekk
Gerð grein fyrir fundi með foreldrum skólabarna sem haldinn var í Hofgarði þann 10. mars sl. Þar var foreldrum tilkynnt að samþykkt hafi verið að greiða kr. 10.000 á mánuði á yfirstandandi skólaári með þeim unglingum úr Öræfum sem ekki búa í heimavist. Einnig var greint frá samtölum við foreldra þeirra barna sem sækja skóla á Kirkjubæjarklaustri eftir fyrrgreindan fund. Á sameiginlega fundinum sem haldinn var í Öræfum kom fram að foreldrar höfðu hist á fundi áður en kom til þessa fundar og komist þar að eftirfarandi niðurstöðu:
1. Að 8. bekkur verði í Hofgarði
2. Að 9.-10. bekkur verði á Höfn ef fundið verður sómasamlegt úrræði í heimavistarmálum. Öræfingar vilja eindregið að börnin séu á Höfn og búi við sem sem heimilislegastar aðstæður.
3. Mikill þrýstingur frá Öræfum um að sveitarstjórnir í Skaftárhreppi og á Hornafirði ræði saman um möguleika á aukinni samvinnu í skólamálum og öðrum sviðum eftir aðstæðum.
4. Öræfingar gera sér grein fyrir að það komi upp staða þar sem sveigjanleika sé þörf, t. d. þegar eitt barn er í árgangi á unglingastigi og langt í skólasystkini af sama kyni. Skólanefnd felur starfsmanni sínum að vinna áfram í samræmi við ofangreindar tillögur heimamanna í Öræfum.
3. Valgreinar í Heppuskóla 2006 – 2007
Guðmundur fór yfir valblöð sem send höfðu verið með fundargögnum auk þess sem valhefti fyrir 10. bekk var afhent nefndarmönnum. Valmöguleikar nemenda eru fjölbreyttir bæði í list- og verkgreinum og bóknámsgreinum. Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni með það val sem boðið er upp á í Heppuskóla og töldu það spennandi fyrir nemendur. Spurt var um þá reynslu sem komin er af vali nemenda á fyrri árum. Sagði Guðmundur það hafa gengið vel, menn læra af reynslunni og breyta þar sem ástæða er til. Fram kom að þetta hefur verið kynnt í foreldraráði og valblöð yfirfarin af ráðinu.
4. Skóladagatal 2006 – 2007, fyrstu drög
Skóladagatalið er mjög í samræmi við dagatöl undanfarinna ára. Það sem greinir það helst frá fyrri tillögum er að nú eru hugmyndir um að safna saman þremur starfsdögum í mars 2007 og nýta þá til náms- og kynnisferðar kennara. Einnig var rætt um föstudagana 20. apríl og 18. maí árið 2007 sem eru stakir skóladagar á milli frídaga. Spurt hvort gefa ætti frí þá daga og kenna tveimur dögum lengur í júní. Guðmundi falið að kanna betur þennan möguleika með fyrrgreinda frídaga. Rætt var um hvaða áhrif þriggja daga lokun skóla (í mars) hefði á fjölskyldur og atvinnulíf, þetta þurfi að hafa í huga. Skólanefnd samþykkir að skóladagatal skólaársins 2006 – 2007 verði áfram rætt á næsta fundi.
5. Önnur mál
· Guðmundur dreifði 1. drögum að skipulagi skólastarfs nemenda í 10. bekk að loknum samræmdum prófum í vor.
· Valdís spurði um danskennslu. Kennarar eru væntanlegir eftir helgi upplýsti Rósa.
· Valdís spurði hvort ávaxta- og grænmetisdagar geti ekki einnig verið í Hafnarskóla eins og nú er í Nesjaskóla. Börnin taki þannig með sér þetta nesti áfram einu sinni í viku eins og gert er. Skólanefnd tekur undir þessa ábendingu.
Fundi slitið kl. 17:30


