Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar
45. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 18. desember 2002 kl. 17.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Formaður bauð Ólöfu Þórhöllu Magnúsdóttur velkomna í skólanefnd. Einnig kom fram að Elín Magnúsdóttir hefur tekið sæti aðalmanns, var áður varamaður.
1. Fundargerð 44. fundar
Engar athugasemdir gerðar
2. Fjárhagsáætlun 2003
Farið yfir heildaryfirlit yfir rekstur og framkvæmdir sveitarfélagsins á sviði fræðslumála. Einnig farið yfir drög að viðhaldsáætlun fyrir skóla sveitarfélagsins og áætlanir um stofnbúnað.
3. Námskeið fyrir skólanefnd
Stefán greindi frá hugmyndum um námskeið fyrir skólanefndarmenn. Jón Hjartarson, forstöðumaður Fræðslunets Suðurlands, hefur lýst sig reiðubúinn að koma til Hornafjarðar með slíkt námskeið. Samþykkt að halda þetta námskeið sem fyrst.
4. Önnur mál
· Kynntur var undirskriftarlisti foreldra sem mótmæla hækkun á leikskólagjöldum. Jafnframt var kynntur samanburður á gjaldskrá leikskóla í 24 sveitarfélögum. Þegar lögð eru saman gjöld fyrir vistun, hádegisverð og hressingu kemur fram að 7 þessara sveitarfélaga eru með lægri gjaldskrá en Hornafjörður og 16 með hærri.
· Kynnt bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem greint er frá samræmdum prófum í 10. bekk árið 2003. Prófað verður í íslensku, náttúrufræði, ensku, samfélagsgreinum, dönsku og stærðfræði. Fyrsta próf verður 2. maí og það síðasta 12. maí.
· Kynnt bókun á fundi bæjarráðs þann 27. nóvember sl. vegna lengdrar viðveru. Lýst var yfir ánægju með þessi málalok.
Fundi slitið kl. 18:30


