Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 59
59. fundur
Fundur haldinn í Hrollaugsstaðaskóla, miðvikudaginn 31. mars 2004 kl. 14:00
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Stefán Ólafsson.
Áður en formlegur fundur hófst í skólanefnd var Grunnskólinn í Hofgarði heimsóttur. Þar var meðal annars fundað með starfsmönnum, húsakynni skoðuð og rætt við nemendur í leik og starfi. Þaðan var haldið í Hrollaugsstaðaskóla, húskynni skoðuð og fundað í framhaldi af því.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 58. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Skóladagatal grunnskólanna 2004 – 2005
Farið yfir útsend gögn frá skólum sveitarfélagsins. Þar kemur m.a. fram að Hafnarskóli, Heppuskóli og Nesjaskóli áætla skólasetningu þann 23. ágúst og skólaslit þann 3. júní, þ.e.180 daga og enga stöflun. Í umræðu um skóladagatal kom fram andstaða allra skólanefndarmanna við að færa skóladag frá 20. desember til næsta laugardags á undan. Skólanefnd samþykkir sameiginlegt skóladagatal Hafnarskóla, Heppuskóla og Nesjaskóla.
Hrollaugsstaðaskóli gerir tillögu um 174 kennsludaga og 6 aðra skóladaga sem ýmist eru staflaðir eða skyldumæting um helgi eins og segir í greinargerð skólastjóra. Grunnskólinn í Hofgarði gerir áætlun um 170 kennsludaga auk 10 annarra skóladaga sem ýmist eru staflaðir dagar eða skyldumæting á kvöldin eða um helgar eins og segir í greinargerð skólastjóra. Fram kom hjá starfsmönnum Grunnskólans í Hofgarði (á fundi þar fyrr um daginn) og hjá Þorbjörgu að skóladagatal þessara skóla væri mjög í takt við þær óskir sem fram koma í samfélagi þessara skóla. Meðal annars bent á ýmsar samkomur (að kvöldi) sem skólarnir halda og eru jafnframt samkomur fyrir allt samfélagið. Skólanefnd tekur undir sérstöðu dreifbýlisskólanna. Í ljósi þessarar sérstöðu og vísan til greinargerðar skólastjórnenda samþykkir skólanefnd skóladagatal Hrollaugsstaðaskóla og Grunnskólans í Horfgarði.
3. Bréf foreldra barna sem sækja leikskólann Óla prik
Í bréfi þessu, undirritað af sjö foreldrum, segir orðrétt í upphafi bréfs: “Við undirrituð, foreldrar barna í leikskólanum Óla prik, viljum með bréfi þessu mótmæla fyrirhugaðri lokun leikskólans í júlí n.k. Vonumst við til að tillit verði tekið til afstöðu okkar í þessu máli ……….” Stefán greindi frá fundi þriggja starfsmann sveitarfélagsins með foreldrum þar sem þeir kynntu afstöðu sína. Sagði hann það hafa verið góðan fund að sínu mati. Rætt var um málefni skólans og þar á meðal faglegt starf sem fara á fram í leikskólum. Skólanefnd sammála því að standa við fyrri tillögu sína að loka skuli leikskólanum í júlí næskomandi. Leggur nefndin áherslu á að börn á leikskólaaldri geti sótt leikskóla þar sem allar uppeldisaðstæður eru bestar.
4. Skólaakstur 2004 – 2005
Stefán greindi frá samþykkt bæjarráðs um að leitað verði samninga við Austurleið/Kynnisferðir um að fyrirtækið sinni áfram skólaakstri í sveitarfélaginu út skólaárið 2004-2005 með sama hætti og undanfarin ár. Einnig var farið yfir skólaakstur við dreifbýlisskólana.
5. Önnur mál
• Þorbjörg gerði grein fyrir sjálfsmatsáætlun Hrollaugsstaðaskóla og dreifði henni. Fór hún yfir vinnu að áætluninni. Einnig fjallaði hún um skólanámskrá skólans. Stefán dreifði sams konar áætlun fyrir Grunnskólann í Hofgarði. Þorbjörg greindi frá samstarfi dreifbýlisskólanna sem farið hefur vaxandi.
• Skólanefnd samþykkir að haldið verði málþing um stöðu skólamála í sveitarfélaginu í byrjun næsta skólaárs. Undir þessum lið var rætt um að taka þurfi til umræðu skólastefnu sveitarfélagsins og þær úttektir sem gerðar hafa verið á leik- og grunnskólum.
• Foreldrakönnun um viðhorf til lengingar skólaársins” sem lögð var fyrir foreldra nemenda í Nesjaskóla og Hafnarskóla í febrúar síðastliðinn. Í niðurstöðum kemur fram andstaða við 10 daga lengingu skólaársins, þar sem 60% – 70% eru andvíg henni. Einnig kemur fram vilji mikils meirihluta til að stafla skóladögum, þannig að til dæmis fari saman kennsla að deginum og kvöldskemmtun á vegum skólans og stytta þannig skólaárið að sama skapi.
• Kynnt að samræmd próf í 4. og 7. bekk verði 14. og 15. október.
• Elín og Stefán greindu frá Grunnskólaþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var 26. mars síðastliðinn.
Fundi slitið kl.16:15


