Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð Skólanefndar 60

60. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 18. maí 2004 kl. 16:10

Mætt voru : Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Elín Oddleifsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Arnbjörg Stefánsdóttir, Brynja Baldurssdóttir, Brynja Kristjánsdóttir og Stefán Ólafsson.


Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerð 59. fundar
Engar athugasemdir gerðar.

2. Tillögur um breytingar á reglum leikskólanna
Margrét og Snæfríður fóru yfir útsend gögn sem varða þetta mál. Nokkrar umræður urðu um tillögur að breytingum. Skólanefnd tók vel í fram komnar hugmyndir að breytingum og leggur til að starfsmenn leggi fram formlegar tillögur um breyttar reglur og leggur áherslu á að þær verði kynntar stjórnum foreldrafélaga leikskólanna áður en þær koma fyrir skólanefnd. (Margrét og Snæfríður viku af fundi)

3. Tillögur um breytingar á tímasetningu skólaaksturs fyrir Hafnar-, Heppu- og Nesjaskóla í tengslum við breyttan tímaramma.
Guðmundur og Stefán gerðu grein fyrir þeim tillögum sem eru til umræðu, sbr. yfirlitsblað þar að lútandi. Fram kom í máli Guðmundar að þessi ósk sé fyrst og fremst fram komin til að lengja þann matartíma sem nemendur í Heppuskóla fá á hverjum degi. Með þessum breytingum sé stefnt að því að byrja fyrr fremur en að lengja skóladaginn fram eftir degi. Einnig benti Guðmundur á þann möguleika að bæta við einni kennslustund á föstudögum og einnig hugsanlega lengingu aðra daga. Sagði hann aukið val, sem sé skylda samkv. aðalnámskrá, geta haft þessi áhrif en það gerir allt skipulag á stundaskrá erfiðara. Hins vegar verði allt gert til að koma í veg fyrir lengingu. Brynja Kr. benti á að ekki væri æskilegt að fara fyrr af stað úr Öræfum en nú er. Elín Oddleifsdóttir taldi mjög hæpið að skólaakstur geti allur hangið saman Benti hún og á að foreldrar barna sem lengst eiga að sækja eigi mjög erfitt með að sætta sig við að farið verði fyrr á morgnana en nú er. Taldi hún nauðsynlegt að hefja um það umræðu að einn til tvo daga verði tvöfaldur skólaakstur þannig að yngri börnin fari fyrr heim úr skóla en eldri nemendur þá daga. Skólanefnd sammála því að taka ekki endanlega afstöðu í þessu máli fyrr en stundatöflur liggja fyrir þannig að ljóst sé á hvaða tíma skólalok geta orðið sem hafa afgerandi áhrif á skólaakstur. Elín Oddleifsd. lagði á það áherslu að skólaakstur verði að laga sig að skólastarfinu en ekki öfugt.

4. Ósk um að 13 ára börn verði áfram í Grunnskólanum í Hofgarði og stundi þar sitt 8. bekkjar nám.
Tekið fyrir bréf, dags. 10. maí 2004, undirritað af Ullu R. Pedersen og Ragnari Frank Kristjánssyni. Í bréfinu segir orðrétt í upphafi bréfs: „Við leggjum til að 13 ára börn úr Öræfum haldi áfram skólagöngu í Hofgarði skólaárið 2004-2005, og óskum eftir því að skólanefnd taki tillögu okkar til umræðu.” Brynja Kristjánsd. sagði að miðað við viðtöl sín við foreldra í Öræfum vildu þeir hafa þetta sem val, þ.e. hvort börnin færu í 8. bekk Heppuskóla eða yrðu áfram í Grunnsk. í Hofgarði eitt ár í viðbót. Fram kom í máli hennar að sumir foreldrar vildu senda börn sín strax á næsta skólaári í Heppuskóla. Einnig benti hún á að foreldrar í vesturhluta Öræfa vildu senda börn sín á Klaustur í skóla fremur en að senda þau austur á Höfn. Brynja sagði einnig að ósk um 8. bekk kæmi ekki frá kennurum í Hofgarði. Framkvstj. fræðslu- og félagssviðs fór yfir minnisblað sitt, dags. 18. maí 2004. (Elín Oddleifsd. vék af fundi) Skólanefnd er því sammála að vísa þessu máli til ákvörðunar bæjarráðs. Faglegur ávinningur af breytingu þeirri sem óskað er eftir í ofangreindu bréfi er ekki sjáanlegur. Þá hefur þetta í för með sér verulega aukin útgjöld fyrir sveitarfélagið. (Brynja Kr. vék af fundi)


5. Beiðni um að ráða aðstoðarkennara í stað stuðningsfulltrúa í Hafnarskóla
Í bréfi, dags. 10. maí 2004, fer skólastjóri Hafnarskóla „fram á að fá að ráða þrjá aðstoðarkennara við skólann næsta skólaár í staðinn fyrir stuðningsfulltrúa.” Arnbjörg fór yfir málið og sagði meðal annars að starf stuðningsfulltrúa, eins og það er skipulagt í dag, gangi ekki sem skyldi þó að þeir væru að sinna starfi sínu af kostgæfni. Einnig benti hún á mikinn fjölda nemenda sem þörfnuðust mikillar námsaðstoðar og um leið skorti fólk í skólanum til að sinna þessum börnum. Framkvæmdastjóri sviðsins fór yfir málið og gerði grein fyrir ýmsum þáttum sem það varða, svo sem stöðu stuðningsfulltrúa almennt, atriðum sem snúa að kjaramálum, skyldu um að auglýsa stöður kennara, auknum kostnaði samfara hugsanlegum breytingum með því að ráða aðstoðarkennara í stað stuðningsfulltrúa, líkleg áhrif til lækkunar á almennum grunnskólaframlögum Jöfnunarsjóðs, reynslu annarra sveitarfélaga og fyrirkomulagi þeirra. Einnig ræddi hann faglegan ávinning af þessu starfi og ítrekaði að koma þurfi betra skipulagi á stöðu stuðningsfulltrúa og verksvið þeirra. Það mál sé hins vegar ekki eingöngu bundið við okkar sveitarfélag. Elín M. velti upp spurningunni hvers vegna þessi miklu námsvandamál séu að koma upp þegar nemendur eru komnir í 4. og 5. bekk. Hafa þau ekki komið upp fyrr spyr hún. Brynja B. benti á að mikið hefði verið unnið með sértæk vandamál núverandi 4. bekkjar meðan þau voru í Nesjaskóla. Guðmundur tók undir orð Arnbjargar um skort á fagmenntuðu fólki til að sinna börnum sem þurfa mikla og sértæka aðstoð. Spunnust undir þessum lið miklar umræður um samstarf foreldra og skóla, misjafna stöðu barna, agavandamál í skólum og möguleika skólanna til að bregðast við þeim.
Þrír skólanefndarmenn af fjórum styðja þessa ósk skólastjórnenda Hafnarskóla og vísar nefndin henni til ákvörðunar bæjarráðs. (Guðmundur vék af fundi)

6. Erindi Lýðheilsustöðvar – bætt mataræði, aukin hreyfing barna og unglinga
Erindið kynnt.

7. Önnur mál
• Bréf Kvenfélagsins Vöku. Í bréfinu er mótmælt fyrirhugaðri lokun leikskólans Óla priks. Skólanefnd sér ekki ástæðu til að endurskoða afstöðu sína til lokunar Óla priks.
• Staðan í starfsmannamálum grunnskólanna. Stefán gerði grein fyrir stöðunni eins og hún er á þessari stundu.
• Kynnt að samnið hefur verið við sálfræðingana Birgi Þór Guðmundsson og Wilhelm Norðfjörð til tveggja ára. Unnið er að samningi við Þórunni Halldórsdóttur talmeinafræðing.
• Ákvörðun um lengda viðveru. 19 börn hafa verið í lengdri viðveru á yfirstandandi skólaári, flest 14 börn í einu. Skólanefnd leggur til að boðið verði upp á þessa þjónustu næsta skólaár.
• Kynnt bréf menntamálaráðuneytisins um auglýsingar fyrirtækja í grunnskólum.
• Skólanefndarmönnum og leikskólastjórum afhent skýrsla Rannsóknar-stofnunar Kennaraháskóla Íslands – mat á starfi leikskólanna Lönguhóla og Krakkakots.
• Greint frá samantekt menntamálaráðuneytisins – Niðurstöður úttekta á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla 2001 – 2003 sem einnig er að finna á heimasíðu ráðuneytisins.



Fundi slitið kl.18:50
































Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótt- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica