Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 86
86. fundur
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Ingvar Þórðarson, Gauti Árnason og Hafdís Roysdóttir með í síma
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar.
Undir þessum lið var rætt um bréf Gísla Sverris Árnasonar, varðandi samtök um sögutengda ferðaþjónustu, en bréfið var kynnt á síðasta fundi nefndarinnar. Björg kvaðst hafa kynnt málið fyrir stjórnarmönnum í Ferðamálafélagi A-Skaft og áfram mundi fara fram umræða á þeim vettvangi á næstunni. Björgu falið að fylgjast með málinu og kynna nefndinni framvindu þess síðar.
- Signý Ormarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarráðs Austurlands, boðar forföll og dagskrárliðurinn fellur því niður.
- Menntamálaráðuneytið dags. 22. des. 2006 vegna fornleifaverndar– Vísað til Menningarmálanefndar frá Bæjarráði
Starfsmönnum Menningarmiðstöðvar falið að leggja fram drög að umsögn. Drögin lögð fyrir Menningarmálanefnd á fundi nefndarinnar 24. janúar.
- Úthlutun styrkja
Ákveðið að veita eftirfarandi styrki:
Leikfélag Hornafjarðar 150 þús.
Kvennakór Hornafjarðar 200 þús.
Karlakórinn Jökull 200 þús.
Samkór Hornafjarðar 50 þús.
Barnakór Hornafjarðar 75 þús.
Magnús J. Magnússon 100 þús.
Leikhópurinn Lopi 100 þús.
Lúðrasveit Hornafjarðar 50 þús.
Listvinasjóður Hornafjarðar 200 þús.
Bútasaumsfélagið ræmurnar 50 þús.
Harmónikufélagið 50 þús.
Braggabandið 50 þús.
Gleðigjafar 75 þús.
Leikhópurinn Máni 150 þús.
SAMTALS Krónur 1.500 þúsund.
5. Menningarverðlaun 2006
Tilnefndir voru:
1.Hornfirska skemmtifélagið fyrir metnaðarfullt starf og dagskrárnar; Blúshátíð og
American Graffiti
2.Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir starf að tónlistarmálum
3.Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason fyrir Þórbergssetur
4.Sveinbjörn Imsland fyrir frumkvöðlastarf við miðlun m.a. menningarefnis innan og utan
sveitarfélagsins
5.Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri fyrir markvissa menningarstarfsemi í skólastarfi
6.Þórbergssetur, fyrir þá uppbyggingu sem varð með samstarfi fjölmargra aðila innan
og utan sveitarfélagsins.
Eftir ítarlegar umræður í nefndinni var það einróma niðurstaða að veita tveimur aðilum verðlaunin að þessu sinni í samræmi við ákvæði 4. greinar reglna um veitingu Menningarverðlauna Hornafjarðar.
Menningarverðlaun 2006 er því veitt:
Þórbergssetur á vart sinn líka Íslandi. Setrið er glæsilegur minnisvarði en um leið miðstöð mikillar menningarstarfsemi þar sem bókmenntir, rannsóknir og ferðamál blandast á áhrifaríkan hátt. Þórbergssetur er vitnisburður um frumherjakraft, faglega nálgun og metnaðarfulla framsetningu. Útkoman er glæsileg og til sóma fyrir þá sem að hafa komið.
Hornfirska Skemmtifélagið er einn af hornsteinum menningarlífs á Hornafirði. Félagar í Skemmtifélaginu hafa af mikilli atorku og metnaði staðið fyrir söngdagskrá og blúshátíð. Starf þeirra hefur verið góð kynning fyrir Hornafjörð og gestir sem sækja viðburði Hornfirska Skemmtifélagsins koma víða að.
7. Önnur mál
Guðrún spyr um framgang mála varðandi Akurey og athugun á ástandi skipsins. Það mál er í vinnslu og nefndinni verður gerð grein fyrir framgangi mála.


