Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 93
93. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 10. október 2007 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Gauti Árnason, Eyjólfur Guðmundsson, Guðrún Ingimundardóttir. Ingvar Þórðarson og Guðlaug Hestnes, boða forföll.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir. Björg gerir grein fyrir stöðu mála varðandi kvikmyndasýningar. Haft hefur verið samband við Slippstöðina á Akureyri varðandi athugun á Akurey. Áfram er unnið að undirbúningi “Smiðjunnar”.
2. Dagbók fyrir komandi vetur
Stefnt að því að halda tvo opna fundi um menningarmál. Annan sérstaklega um Mikligarður, hinn um menningarmál almennt. Björgu falið að sjá um þetta framkvæmdina. Björgu einnig falið að kanna hvernig vinnu eftir markmiðum stefnumótunar menningarmiðstöðvar miðar áfram.
3. Tilboð vegna leigu efri hæðar Pakkhúss
Eitt tilboð barst vegna leigu efri hæðar Pakkhúss. Kaffi Hornið bauð 500 þúsund krónur í ársleigu til 5 ára. Tilboðinu er hafnað og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar falið að endurskoða verðskrá og reglur um umgengni í húsinu. Menningarmálanefnd vill að stefnt sé að betri nýtingu á húsinu í þágu Menningarmiðstöðvar og sveitarfélagsins.
4. Samningur við Nesútgáfuna vegna útgáfu bókar um Svavar Guðnason
Lagt til að Menningarmiðstöð fari framá að fá 100 eintök á íslensku og 20 eintök á öðrum tungumálum, í samningi við Nesútgáfuna.
5. Fjárhagsstaða – gögnum dreift á fundinum
Farið yfir fjárhagsstöðu samkvæmt bókhaldi 10. október 2007.
6. Aðsóknartölur – gögnum dreift á fundinum
Björg beðin um að senda fundarmönnum upplýsingar um aðsókn á Jöklasýningu, Byggðasafn, Upplýsingamiðstöð og Bókasafn.
7. Samningur við Grunnskóla Hornafjarðar
Menningarmálanefnd samþykkir samninginn og felur Björgu að undirrita hann.
8. Önnur mál
Fleira ekki gert Fundi slitið kl. 17:49


