Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 79
79. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 22. febrúar 2006 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Margrét Ingólfsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 78. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Málefni Hrollaugsstaðaskóla
Á 322 fundi bæjarráðs var eftirfarandi fært til bókar: „Rætt um rekstur og þróun í skólamálum á Hrollaugsstöðum. Umræður sköpuðust um framtíð Hrollaugsstaðaskóla. Bæjarráð vísar málinu til skólanefndar og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs jafnframt að boða fund með starfsmönnum og foreldrum nemenda skólans til að ræða framtíð hans.” Stefán greindi frá fundi með foreldrum skólabarna og starfsmönnum sem haldinn var þann 15. febrúar síðastliðinn og fór jafnframt yfir minnisblað frá fundinum. Þorbjörg fór einnig nokkuð yfir fyrri fundi með foreldrum barna í Suðursveit. Hún sagði að enginn kostur í stöðunni væri góður, hvorki að halda úti mjög fámennum skóla eða að vera með mjög langan skólaakstur. Einnig ræddi hún almennt um stöðu fólks í dreifbýli þegar kemur að þessum mikilvæga þætti sem skólaganga er. Staða byggðar þar sem enginn skóli er til staðar er einnig veik og spurning um vöxt hennar og viðgang. Staðan nú er hins vegar sú að almennt er reiknað með því í Suðursveit að skóli starfi ekki á Hrollaugsstöðum næsta skólaár, segir Þorbjörg. Þá lagði hún áherslu á að milda þurfi skólaaksturinn sem mest. Einnig ræddi hún þá hugmynd að ákvörðun nú leiddi ekki til endanlegra skólaloka í Suðursveit til frambúðar. Elín tók undir þau orð að skóli skipti hvert byggðarlag miklu máli. Einnig gerði hún að umtalsefni félagslega þáttinn og að hann vegi þungt. Þá tók hún undir þau orð að aksturinn verði sem hagkvæmsatur fyrir skólabörnin. Þorbjörg gerði að umtalsefni viðskilnað við stofnunina ef skóli lokar. Áfram verði þarna ýmis aðstaða, svo sem ljósritunaraðstaða, bókasafn og fleira sem nýst geti íbúum sveitarinnar. Guðmundur benti á að þéttbýlisskólarnir gætu t.d. nýtt hús og búnað þó að skólinn starfi ekki næstu ár. Skólanefnd tekur undir þau orð. Stefán lagði til að gögn skólans verði áfram geymd í skólanum.
Skólanefnd leggur til að skóli verði ekki starfræktur á Hrollaugsstöðum á næsta skólaári. Þau börn sem nú eru í skólanum sæki sitt nám í Nesjaskóla og Hafnarskóla. Skólanefnd telur að endurskoða megi þetta í framtíðinni ef breyting verður á búsetu í Suðursveit þannig að börnum á grunnskólaaldri, 1. – 7. bekk, fjölgi umtalsvert fram yfir það sem nú er. Jafnframt tekur skólanefnd undir óskir foreldra skólabarna með búsetu í Suðursveit að sérstakur skólabíll aki með þau börn í Nesjaskóla og Hafnarskóla með Flatey á Mýrum sem austasta viðkomustað. (Þorbjörg vék af fundi)
3. Breyting á bekkjarskipan í Heppuskóla 2006 – 2007
Lagt er til af skólastjóra Heppuskóla að núverandi 9. bekkur verði í tveimur bekkjardeildum skólaárið 2006 – 2007 en ekki þremur eins og nú er. Í þessum árgangi voru í upphafi liðlega 50 nemendur en eru nú 47. Samfara þessari breytingu á bekkjarskipan eigi sér einnig stað fjölgun tíma í íslensku um samtals 2 tíma á viku í 10. bekk, kennslustundum námsráðgjafa fjölgi um 6 stundir á viku og fjölgun valgreinastunda um alls 3 kennslustundir. Samkvæmt meðfylgjandi yfirliti fækkaði kennslustundum í Heppuskóla við þessa breytingu úr 318,5 stundum á yfirstandandi skólaári í 293,5 kennslustundir skólaárið 2006 – 2007. Skólanefnd samþykkir þessar tillögur skólastjóra Heppuskóla.
Jafnframt var tekið fyrir undir þessum lið bréf undirritað af skólastjórum Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla þar sem óskað er eftir að hluti þeirra kennslustunda sem fækkar í Heppuskóla „verði nýttur til að ráða fagstjóra og til vinnu við að samræma skólanámskrár skólanna. Óskað er eftir að ráðnir verði 3 – 4 fagstjórar sem taki til starfa 15. ágúst 2006.” Skólanefnd er sammála því að farið verði í þessa vinnu en samþykkir að fresta endanlegri ákvörðun í þessu máli til næsta fundar.
4. Skipulag náms í 10. bekk á vorönn 2006
Tekið var fyrir bréf frá Heppuskóla þar sem fjallað er um skipulag náms í 10. bekk á vorönn 2006. Þar er gert ráð fyrir að eftir að samræmdum prófum lýkur verði dregið úr hefðbundinni kennslu og í staðinn komi meðal annars eftirtalin atriði: Námskeið í skyndihjálp, fulltrúar fyrirtækja heimsæki skólann og kynni starfsemi fyrirtækjanna, kynning á starfsemi sveitarfélagsins, heimsóknir í fyrirtæki, kynning frá verkalýðsfélaginu, kynning frá Svæðisvinnumiðlun Austurlands, fræðsla fjármálastofnana fyrir nemendur, kynning á frumkvöðlasetrinu og þeirri vinnu sem þar fer fram.
Skólanefnd Hornafjarðar styður þær breytingar sem gerðar eru á kennsluskipan í 10. bekk að vori. Nefndin telur það skólastarf sem fram fer að samræmdum prófum loknum mikilvægan þátt í starfi skólans og undirbúningi nemenda fyrir framhaldsnám. Skólanefndin vill taka af allan vafa um að öllum nemendum er skylt að mæta í þessa kennslu sem aðra. Nefndin telur engin rök mæla með því að nemendur í 10. bekk njóti einhverrar sérstöðu hvað leyfi varðar að vori. Nemendur eru skólaskyldir og ber að mæta í skóla.
5. Viðmiðunarreglur Sambands íslenskra sveitarfélaga um greiðslur vegna leikskóladvalar barna utan lögheimilissveitarfélags
Vísað til skólanefndar á fundi bæjarráðs þann 9. febrúar sl. Eins og fram kemur í meðfylgjandi gögnum er hér um viðmiðunarreglur að ræða og er hverju sveitarfélagi í sjálfsvald sett að nýta þessar viðmiðanir eða aðrar sem þau koma sér saman um. Skólanefnd leggur til að farið verði eftir þessum viðmiðunarreglum þegar samþykkt liggur fyrir um leikskólagöngu utan sveitarfélagsins.
6. Önnur mál
· Á fundi bæjarráðs þann 15. febrúar var eftirfarandi bókað: „Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs umboð til að framlengja starfssamning við skólastjórnendur í Hafnarskóla um eitt ár.”
· Styrkir til fjölskyldna vegna námskeiða sem haldin eru fyrir börn utan lögbundins skólastarfs.
Greint frá því að af og til berist skólaskrifstofu beiðni um að styrkja slíkt nám. Sem dæmi má nefna beiðni um styrk vegna námskeiða fyrir einstaklinga með sértæka lestrarörðugleika. Námskeið sem börn sækja án afskipta eða óska viðkomandi grunnskóla. Ekki er gert ráð fyrir slíkum styrkjum í fjárhagsáætlun skóla-skrifstofunnar. Skólanefnd leggur ekki til að veittir verði styrkir vegna námskeiða sem eru utan lögbundins skólastarfs.
· Greint frá því að samræmd próf í íslensku í 4. og 7. bekk verði haldin 19. október 2006 og í stærðfræði 20. október, sbr. meðfylgjandi gögn.
· Greint frá því að samræmd próf í íslensku, ensku, dönsku, samfélagsgreinum, náttúrufræði og stærðfræði í 10. bekk vorið 2007 verði frá 2. – 9. maí, sbr. meðfylgjandi gögn.
· Greint frá því að lagt hafi verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á grunnskólalögum, sbr. meðfylgjandi gögn.
· Greint frá ósk skólastjóra Hafnarskóla um að taka starfsdag þann 21. apríl til að fara á ráðstefnuna „Að sá lífefldu fræi” og tilheyrandi námssmiðjur sem haldin verður á Akureyri þann 21. og 22. apríl nk. Í stað þess verði kennt þann 30. maí en þá er einnig kennt í Heppuskóla samkvæmt samþykktu skóladagatali. Skólanefnd samþykkir þessa beiðni enda slík ráðstefna líkleg til að koma skólastarfinu vel.
· Greint frá nýjum heimasíðum leikskólanna, www.leikskolinn.is/longuholar og www.leikskolinn.is/krakkakot.
· Gerð grein fyrir svörum menntamálaráðneytisins við fyrirspurn á 78. fundi skólanefndar. Svarið afhent skólanefndarmönnum.
· Leikskólar loka í sumar frá 10. 7. – 10. 8.
Fundi slitið kl. 18:30


