Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð menningarmálanefndar 101

101. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 14. maí 2008 í Nýheimum kl. 16:00. Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Gauti Árnason, Guðrún Ingimundardóttir og Ingvar Þórðarson. Einnig: Björg Erlingsdóttir

 

  1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir

 

  1. Myndbandasafn Heimis Þórs

Björg segir frá viðræðum við Heimi Þór og áhuga á að færa efni hans yfir á stafrænt form. Menningarmálanefnd fagnar því að sveitarfélaginu sé gefinn kostur á að fá þetta merka safn til varðveislu. Menningarmálanefnd hvetur til þess að formlegur samningur verði gerður og tekið við gjöf hans á sömu forsendum og aðrar gjafir.

 

  1. Þjónustuhúsnæði – staða mála

Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að ganga til viðræðna við eiganda Álaleiru 1.

 

  1. Hafnarvík-Heppa

Björg segir frá gangi mála, næstu skref er að stofnaður verður stýrihópur, tilnefndur af bæjarráði. Rætt um framtíðar starfsemi í Miklagarði. Rústin verður máluð af nemendum Hafnarskóla. Menningarmálanefnd leggur til að steypta húsið vestanvið Miklagarð fái nafnið Glaðværð og vísar í þessu sambandi til þess heitis sem hluti þessa enda Miklagarðs bar áður.

 

  1. Ráðning tómstundarfulltrúa

Umsóknarfrestur er 15. maí. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar og yfirmaður fræðslusviðs taka viðtöl við umsækjendur þegar þar að kemur.

 

  1. Þórbergssetur– nýr samningur

Menningarmálanefnd leggur áherslu á að samningur við Þórbergssetur gildi á meðan núvernadi samningur við Menningarráð Austurlands er í gildi. Vinnuframlag Menningarmiðstöðvar miðar að samstarfi á sviði bókmennta, málþingum og viðburðum. Björgu falið að vinna áfram að málinu á grundvelli þeirra samningsdraga sem lögð voru fram.

 

  1. Akurey

Huga þarf að umhverfi skipsins. Menningarmálanefnd leggur áherslu á að gengið verður frá umhverfi skipsins fyrir sumarið og sjóður sem fylgdi skipinu nýttur til þess.

 

  1. Fundarhúsið í Lóni

Sagt frá tilboði Karlakórsins Jökuls vegna girðingarvinnu við fundarhúsið. Tilboðið samþykkt.

 

  1. Söfn Sverris Scheving Thorsteinsson og Lovísu H. Gunnarsdóttur – uppgjör

Útreikningar samþykktir og reikningur ásamt greinargerð verður sendur.

 

  1. Rekstur Pakkhúss

Húsið verður leigt eftir gjaldskrá í sumar. Lögð áhersla á að blómleg starfsemi verði í Pakkhúsinu og það þjóni sem menningarhús. Bókun frá Guðrúnu: Unnið verði að því að aðgengi að húsinu verði lagað.

 

  1. Útilistaverk í umsjá Menningarmiðstöðvar

Björgu falið að vinna heildarskráningu yfir útilistaverk í umsjá Menningarmiðstöðvar, ástand þeirra og viðgerðir.

 

  1. Rekstur janúar til apríl

Ítrekað að gerð verði grein fyrir þeim verkefnum sem skapa sér útgjöld og sér tekjur, í uppgjöri.

 

  1. Sumardagskrá

Sumarstarf barna verður í sumar. Sýning í Glaðværð og gönguferðir. Fyrirhuguð sýning á verkum hornfirskra málara.

 

  1. Svavar Guðnason - Nesútgáfan

Nesútgáfan sagði sig frá útgáfu fyrirhugaðrar bókar um Svavar Guðnason. Listasafn Íslands undirbýr sýningu á verkum hans haustið 2009. Menningarmálanefnd lýsir yfir miklum vonbrigðum að efndir hafi ekki orðið á samningnum við Nesútgáfuna. Björgu falið, í samráði við bæjarstjóra og Karl Ómar að tryggð verði útgáfa á bók um lífsferil Svavars.

 

  1. Önnur mál

Upplestur úr Skaftfellingi, Sótt fram og fleiri ritum er í undirbúningi. Upplesturinn verður tekinn upp og lánaður út sem hljóðbækur á Bókasafni.

Breytingar á skipun nefnda sveitarfélagsins

Þetta er síðasti fundur menningarmálanefndar þar sem ný nefnd verður skipuð eftir sameiningu nefnda sveitarfélagsins. Við þessi tímamót vilja nefndarmenn þakka fyrir samstarfið og óska nýrri Menningar- og tómstundanefnd alls góðs.

 

Fleira ekki gert

Fundi slitið kl. 18:40

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica