Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 85
85. fundur
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Guðlaug Hestnes, Ingvar Þórðarson.
Einnig Björg Erlingsdóttir
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 13. desember 2006 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Guðlaug Hestnes, Ingvar Þórðarson.
Einnig Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar, engar athugasemdir.
- Staða fjármála Menningarmiðstöðvar. Ásta Halldóra gestur fundarins. Farið yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 og einstakir liðir skýrðir. Rætt um tryggingar. Lausafjártrygging er en munir á Byggðasafni eru t.d. ekki tryggðir. Þetta eru almennt starfsregla hjá Sveitarfélögum. Flygill er tryggður.
- Fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar 2007. Fjárhagsáætlun verður lögð fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn á morgun. Rekstrartekjur eru áætlaðar 18,160 þúsun, laun og launatengd gjöld eru lægri 2007 en 2006 vegna starfsmats, 30,600, annar rekstrarkostnaður Menningarmiðstöðvar 20,650 þúsund, nettó útgjöld 33,090 þúsund en var 33,010 þúsund samkvæmt áætlun árið 2006. Styrkir til menningarmála eru 4,6 milljónir. Hluti af því er samningur við Þórbergssetur og greiðsla til Menningarráðs Austurlands. Nefndin hefur 1,5 milljónir til úthlutunar. Styrkjum til fornleifarannsókna verður úthlutað frá bæjarráði.
Menningarmálanefnd er sátt við fjárhagsáætlun fyrir menningarmál fyrir
árið 2007.
- Höfn 110 ára. Byggðasafnið verður miðpunkur starfsemi MMH árið 2007. Innviðir verða lagfærðir og svæðið í kringum Gömlubúð skipulagt. Jöklasýning stefnir að sýningu sem opnar um páska 2007. Settar verða upp sýningar um sögu byggðarlagsins.
- Byggðasafn. Sagt frá endurbótum á sýningu Byggðasafns og hugmyndir um fjármögnun hennar.
- Menningarverðlaun 2006 Reglum vegna Menningarverðlauna Hornafjarðar dreift og upptalningu þeirra aðila sem hlotið hafa verðlaunin frá upphafi. Auglýst er eftir tilnefningum til verðalaunanna um áramót. Umræða um Menningarverðlaunahafa er á fundi nefndarinnar í janúar. Björgu falið að auglýsa eftir tilnefningum, umsóknarfrestur gefinn til 7. janúar 2007. Auglýst milli hátíða og strax eftir áramótin.
- Styrkir til menningarmála. Styrkúthlutanir verða að venju í janúar. Ljósriti af umsóknum fylgir með göngum til nefndarinnar á þeim fundi.
- Akurey. Björn Arnarsson kemur á fundinn og segir fundarmönnum frá slæmu ástandi skipsins. Rætt um ástand bátsins og hlutverk hans. Menningarmálanefnd lýsir yfir áhyggum af ástandi bátsins og leggur til að fenginn verði sérfróður aðili til þess að meta ástand hans og skila skriflegri greinargerð.
- Önnur mál. Skaftfellingur; menningarmálanefnd tilnefnir Sigurð Hannesson sem ritstjóra Skaftfellings og Kristínu Gísladóttur, fyrrverandi skólastjóra sem fulltrúa í ritstjórnina auk þeirra þriggja sem þegar voru tilnefndir af bæjarstjórn.
Bréf kynnt frá Gísla Sverri Árnasyni, varðandi samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Björgu falið að kynna málið fyrir Ferðamálafélagi Austurskaftafellssýslu. Málið verður tekið fyrir á fundi nefndarinnar í janúar.
Fundi slitið kl. 18:00


