Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 91
91. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 09. maí 2007 kl. 16:00. Fundur hófst á vettvangsferð í Gömlubúð og síðan var haldið í Nýheima.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Gauti Árnason, Guðlaug Hestnes og Eyjólfur Guðmundsson, Ingvar Þórðarson boðaði forföll.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Vettvangsferð um Gömlubúð
Nefndarmenn fóru í vettvangsferð í Gömlubúð og skoðuðu þá vinnu sem þar fer fram. Nefndir bókar eftirfarandi; Menningarmálanefnd lýsir yfir ánægju með þær breytingar sem unnið er að á sýningu Byggðasafnsins í Gömlubúð. Sú sýning sem uppi hefur verið í safninu er að mestu leyti í sama formi og var þegar safnið var formlega opnað fyrir meira en aldarfjórðungi þ.e. í júní 1980.
Ekki er um að ræða breytingu á inntaki sýningar eða áherslum í starfi Byggðasafns, einungis framsetningu þess efnis sem þar er til sýnis. Umhverfi Byggðasafns verður tengt við sýninguna, tæki og tól merkt og fræðsluskiltum fyrir gesti safnsins komið upp.
Nefndin leggur áherslu á að ekki verði farið framúr þeirri kostnaðaráætlun sem fyrir liggur og að starfsmenn Byggðasafns leiti eftir fjárstuðningi fyrirtækja og stofnana vegna breytinganna að því marki sem gildandi fjárhagsáætlun rúmar ekki umræddan kostnað.
2. Fundargerð síðasta fundar. Engar athugasemdir gerðar.
3. Samningur Menningarmiðstöðvar og Nesútgáfu vegna heildarskráningar verka Svavars Guðnasonar
Drög að samningi við Nesútgáfu kynntur. Kostnaðaráætlun Menningarmiðstöðvar vegna vinnunnar og framkvæmdaáætlun kynnt. Menningarmálanefnd er samþykk því að Menningarmiðstöð vinni þetta verkefni og veitir forstöðumanni Menningarmiðstöðvar heimild til þess að skrifa undir samning við Nesútgáfuna sem byggir á þeim drögum sem kynnt voru á fundinum. Þessi heimild er veitt að því tilskyldu að fjármögnun verkefnisins takist.
4. Samningur Menningarmiðstöðvar og Sverris Scheving Thorsteinsson og Lovísu H. Gunnarsdóttur og Gjafabréf þeirra til Menningarmiðstöðvar
Menningarmálanefnd samþykkir samningsdrögin og að þau verði undirrituð.
5. Pakkhús, tilboð vegna útleigu á Pakkhúsi
Gauti bendir á að útboðsvinnan hafi gengið hægt fyrir sig og hefði mátt koma fram fyrr. Nefndarmenn samþykkja það. Á grundvelli þeirra útboðsgagna og tilboðsblaða sem skilað var inn vegna útboðs á leigu á Pakkhúsi frá 1. júní – 30. september 2007 er forstöðumanni Menningarmiðstöðvar veitt heimild til að ganga frá leigusamningi við hæstbjóðanda. Húsið verður boðið aftur út til leigu í haust.
6. Staða fjármála fyrstu þrjá mánuði ársins, gögn afhent á fundinum
Yfirlit fyrir fjóra fyrstu mánuði ársins lagt fram.
7. Styrkir og staða verkefna 2007
Yfirlit um styrkumsóknir lagt fram, umsóknir hljóða upp á 13.950 þús., styrkir sem þegar hafa verið veittir eru 6.600 þús.
8. Sumarstarfið
Sumarstarfið kynnt.
9. Akurey Fundinn hefur verið bátasmiður sem kemur í maí eða júní og skoðar skipið.
10. Minnisvarði um Jón Eiríksson í Suðursveit og minnisvarði Þórhallur Daníelsson og Ingibjörg Friðgeirsdóttir
Grein gerð fyrir nauðsynlegu viðhaldi þessara minnisvarða. Björgu falið að vinna áfram að málinu.
Fleira ekki gert Fundi slitið kl. 18:58


