Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningarmálanefndar 52
52.fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Nýheimum á Höfn, miðvikudaginn 10. desember 2003 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Bryndís Hólmarsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason. Guðlaug Hestnes boðaði forföll.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 26. nóvember, til kynningar.
2. Ársskýrsla Menningarmiðstöðvar 2002
Lögð voru fram drög að ársskýslu fyrir síðasta ár. Farið var yfir efni hennar og litlar athugasemdir gerðar. Hún mun birtast í næsta hefti Skaftfellings.
3. Jöklasýning og ýmis menningarverkefni
Lögð voru fram gögn um Jöklasýningu, flygilkaup, listskreytingu í Nýheimum, styrki á árinu 2003 og drög að uppgjöri vegna framkvæmda í Pakkhúsi. Eftirfarandi samþykktir voru gerðar:
Jöklasýning
Menningarmálanefnd telur mjög mikilvægt að vinna ákveðið að næstu skrefum varðandi eflingu jöklasýningar og stofnun Jöklaseturs. Í ljósi þess að fengist hefur fjárveiting af fjárlögum ríkisins á næsta ári samþykkir nefndin að fela formanni sínum og starfsfólki Menningarmiðstöðvar að vinna að framkvæmd tillagna sem Starfshópur um stofnun Jöklaseturs lagði fram 15. ágúst sl. Sérstök áhersla verði lögð á frekari fjáröflun, vinnu við markaðssetningu, nýjungar í sýningu, endurbætur og samninga um húsnæði og stofnun sjálfseignarstofnunar. Óskað er eftir staðfestingu bæjarstjórnar á þessum framgangsmáta.
Listskreyting í Nýheimum
Menningarmálanefnd samþykkir að fjármögnun sú sem eftir stendur vegna kaupa á listskreytingu í Nýheimum sem Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur staðið fyrir verði úr sjóði Vatnstanksins á Fiskhól, eða allt að 1,625.000 kr. Berist frekari styrkir til verkefnisins en þær 375.000 kr. sem þegar hafa safnast, verði þeir lagðir inn á sjóð vatnstanksins til þess að lækka áðurgreint framlag sjóðsins.
Tekjur sem aflast vegna útleigu vatnstanksins fyrir endurvarpsloftnet og auglýsingar eru mikilvægar fyrir menningarstarfsemina en áfram er stefnt að því að þær standi undir endurbótum á vatnsdæluhúsinu áður en leigutíma vegna loftneta líkur árið 2005.
4. Útgáfa Skaftfellings
Lagt var fram efnisyfirlit næsta árgangs sem kemur út eftir áramót.
5. Menningarverðlaun 2004
Farið var yfir reglur um verðlaunin. Samþykkt að auglýsa eftir tilnefningum frá almenningi. Endanleg ákvörðun um verðlaunahafa verður tekin í janúar.
6. Önnur mál
• Lagður var fram til kynningar samningur um listviðburði á landsbyggðinni sem undirritaður var í Nýheimum sl. föstudag, 5. desember.
• Þorbjörg ræddi um Akurey SF og spurðist fyrir um stöðu þess máls. Menningarmálanefnd ítrekar fyrri ályktanir sínar um mikilvægi þess að varðveita Akurey og hvetur til þess að áhugasamir aðilar gefi sig fram og ræði möguleika á því.
Fleira ekki tekið fyrir,
fundi slitið kl. 18:05


