Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð Skólanefndar

39. fundur

Fundur haldinn í Heppuskóla og ráðhúsinu, miðvikudaginn 3. apríl 2002 kl. 16.10

Mætt voru: Egill Jón Kristjánsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Guðbjörg Ómarsdótir, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Magnús J. Magnússon, Ingibjörg Jónasdóttir, Sigurður Kr. Sigurðsson, Stefán Ólafsson.



Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:



1. Kynning á foreldrakönnun í Heppuskóla

Guðmundur Ingi og Magnús gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum í foreldrakönnun sem framkvæmd var í skólanum á foreldradegi þann 22. febrúar. Könnunin er hluti af mati á skólastarfi sem öllum skólum ber að sinna. Niðurstöður voru almennt jákvæðar fyrir skólann. Voru fundarmenn ánægðir með könnunina og það brautryðjendastarf sem skólinn ynni að á þessu sviði (Magnús og Guðmundur viku af fundi)



2. Tillaga þriggja manna starfshóps

Á 38. fundi skólanefndar, haldinn 20. febrúar 2002, var skipaður þriggja manna starfshópur sem í sitja þær Ingunn Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Guðný Svavarsdóttir. Hlutverk starfshópsins var að skoða ásamt framkvæmdastjóra sviðsins möguleika á því að flytja kennslu nemenda í 4. bekk úr Hafnarskóla í Nesjaskóla frá og með næsta skólaári. Var þetta gert með hliðsjón af fram komnum óskum foreldraráðs Nesjaskóla.



Þriggja manna starfshópur leggur eftirfarandi samþykkt sína fyrir skólanefnd:

“Allar breytingar á skipan skólamála kalla á vandaðan undirbúning, gott samráð við starfsfólk og mikilvægi þess að ná almennri sátt um breytingarnar. Þá þarf það og að liggja fyrir að breytingarnar leiði af sér framfarir fyrir skólastarfið í heild.

Flutningur á einum bekk á milli skóla er ekki einangrað mál heldur snertir allt starf hins þrískipta grunnskóla. Í viðtölum við skólastjórnendur í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla kom skýrt fram að full ástæða sé til að skoða vandlega ýmsa þætti í rekstri og skipulagi skólanna. Einkum var þeim ofarlega í huga faglegt samstarf og betri árangur í skólastarfi. Jafnframt kom fram sú skoðun að full ástæða væri til að skoða nánar ýmsa þætti er varða fyrirkomulag við stjórnun skólanna þriggja. Vegna samstarfs grunnskólanna og Tónskólans þarf einnig að huga vel að þeim áhrifum sem breytingar á skipulagi kunna að hafa á fyrirkomulag tónlistarkennslu.

Sú þrískipting grunnskólans sem við byggjum á er að ljúka sínu 6. skólaári. Á þessum tíma hafa komið fram bæði kostir þessa skipulags og ókostir. Næsta verkefni í skólamálum er að lagfæra ókostina og treysta betur það sem vel hefur tekist til með. Skólanefnd felur starfsmönnum skólaskrifstofu ásamt skólastjórnendum Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla að vinna áfram að skoðun á samstarfi skólanna þriggja og skipulagi stjórnunar með það að leiðarljósi að ná fram bættum árangri faglega og fjárhagslega.

Fara þarf fram nákvæm skoðun og úttekt á starfsemi skólanna áður en teknar verða ákvarðanir um flutning. Slík úttekt tekur meiri tíma en svo að henni verði lokið fyrir vorið. Skólanefnd telur því hvorki tímabært né æskilegt að flytja kennslu nemenda í 4. bekk úr Hafnarskóla í Nesjaskóla strax næsta vetur.”

Skólanefndarmenn voru allir sammála ofangreindri samþykkt starfshópsins.



3. Starfsmannamál

Eins og staðan er núna vantar 4 kennara í Hafnarskóla og 1 Heppuskóla.


4. Önnur mál

· Greint frá vinnu við verkefnið skólaskóga og samvinnu við Lionsklúbba staðarins um væntanlegt skógræktarsvæði.

· Greint frá umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla. Sótt var um styrk til þriggja verkefna sem voru “Lífsleikni fyrir kennara mið- og unglingastigs”, “Námskeið í náttúrufræði fyrir kennara yngri barna” og “Skipulögð kennsla og vinnubrögð”. Öll verkefnin hlutu styrk og nemur styrkupphæð samtals krónum 630.000.



Fundi slitið kl. 18:05


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica