Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar
44. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 20. nóvember 2002 kl. 17.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Þorvaldur J. Viktorsson, Hlíf Brynja Baldursdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Heimsókn í Heppuskóla
Skoðunarferð um skólann hófst klukkan 16:30.
Skólastjóri, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, sýndi fundarmönnum húsakynni Heppuskóla. Lagði hann einkum áherslu á breytingar á skólastofum í kjölfar væntanlegs flutnings á smíðastofu. Með þeim flutningi og tilheyrandi breytingum, svo sem að taka núverandi smíðastofu undir almenna kennslu, mætti á margan hátt bæta verulega kennslustofur til hagsbóta fyrir nemendur og starfsfólk. Einnig var farið yfir nauðsynlegt viðhald og kom fram í ræðu Guðmundar að leki í húsinu eftir síðustu aðgerðir væri hverfandi lítill. Skólanefnd leggur áherslu á að gerðar verði nauðsynlegar breytingar og lagfæringar á Heppuskóla. Þorvaldur benti á nauðsyn þess að gera áætlun um viðhald og lagfæringar á húsnæði sveitarfélagsins og ljúka þeim fyrir næsta skólaár. Taka eitt húsnæði fyrir í einu og ljúka því. Var undir þetta tekið. Benti Þorvaldur einnig á að verulega skorti á viðhald í Nesjaskóla og fleiri skólum.
2. Fundargerð 43. fundar
Engar athugasemdir gerðar
3. Fjárhagsáætlun 2003
Farið yfir útsend gögn. Fyrir utan breytingar á launum og húsnæðiskostnaði er ekki gert ráð fyrir að rekstrarrammar hækki á milli ára. Óskir forstöðumanna leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla um stofnbúnað og endurbætur voru einnig ræddar. (Þóra vék af fundi)
4. Einstaklingsmál
Færð í trúnaðarbók.
5. Önnur mál
a) Niðurstöður á samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk Hafnarskóla. Um er að ræða normaldreifðar einkunnir þar sem landsmeðaltal er ávallt 5.0.
4. bekkur 7. bekkur
Íslenska 5,8 5,1
Stærðfræði 4,8 4,9
Þessar niðurstöður voru ræddar og sérstaklega bent á eftirtektarverðan árangur 4. bekkinga í íslensku. Stefán fjallaði stuttlega um samantekt sem hann hefur unnið á samræmdum prófum allt frá árinu 1982.
b) Afhent yfirlit yfir árganga frá 1987 – 2001. Í leikskólum og leikskóladeildum sveitarfélagsins eru 157 börn og 425 börn eru í fimm grunnskólum. Nemendur sem stunda sitt nám í grunnskólum utan sveitarfélagsins eru samtals 6.
c) Kennaraskrá í nóv. 2002
Samtals Hlutfall
Kennarar með full kennsluréttindi 27 62,8%
Kennarar í réttindanámi 8 18,6%
Kennarar án kennsluréttinda 8 18,6%
Í skránni eru ekki þeir kennarar sem eru í minna en 30% starfshlutfalli. Samtals eru þeir þrír, þar af tveir í réttindanámi.
d) Sigríður lagði til að niðurgreiðslur á skólamáltíðum allra grunnskólanna verði samræmdar.
e) Rætt um lengda viðveru og framtíð hennar.
Fundi slitið kl. 19:30


