Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 89
89. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd mánudaginn 19. mars 2007 kl. 17:30 í Nýheimum.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Gauti Árnason og Ingvar Þórðarson. Guðlaug Hestnes boðaði forföll.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Leiðréttingar gerðar við fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt með breytingum.
2. Dagskrá Menningarmiðstöðvar um páska
Farið verður í Papós Föstudaginn langa, sýning sett upp í Vöruhúsi um Papós og verslunarsögunni þar gerð skil. Bókamarkaður verður í Vöruhúsinu og á Páskadag verður gönguferð um Höfn.
3. Vinnufundur með bæjarstjórn 31. mars
Kynning stefnumótunar í menningarmálum, Björg undirbýr nánari útfærslu kynningarinnar og sendir nefndarmönnum auk stefnumótunarplaggsins. Fulltrúum í bæjarstjórn verður send stefnumótunin fyrir vinnufundinn.
4. Önnur mál
Guðrún segir frá söfnun heimilda vegna lífsins í Miklagarði.
Gauti spyr um framkvæmdir í Byggðasafni og fær þau svör að allt sé á áætlun.
Gauti spyr um safn Sverris Scheving og rætt hefur verið við Sverri um að ákvörðun verði tekin varðandi safnið eftir að stefnumótun í menningarmálum hefur verið samþykkt.
Pakkhús, rætt um leigu efrihæðar Pakkhúss sem veislusalar með móttökueldhúsi, yfir sumartímann í allt að fjóra mánuði. Óskað er eftir heimild bæjrráðs til þess að efri hæð Pakkhúsins verði auglýst til leigu.
Spurt um Hafnarvík-Heppu og ákveðið að setja það á dagskrá næsta fundar 11. apríl.
Fleira ekki gert Fundi slitið kl. 19.00


