Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 76
76. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 26. október 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Íris Gísladóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 75. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Farið yfir útsend gögn sem voru rekstrarrammar fyrir alla skóla og tengdar stofnanir, óskir forstöðumanna um stofnbúnað og viðhald lóða og húsa og ábendingar um nauðsynlegar breytingar á aðgengi að skólum.
Einnig var farið yfir tillögur tækni- og umhverfissviðs vegna viðhalds fasteigna, dags. 24.10. 2005.
Skólanefnd leggur til að fjármagn til viðhalds fasteigna, þar á meðal skólahúsnæðis, og leigutekjur verði að öllu leyti færð undir eignasjóð, ekki einstaka stofnanir. Rætt var um sjálfstæði stofnana til að nýta það fé sem veitt er til þeirra.
Rætt hvort skoða ætti þá hugmynd að hver stofnun fái til rekstrarins ákveðna heildarupphæð sem stjórnendur sæju svo um að ráðstafa til rekstrarins í heild, þ.e. kennslukostnað og allan annan rekstur. Viðhaldsfé sem nýtt er til að framfylgja ákveðnum reglugerðum, svo sem vegna brunamála, aðgengis fyrir alla o. fl., þurfi einnig að endurskoða.
Lögð var áhersla á í þessari umræðu að fram komi rauntölur til rekstrar skólanna og meðal annars bent á skólaakstur (tekjur og gjöld), viðhaldsfé o.fl. í þessu samhengi.
Skólanefnd leggur til að við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2006 verði ákveðið að leggja krónur 300.000.- til eflingar á foreldrastarfi í leik- og grunnskólum. Fénu verði veitt til starfandi foreldrafélaga. Jafnframt er hvatt til að foreldrafélög starfi við alla skóla sveitarfélagsins.
Íris greindi frá fundi með fulltrúa frá Heimili og skóla þar sem m.a. var lagt til að stofnað yrði svæðaráð allra foreldrafélaga og foreldraráða við grunnskólana í sveitarfélaginu. (Matthildur vék af fundi)
3. Önnur mál
· Rætt um breytingar á starfsmannamálum í Hafnarskóla.
Þórgunnur sagðist vera sátt við hvernig kennaramál leystust eftir að einn kennari hvarf í annað starf.
· Rætt um vinnu við skólastefnu. Fram kom að haldnir hafa verið fundir í vinnuhópum, fundað hefur verið með starfsmönnum skólanna og með foreldrum. Fram hafa komið fjölmargar ábendingar og tillögur sem nýtast munu vel við úrbætur og stefnumótun í skólamálum. Þórgunnur greindi frá væntanlegum foreldradegi í skólanum þar sem m.a. verði spurt um væntingar til nýrra skólastefnu. Þá lagði hún áherslu á mikilvægi framkvæmdaáætlana samfara nýrri skólastefnu.
Friðrik benti á að ekki liggi rökstuðningur fyrir hinum fjölmörgu hugmyndum sem fram hafa komið á fundunum.
Taldi hann það galla og tók Margrét undir þá skoðun.
· Farið yfir yfirlit um fjölda nemenda í grunnskólum, þróunina undanfarin ár og spá um nemendafjölda til 2011.
4. Einstaklingsmál
Fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið kl. 17:50


