Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð Skólanefndar 61

61. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsinu, mánudaginn 14. júní 2004 kl. 16:30

Mætt voru:Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Arnbjörg Stefánsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Jóhann Morávek og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerð 60. fundar
Engar athugasemdir gerðar.

2. Tillögur að daglegri skólabyrjun og skólalokum í Hafnar- Heppu- og Nesjaskóla
Ekki er gert ráð fyrir að skólabyrjun að morgni breytist frá því sem nú er. Skólaakstur á þeim tíma verður því óbreyttur. Tillaga skólanna þriggja er að skólalok verði um kl. 14:00 í Nesjaskóla, kl.14:40 í Hafnarskóla og kl. 14:45 í Heppuskóla alla fimm daga vikunnar. Fram kom í máli skólastjórnenda Hafnar- og Heppuskóla að þetta kalli á skólamáltíðir á föstudögum. Rætt um þau áhrif sem þessi tillaga hefur, bæði fyrir íbúa í dreifbýli og þéttbýli auk þess kostnaðar sem þetta hefur í för með sér. Skólanefnd sammála fram kominni tillögu skólastjórnenda um tímaramma skólanna.

3. Tillögur nefndar um mötuneytismál nemenda
Við störf sín fór nefndin meðal annars yfir minnisblað framkvstj. fræðslu- og félagssviðs sem hefur að geyma viðtöl við leikskólastjóra Krakkakots og Lönguhóla, eigendur Hótels Hafnar, matráðs í mötuneyti Nesjaskóla og eiganda Kaffihornsins. Einnig var metin reynslan af úthýsingu matargerðar fyrir Hafnarskóla og Heppuskóla. Tekin voru til umfjöllunar drög framkvstj., dagsett 25. maí 2004, þar sem fram koma nokkrir valkostir. Eftir nákvæma yfirferð og umfjöllun leggur nefnd um mötuneytismál til að eftirfarandi leið verði valin:
• Leikskólarnir efli samstarf sitt um mötuneytismál. Allur hádegismatur komi frá Krakkakoti en morgun- og síðdegishressing frá hvorum leikskóla fyrir sig.
• Mötuneyti Nesjaskóla taki alfarið að sér mötuneytismál grunnskólanna þriggja.
• Matur verði keyrður út í skólana í þar til gerðum hitakössum og skammtað á diska í hverri stofnun fyrir sig.
• Komið verði upp aðstöðu til að neyta matar í Hafnarskóla og Heppuskóla.
• Að hádegismat loknum verði öll mataráhöld keyrð aftur í Nesjaskóla þar sem þau verði þvegin og komi svo aftur til baka með matnum næsta dag.
• Akstur með mat og mataráhöld verði boðinn út.
Eftir tveggja ára reynslu verði árangur af þessari leið metinn og í framhaldinu tekin ákvörðun um hvort halda skuli áfram á sömu leið eða verkefnið boðið út.

Guðmundur greindi frá því að nokkrum erfiðleikum væri bundið að koma “matsal” fyrir í Heppuskóla þannig að allir nemendur geti matast í einu lagi. Stefán greindi frá viðræðum við Ingólf Einarsson, eiganda Kaffihornsins, um þann möguleika að taka að sér mötuneyti fyrir Heppuskóla og nota veitingastaðinn um leið sem matsal. Sagðist hann þurfa 50 – 60 fasta viðskiptavini og að matartími þyrfti að vera fyrir kl. 12. Margrét benti á að það þurfi að ræða það í leikskólanum hvernig best sé að útfæra mötneytismál þeirra skóla. Elín benti á að þegar nýr leikskóli var byggður hafi verið stefnt að einu mötuneyti fyrir báða leikskólana. Margrét sagði að aldrei hafi verið sá háttur á að matur hafi komið alla daga vikunnar frá mötuneyti Krakkakots til Lönguhóla en taldi eðlilegt að að stefna að því að sameiginlegur matur verði 4 daga vikunnar. Fram kom í máli skólanefndarmanna að eðlilegast sé að maturinn komi allur frá einum og sama aðilanum. Skólanefnd sammála tillögu nefndar um mötuneytismál með þeirri breytingu að liðurinn sem snýr að leikskólunum verði: “Leikskólarnir efli samstarf sitt um mötuneytismál. Hádegismatur komi frá Krakkakoti en morgun- og síðdegishressing frá hvorum leikskóla fyrir sig.” (Guðmundur og Arnbjörg viku af fundi)

4. Mat á starfi Lönguhóla og Krakkakots – skýrslur Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands
Í skýrslunum er gerð grein fyrir mati á starfi leikskólanna tveggja. Matið tók mið af þeim þáttum sem tilgreindir eru í verksamningi milli sveitarfélagsins og Rannsóknarstofnunar KÍ. Í samræmi við þann samning var einkum hugað að skipulagi leikskólastarfsins, starfsmannahaldi, samskiptum, tengslum uppeldis- og menntastarfsins við Aðalnámskrá leikskóla, sérstöðu leikskólanna, innra mati, og samstarfi við nærliggjandi leikskóla.
Snæfríður sagðist vera sammála mörgum ábendingum sem fram koma í skýrslunni og að þær verði teknar til athugunar og hlutir lagfærðir. Margrét sagðist ekki vera fyllilega ánægð, hafa verið með vonir um betri skýrslu, þ.e. vonir um að hafa meira gagn af henni. Einnig benti hún á að ekki hafi allar athugasemdir, sem leikskólastjórar gerðu, verið teknar til greina af skýrsluhöfundum. Stefán benti á ýmis atriði sem hann taldi að gagn mætti hafa af, læra af því sem fram kemur. Sigríður gerði að umtalsefni samvinnu leikskólanna sem hún taldi ástæðu til að auka og um leið að skólarnir ynnu eftir sömu hugmyndafræðinni. Skólanefndarmenn bentu á að margt jákvætt í starfi leikskólanna kæmi fram í skýrslunum. Undir þessum lið var rætt um að skólanefnd mundi heimsækja leikskólana í haust. (Margrét og Snæfríður viku af fundi)

5. Skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Jóhann Morávek fór yfir útsend gögn. Skólanefnd samþykkir skóladagatal Tónskólans með þeim breytingum að haustþing tónskólakennara (2 dagar) verði tekið af starfsdögum en ekki kennsludögum. (Jóhann sat fundinn undir þessum lið)

6. Önnur mál
• Samræmd próf í 10. bekk (og að hluta til 9. bekk) í maí 2004. Tekin voru próf í sex greinum, íslensku (49 nem. (af samtals 51) í 10. bekk þreyttu próf), stærðfræði (44 nem. í 10. bekk þreyttu próf), ensku (47 nem. í 10. bekk þreyttu próf), dönsku (39 nem. í 10. bekk þreyttu próf), náttúrufræði (20 nem. í 10. bekk þreyttu próf) og samfélgsgreinum (19 nem. í 10. bekk þreyttu próf). Að auki þreyttu sex nemendur í 9. bekk samræmd próf, fimm í einni grein og einn í tveimur greinum.

Fundi slitið kl.19:15


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótt- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica