Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 64
64. fundur
Fundur haldinní ráðhúsinu, þriðjudaginn 20. október 2004 kl. 16:10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 63. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Bréf leikskólastjóra á Lönguhólum og Krakkakoti
Fyrir hönd starfsmanna leikskólanna fara leikskólastjórar fram á styrk til náms- og vinnuferðar til Danmerkur 21. – 24. apríl 2005.
Skólanefnd hefur ekki yfir að ráða sjóðum til að veita slíka styrki. Skólanefnd hvetur yfirvöld sveitarfélagsins til að veittur verði styrkur til slíkrar ferðar, einkum þeim sem ekki hafa aðgang að öflugum náms- og endurmenntunarsjóðum.
Einnig greindi Margrét frá Evrópusamstarfi Lönguhóla (Comeniusarverkefni) sem er að hefjast. (Margrét vék af fundi)
3. Bréf Ragnars F. Kristjánssonar og Ullu R. Pedersen, dagsett 8. október 2004
Í bréfinu er farið fram á að endurskoðuð verði ákvörðun skólanefndar og bæjarstjórnar um að greiða ekki skólagjöld utan lögheimilissveitarfélags fyrir dóttur þeirra frá janúar – maí 2005. Ósk þessi er byggð á ákveðnum félagslegum og fjölskyldulegum rökum sem tilgreind eru í bréfinu.
Skólanefnd leggur til að tekin verði afstaða til skólagöngu barna í Öræfum sem eru í 8. – 10. bekk, þ.e. þeirra nemenda sem dvelja á heimavist og stunda sitt nám í Heppuskóla. Fyrir liggur skýrsla framkvstj. fræðslu- og félagssviðs, dagsett 9. september 2004, um afstöðu foreldra leikskóla- og grunnskólabarna í Öræfum til skólagöngu barna þeirra. Þar koma fram nokkuð skiptar skoðanir um hvar nemendur á þessu skólastigi eigi að ganga í skóla. Skólanefnd leggur til að kannaður verði sá möguleiki að kennsla í 8. – 10. bekk verði einnig í Grunnskólanum í Hofgarði. Lögð verði áhersla á bæði faglega og fjárhagslega þætti við könnunina og einnig að fyrir liggi tillögur um framkvæmd ef fyrrgreind leið verður valin. Þegar niðurstöður könnunarinnar liggja fyrir verði endanlega afstaða tekin til skólagöngu nemenda á unglingastigi í Öræfum. Niðurstöður skulu liggja fyrir um miðjan mars 2005.
Skólanefnd stendur við fyrri afgreiðslu á beiðni um greiðslu skólagjalda vegna námsvistar utan lögheimils, sbr. ósk í fyrrgreindu bréfi. Formanni skólanefndar og starfsmanni nefndarinnar falið að svara foreldrum.
4. Breytt námsskipan til stúdentsprófs, skýrsla menntamálaráðuneytisins, ágúst 2004
Samkvæmt skýrslunni er ljóst að stytting náms til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú hefur veruleg áhrif nám nemenda í grunnskólum og að einhverju marki í leikskólum. Þetta stafar ekki síst af því að „samkvæmt tillögum um nýja námsskipan er gert ráð fyrir að 12 námseiningar flytjist á grunnskólastig, þ.e. 3 einingar í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði.” (Skýrsla mrn., bls. 44)
Skólanefnd tekur ekki á þessu stigi faglega afstöðu til þessara tillagna en hvetur bæjarstjórn til að vera á varðbergi gagnvart þeim kostnaðarauka sem þetta kann að hafa í för með sér fyrir sveitarfélögin.
5. Fjárhagsáætlun 2005
Stefán greindi frá vinnu við fjárhagsáætlun, einkum launaáætlun og grundvelli hennar.
6. Önnur mál
· Tilkynning um frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk.
· Afhent yfirlit yfir fjölda leikskólabarna, aðgreint eftir vistunarstundum.
· Greint frá tillögu undirbúningsnefndar fyrir skólamálaþing að halda þingið laugardaginn 19. febrúar 2005.
· Skólanefnd lýsir yfir áhyggjum með stöðu grunnskólanna eftir nær fimm vikna verkfall. Hvetur nefndin samnigsaðila til að finna lausn á yfirstandandi launadeilu án frekari tafa.


