Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 84
84. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 06. desember 2006 kl. 16:00-19:00 í Nýheimum. Fundurinn var vinnufundur menningarmálanefndar vegna stefnumótunar í menningarmálum sveitarfélagsins. Til fundarins voru boðaðir aðal- og varamenn nefndarinnar ásamt starfsmönnum Menningarmiðstöðvar.
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Guðlaug Hestnes, Gauti Árnason, varamenn: Eyjólfur Guðmundsson, Sædís Guðmundsdóttir, Hafdís Roysdóttir, starfsmenn Menningarmiðstöðvar: Björg Erlingsdóttir, Björn Arnarson, Guðrún Jónsdóttir, Guðný Svavarsdóttir, Sigurður Hannesson, María Gísladóttir og Ásdís Marteinsdóttir.
1. Samantekt vegna endurskoðunar stefnumótunar í menningar- og safnamálum Hornafjarðar
Haldið áfram þaðan sem frá var horfið á fundi 22. nóvember við yfirferð samantektar vegna endurskoðunar stefnumótunar í menningar- og safnamálum Hornafjarðar. Á fundinum var farið yfir lýsingar á starfsemi Menningarmiðstöðvar, deilda hennar og annarri menningarstarfsemi MMH. Ákveðið að MMH fylgist með og fylgi eftir, hvort markmið stefnumótunar náist. Í endurskoðaðri stefnumótun er sett fram mælitæki og mælivísar. Þeir þættir sem sérstaklega verður fylgst með eru Fjárhagur, Þjónusta, Starfshættir og Starfsmannamál. Farið var yfir heiti stofnana MMH og ákveðið að samræma þau. Deildir Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar verða sem hér segir: Byggðasafn, Bókasafn, Héraðsskjalasafn, Náttúrugripasafn og Listasafn. Í auglýsingum, t.d. fyrir Byggðasafn, verður textinn svohljóðandi; Menningarmiðstöð Hornafjarðar - Byggðasafn eða Byggðasafnið á Höfn. Á fundinum var farið yfir Kjörorð og Framtíðarsýn fyrir starfsemi Menningarmiðstöðvar og deilda hennar. Ákveðið var að funda aftur 24. janúar 2007 kl. 16-19 í Nýheimum. Á þeim fundi verður dreift nýrri og leiðréttri stefnumótun.
Fundi slitið kl. 19:00


