Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 65
65. fundur
Fundur haldinní ráðhúsinu, Miðvikudaginn 17. nóvember 2004 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Friðrik Ingvaldsson, Valdís Kjartansdóttir, Sævar Þór Gylfason, Íris Gísladóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Þorvaldur Jón Viktorsson, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 64. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Reglur um tryggingar skólabarna
Farið yfir drög, unnin af skólastjórnendum. Sigríður greindi frá athugasemdum við fyrirliggjandi drög að reglum. Þorvaldur lagði áherslu á að kynna þurfi vel fyrir foreldrum, bæði gildandi tryggingar, tryggingaskilmála og þær reglur sem samþykktar verða um greiðslur þar að lútandi. Skólanefnd er samþykk því að lokið verði þessari vinnu og reglur kynntar fyrir skólanefnd. Um verði að ræða samræmdar reglur fyrir leikskóla- og grunnskólabörn.
3. Fjárhagsáætlun 2005
Farið yfir útsend gögn, rekstrarramma skólanna fyrir árið 2005. Stefán greindi frá því að lítið væri um að forstöðumenn óskuðu eftir breytingum á fyrirliggjandi römmum. Einnig greindi hann frá sérstökum óskum skólastjóra Hafnarskóla um aukið tímamagn, sem einkum stafar af námsferðalögum o. fl. með nemendur á vordögum, óskum skólastjóra Heppuskóla um að stuðningsfulltrúar verði með heilsárs ráðningu og óskum um fjármagn til danskennslu í 1. – 4. bekk. Þá greindi hann frá kostnaðarauka sem af þessum óskum hlytist og umræðum um þær í bæjarráði. Skólanefnd leggur áherslu á að haldið verði áfram með danskennslu og að hún verði í öllum skólum. Leggja þurfi fé til þess. Sigríður spyr hvort ekki sé rétt að eignasjóður greiði viðhald en ekki þær stofnanir (skólar) sem leigja húsnæðið.
4. Önnur mál
Fundargerðir undirbúningsnefndar fyrir skólamálaþing. Undir þessum lið voru kynnt fyrstu drög að dagskrá þingsins.
Samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk hefur verið frestað um óákveðinn tíma, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Námsmatsstofnunar.
Sigríður Kristinsdóttir spurðist fyrir um mætingu kennara til starfa eftir lagasetningu vegna verkfalls, framgang kennslunnar þá þrjá daga sem liðnir eru af þessari viku og hvort eitthvað væri um uppsagnir kennara. Stefán svaraði eftirfarandi samkvæmt upplýsingum frá skólastjórum: Allir kennarar hafa mætt til starfa og kennsla gengið eðlilega fyrir sig. Einn kennari hefur tilkynnt uppsögn en ekki er komið formlegt uppsagnarbréf. Stefán benti á þá ábyrgð sem hornfirskir kennarar hafi sýnt. Það væri ekki sjálfgefið í því ölduróti sem íslenskir grunnskólar hafa lent í undanfarna daga og vikur og þeim afleiðingum sem það hefur haft fyrir barnafjölskyldur. Undir þetta tóku allir skólanefndarmenn. Sævar sagði þungt hljóð vera í kennurum og Þorvaldur sagði svo einnig vera hjá skólastjórum, sem hefðu áhyggjur af skólastarfinu. Einnig spurði Sigríður um matarmál nemenda í Hafnarskóla og Heppuskóla. Stefán sagði samtals um 125 nemendur í báðum skólum kaupa mat, flestir 5 daga vikunnar og stöðugt bætist í hópinn. Kennarar Heppuskóla eru að ræða sín matarmál en um 10 kennarar í Hafnarskóla kaupa mat. Fram kom í máli skólastjórnenda mikil ánægja með matinn og framgang mála. Sama ánægja koma fram í máli skólanefndarmanna.
Þórhalla spyr um bílastæði fyrir kennara í Hafnarskóla og hvort ekki hafi verið sú hugsun að þau væru við Bogaslóð. Upplýst var að það hafi verið áætlað þegar byggt var við skólann.
Rætt um snjómokstur við skólana og hálkueyðingu. Nefndarmenn leggja áherslu á að þessum þætti sé vel sinnt.
Fundi slitið kl. 18:00


