Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 75
75. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 28. september 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Íris Gísladóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir 74. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Heimavist í Nesjum, staða mála
Fram kom að nú eru 2 nemendur í heimavist af 12 nemendum á unglingastigi búsettir í Suðursveit og Öræfum. Aðrir búa á heimilum á Höfn eða sækja skóla utan lögheimilis-sveitarfélags. Farið var yfir gögn sem send voru í tölvupósti til fundarmanna þann 27. sept. Gögnin innihalda upplýsingar af samráðsfundum með foreldrum og umræður og ákvarðanir skólanefndar um heimavistarmál og skólagöngu unglinga sem búsettir eru í Öræfum og Suðursveit frá 6. október 1999 til 16. mars 2005. Samtals hafa þessi mál verið til umræðu á 17 bókuðum fundum skólanefndar auk funda í starfshópum. Einnig var greint frá fundum starfsmanna í Heppuskóla með foreldrum í Suðursveit og Öræfum, haldnir 1 – 2 á ári. Af umræðum má ráða að breytinga er þörf á þessum málum. Einnig var minnt á samþykkt skólanefndar á fundi þann 16. mars 2005 um að hefja kennslu á unglingastigi (8. bekk fyrsta skólaárið) við Grunnskólann í Hofgarði skólaárið 2005 – 2006. Samþykkt að starfsmenn skoði þessi mál áfram og komi með tillögur.
3. Skólanámskrár
Gerð var grein fyrir umræðum á fundi skólastjórnenda um skólanámskrár og samræmingu á þeim. Einnig var á þeim fundi rædd vinna við skólanámskrár í samhengi við vinnu að nýrri skólastefnu. Hægt er að nálgast skólanámskrár fjögurra leik- og grunnskóla á heimasíðu sveitarfélagsins og stefnt að því að þar verði námskrár allra skólanna. Guðmundur gerði að umtalsefni samræmingu skólanámskráa og velti upp hugmyndinni hversu samræmdar þær eigi að vera. Skólanefnd sammála um að umfjöllun um skólanámskrár verði hluti af vinnu við skólastefnu.
4. Skólastefna Hornafjarðar
Eiginleg vinna við skólastefnuna hófst með námskeiði í stefnumótun á vegum IMG – ráðgjafar þann 21. september síðastliðinn. Einnig hafa stjórnendur allra vinnuhópa sem koma að gerð stefnunnar fundað til að samræma vinnubrögð. Áætlað er að allir vinnuhópar komi til fundar í Hafnarskóla þann 3. október og eftir það verði unnið eftir skipulagi sem samþykkt hefur verið af stjórnendum hópanna. Skólanefnd samþykkir samhljóða breytingar á upphaflegu vinnuskipulagi að skólastefnu þannig að fulltrúum í grunnskólahópi fjölgi úr 6 í 7 og og stýrihópi úr 3 í 5 fulltrúa.
5. Önnur mál
· Kynnt bréf menntamálaráðuneytisins, dags. 30. ágúst 2005, „Leiðbeiningar og eyðublað vegna umsóknar um undanþágu frá töku samræmdra prófa í 4. og 7. bekk grunnskóla.”
· Kynnt bréf menntamálaráðuneytisins, dags. 14. september 2005, „Dagur borgaravitundar og lýðræðis 2005”.
· Kynnt bréf Landsvirkjunar, dags. 16.09. 2005, „Verkefni um orkumál – samkeppni í grunnskólum”. Um er að ræða samkeppni þar sem nemendum verður boðið að vinna verkefni tengd orkumálum. Undir þessum lið kynnti Guðmundur fyrirhugaða ferð með nemendur í 8. bekk á virkjanasvæði Kárahnjúka og upplýsingamiðstöð í Végarði.
· Kynnt bréf Kolbrúnar Halldórsdóttur, alþingismanns, dags. 22. september 2005, sem hvetur til þess að skólastjórar grunnskóla á Íslandi hafni þátttöku í fyrrgreindri samkeppni.
· Þórhalla spurði um akstur með leikskólabörn í skólabílum. Stefán gerði grein fyrir hvernig því væri fyrir komið og hvers vegna.
(Elín, Íris og Rósa viku af fundi)
6. Einstaklingsmál
Færð í trúnaðarbók.
Fundi slitið kl. 18:10


