Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 72

72. fundur

Skólanefnd Hornafjarðar 72. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsinu, þriðjudaginn 23. maí 2005 kl. 16:20

Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Íris Gísladóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Eygló Illugadóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Stefán Ólafsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerðir 70. - 71. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

2. Skipulagsbreytingar á leikskólum sveitarfélagsins - greinargerðir leikskólastjóra

Farið yfir greinargerð Snæfríðar Svavarsdóttur, greinargerð Margrétar Ingólfsdóttur og minnisblað Stefáns Ólafssonar frá kynningarfundi um málið sem haldinn var í leikskólanum Krakkakoti 2. maí sl. Skólanefnd er því sammála að ákvörðun um framtíðarskipulag leikskólanna tengist vinnu við nýja skólastefnu sveitarfélagsins. Skipulag leikskólanna verði því niðurstaðan af þeirri vinnu.

3. Tillaga leikskólastjóranna um breytt fyrirkomulag – skólaliðar í stað ræstingafólks

Snæfríður fór yfir tillögur að breyttu skipulagi sem felst í því að í stað ræstingafólks verði ráðnir skólaliðar, einn á hvorum leikskóla. Þeir hefðu með höndum ræstingu samkvæmt ákv. skipulagi og myndu einnig aðstoða nemendur í leik og starfi. Skólanefndin leggst ekki gegn skipulagsbreytingum af þessu tagi ef þær verða til að bæta leikskólastarfið enda rúmist þessar breytingar innan fjárhagsáætlunar skólanna. (Matthildur vék af fundi)

4. Umsókn um áframhaldandi stöðu aðstoðarkennara í Hafnarskóla

(Arnbjörg mætti á fund) Arnbjörg fór yfir málið og greindi frá reynslunni af þessu fyrirkomulagi á yfirstandandi skólaári. Þetta fyrirkomulag hafi styrkt einstaklingsmiðað skólastarf en þó fyrst og fremst leitt til þess að hægt var að koma til móts við þá nemendur sem þurftu á stoðþjónustu að halda. Lagði hún áherslu á að aðstoðarkennari sé menntaður til starfa með nemendum og nýtist því þeim nemendum sem hann vinnur með betur en ófaglært starfsfólk sem ráðið hefur verið til starfa í grunnskólum. Þá hafi tilvist þessara tveggja aðstoðarkennara minnkað útgjöld vegna forfallakennslu um 1.6 – 2 milljónir króna í skólanum þar sem þessir tveir aðstoðarkennarar hafi tekið að sér forföll í viðkomandi bekkjum. Skólanefnd mælir með að þetta skipulag verði áfram næsta vetur enda hafi reynslan af því verið mjög góð á yfirstandandi skólaári. (Snæfríður vék af fundi)

5. Staðan í kennararáðningum fyrir næsta skólaár

Fullmannað er í flestar stöður fyrir næsta vetur að öðru leyti en því að enn vantar sund- og íþróttakennara í Nesjaskóla og Heppuskóla. Í Hafnarskóla fara ráðningarmál að nokkru eftir því hvaða afgreiðslu ósk um aðstoðarkennara fær. Nú eru 76,2 % kennarra með full kennsluréttindi, 14,3 % með nám á háskólastigi og eru flestir í kennsluréttindanámi og 9,5 % með framhaldsskólanám eingöngu. Rætt var einnig um ráðningamál kennara og hvort bera eigi ráðningar almennt undir skólanefnd. Formaður skólanefndar taldi að það kunni t.d. að eiga við þegar um ráðningu leiðbeinenda er að ræða. Vitnað var meðal annars í lög nr. 86 frá 1998, lög um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara ....... (Arnbjörg vék af fundi)

6. Breytt skipan náms til stúdentsprófs

Skólanefnd Hornafjarðar telur að skólamál eigi alltaf að vera til umfjöllunar og í stöðugri endurskoðun. Því telur skólanefndin að þegar uppi eru svo viðamiklar áætlanir um breytingar á skólamálum, sem breytt skipan náms til stúdentsprófs er, eigi allir sem tengjast þessum málaflokki að koma að umræðum um breytingarnar. Stytting framhaldsskólans úr fjórum árum í þrjú byggist meðal annars á því að flytja á hluta af námsefni framhaldsskólans til grunnskólans. Skólanefndin hvetur til þess að áður en lengra verður haldið með undirbúning þessa fyrirhugaða flutnings verði lögð áhersla á eftirfarandi: Fram fari rækileg kynning sem nái til allra þeirra er málið varða, svo sem starfsmanna grunnskólanna, sveitarstjórnarmanna og foreldra grunnskólabarna. Þessa kynningu hefur algjörlega skort. Fyrirhugaður flutningur verði kostnaðarmetinn, bæði vegna nauðsynlegrar endurmenntunar kennara og sjálfrar kennslunnar. Það er óásættanlegt að breytt skipan leiði til aukins kostnaðar fyrir sveitarfélögin sem augljóst virðist vera samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Hvort og þá hvaða áhrif þessi breyting kann að hafa á faglegt starf í grunnskólum. Kannað verði sérstaklega hvaða áhrif umræddar breytingar kunna að hafa á fámenna skóla. Hvort og þá hvaða áhrif þessi breyting kann að hafa á einstakar námsleiðir á framhaldsskólastigi og undirbúning fyrir háskólanám. Breytt námsskipan til stúdentsprófs verði ákveðin í kjölfar þessarar vinnu en ekki fyrirfram. Samþykkt þessi verður send til menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

7. Önnur mál

Rafræn innritun nýnema í framhaldsskóla vorið 2005 Greint frá ákvörðun menntamálaráðuneytisins um að nemendur sem eru að ljúka 10. bekk í vor sæki um skólavist í framhaldsskólum á netinu. Auglýsingar og kostun í skólum, samþykkt stjórnar Heimilis og skóla Kynnt samþykkt stjórnar Heimilis og skóla frá 19. mars 2005 sem beina þeim tilmælum til sveitarfélaga í landinu að þau setji sér stefnu um auglýsingar og kostun í skólum sem gildi fyrir alla skóla í viðkomandi sveitarfélagi.

Greint frá tilboði frá IMG með milligöngu Fræðslunets Austurlands um námskeið í stefnumótunarvinnu. Skólanefnd leggur áherslu á að haldið verði námskeið af þesu tagi hver sem fenginn verður til þess.

Fundi slitið kl. 18:40




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótt- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica