Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 73
73. fundur
Fundur haldinn í Ráðhúsinu, miðvikudaginn 22. júní 2005 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir 72. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skólahald í Hrollaugsstaðaskóla 2005 - 2006
Þorbjörg gerði grein fyrir fundi með foreldrum og afstöðu þeirra. Einnig var farið yfir samantekt framkvæmdastjóra sviðsins frá fundi með foreldrum grunnskólabarna í Suðursveit þann 8. júní 2005 og minnisblað Þorbjargar Arnórsdóttur skólastjóra, ?Skólahald að Hrollaugsstöðum 2005 ? 2006?, dagsett 12. júní 2005. Einnig gerð grein fyrir bókun bæjarráðs þann 16. júní sl. en þar segir orðrétt: ?Bæjarráð er ekki með áform um breytingar á skólahaldi næsta skólaár miðað við núverandi forsendur en leggur áherslu á að mannahald og kennslustundafjöldi verði í samræmi við breyttar þarfir skólans.? Skólanefnd tekur undir bókun bæjarráðs.
3. Endurskoðun skólastefnu ? tillögur að vinnutilhögun
Farið yfir drög framkvæmdastjóra sviðsins, dagsett 8. júní 2005. Í drögunum eru kynntar hugmyndir um vinnutilhögun við gerð nýrrar skólastefnu, skiptingu í hópa þar sem lagt er til að eftirfarandi eigi fulltrúa í vinnuhópum: kjörnir fulltrúar í sveitarstórn og skólanefnd, starfsmenn fræðslu- og félagssviðs, skólastjórnendur, kennarar, og foreldrar skólabarna.
Skólanefnd samþykkir fram lagðar tillögur framkvæmdastjóra með ákveðnum breytingum. Nefndin leggur áherslu á að formleg vinna við gerð skólastefnu hefjist strax í byrjun næsta skólaárs og verði lokið eigi síðar en í febrúar 2006.
4. Bréf kennara Nesjaskóla
Í bréfinu er gerð grein fyrir vinnu kennara með skólabörnum á matmálstímum og greiðslu sem innt er af hendi fyrir þessa vinnu. Í niðurlagi bréfsins segir orðrétt: ?Starfsfólk Nesjaskóla fer þess á leit að haldið verði óbreyttu fyrirkomulagi þessara mála, þ.e. að þeir greiði ekki fyrir matinn og fái áfram greitt fyrir gæslu.? Skólanefnd leggur áherslu á samræmingu á milli skólanna og tekur ekki endanlega afstöðu til málsins á þessum fundi.
5. Önnur mál
? Svar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna bókunar skólanefndar um breytta skipan náms til stúdentsprófs. Fram kemur í svarinu að erindinu hafi verið vísað til skólamálnefndar sambandsins. Ekki hafa borist viðbrögð frá menntamálaráðuneytinu og Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi sem einnig fengu senda bókun skólanefndar.
? Kynnt bréf menntamálaráðuneytisins ? Dagur borgaravitundar og lýðræðis. Þar segir í upphafi bréfs: ?Menntamálaráðuneytið tekur þátt í verkefni Evrópuráðsins um hvernig efla megi borgaravitund og lýðræði í skóla- og æskulýðsstarfi
? Kynnt bréf menntamálaráðuneytisins um átak í greinabundinni menntun grunnskólakennara. Um er að ræða átak í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði sem standi í 3 ? 4 ár.
? Kynntar viðræður við Kynnisferðir um skólaakstur skólaárið 2005 ? 2006.
? Kynnt bréf undirritað af Huldu Laxdal Hauksdóttur aðstoðarskólastjóra í Nesjaskóla, dagsett 20. júní 2005. Í bréfinu segir orðrétt: ?Á kennarfundi sem haldinn var í Nesjaskóla 9. júní 2005, var ákveðin breyting á fyrirkomulagi tímasetninga kennslustunda og frímínútna. Þessar tilfæringar stytta tímann frá því að nemendur koma í skólann og fram að hádegismat. Kennurum finnst því ekki ástæða til að nemendur komi með mikið nesti að heiman og leggja til að þeir fái í staðinn ávaxta og/eða grænmetisbita frá mötuneyti skólans. Óhjákvæmilega hækkar mötuneytisgjaldið við þessar breytingar og er gert ráð fyrir að þessi hækkun verði kr. 40, - á dag. Miðað við matarverð í júní 2005, sem er kr. 253,- þá yrði gjaldið kr. 293,-? Skólanefnd leggur áherslu á að áður en breyting þessi verði ákveðin þá verði hún kynnt fyrir foreldrum og leitað eftir samþykki þeirra.
? Gerð grein fyrir svörum skólastjórnenda vegna fyrirspurnar um veikindi og forföll starfsmanna skólanna.
? Gerð grein fyrir niðurstöðum nefndar sem falið var að gera úttekt á mötuneytum sveitarfélagsins.
? Ólöf Þórhalla lýsti yfir ánægju með að skólaslit þéttbýlisskólanna þriggja færu allar fram í sama húsi. Fram kom hins vegar gagnrýni á tímasetningar.
? Valdís lýsti yfir óánægju með að skólabílar færu af stað áður en börnin væru búin að koma sér fyri í sætum. Var undir þetta tekið.
? Arnbjörgu Stefánsdóttur færð kveðjugjöf skólanefndar og henni þökkuð vel unnin störf og samstarfið á undangengnum árum. Arnbjörg þakkaði jafnframt fyrir sig.
Fundi slitið kl. 17:55


