Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 88
88. fundur
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Gauti Árnason og Guðlaug Hestnes, Hafdís Roysdóttir.
Einnig Björg Erlingsdóttir
Vettvangsferð í Gömlubúð og Akurey
Björg og Björn tóku á móti fundarmönnum í Gömlubúð þar sem sagt var frá þeim endurskipulagningum og endurbótum sem standa í Gömlubúð. Safnið opnar aftur 17. maí. Akurey var skoðuð og lögðu nefndarmenn áherslu á að fá sérfræðiálit á ástandi skipsins hið fyrsta. Nefndarmenn lýsa yfir áhyggjum af ástandi skipsins.
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir gerðar við fundargerð síðasta fundar.
- Stefnumótun í menningarmálum 2007-2017
Lagt fram bréf til bæjarstjóra vegna stefnumótunar í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2007 – 2010. Stefnumótun verður aðgengilet á heimasíðu og prentað þegar bæjarráð og bæjarstjórn hafa afgreitt málið. Menningarmálanefnd samþykkir stefnumótun í menningar- og safnamálum 2007-2017 og er henni vísað til umfjöllunar í bæjarráði.
- Styrkumsóknir
Björg segir frá þeim styrkjum sem sótt hefur verið um og þeim verkefnum sem verið er að vinna að. Úthlutun Menningarráðs á styrkju fer fram á Höfn í byrjun mars.
- Staða fjármála
Farið yfir stöðu fjármála, engar athugasemdir gerðar.
- Listasafn – sumarsýning á verkum Svavars Guðnasonar
Björgu falið að kanna möguleika á að halda sýningu á verkum Svavars í sumar. Fundarmönnum finnst jákvætt að sýningar með verkum Svavars verði á sumrin. Útgáfa á afmælisriti um Svavar kynnt og minnisblað sem sent var til bæjarstjóra vegna útgáfunnar. Nefndarmenn fagna hugmyndinni og leggja áherslu á að Menningarmiðstöð taki þátt í verkefninu.
- Önnur mál
Rætt um Vatnstankinn gamla og hvernig innheimtur hafa verið á auglýsingatekjum. Menningarmiðstöð er í samningaviðræðum við Sindra og verður samningu lagður fyrir menningarmálanefnd þegar hann verður tilbúinn.
Fundarhúsið í Lóni, umhverfi hússins er ekki girt af og útlit þess er ekki gott. Spurt er hvar þessi mál standa. Girðingaefni á að vera til en ekkert hefur verið gert. Björgu falið að koma þessu í verk og huga að málefnum Fundarhússins.
Gauti spyr hvort Menningarverðlaunum séu gerð skil t.d. í Nýheimum.
Gauti minnir enn og aftur á öryggismál húsa Menningarmiðstöðvar.
Fundargerð samþykkt í tölvupósti
Fundi slitið kl. 18.30


