Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 82
82. fundur
Mættir voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Guðlaug Hestnes, Gauti Árnason, Ingvar Þórðarson, varamenn: Eyjólfur Guðmundsson, Sædís Guðmundsdóttir, Hafdís Roysdóttir, starfsmenn Menningarmiðstöðvar: Björg Erlingsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðný Svavarsdóttir, Sigurður Hannesson, María Gísladóttir og Ásdís Marteinsdóttir.
1. Samantekt vegna endurskoðunar stefnumótunar í menningar- og safnamálum Hornafjarðar
Farið yfir samantekt sem Menningarmiðstöð lagði fram. Í samantektinni er að finna endurskoðaða stefnumótun fyrir Menningarmiðstöð og deildir hennar og umfjöllun um starfsemi MMH. Á fundinum var farið yfir stefnumótun Menningarmiðstöðvar, Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu, Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Höfn, Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu, Náttúrugripasafns og Listasafns.Svokölluð SVÓT-greining var gerð fyrir hverja deild og athugasemdir og lagfæringar á texta. Ákveðið var að funda aftur 06. desember kl. 16-19 í Nýheimum og eru aðalmenn, varamenn og starfsmenn MMH einnig boðaðir til þess fundar. Á þeim fundi verður dreift nýrri og leiðréttri samantekt, með ábendingum þessa fundar. Á fundinum 06. desember verður farið yfir menningarstarfsemi sveitarfélagsins, lýsingar hennar og áhersluatriði. Þá verður einnig fjallað um nánari útfærslu menningarmálanefndar á áhersluþáttum í menningarstarfi sveitarfélagsins, fjallað um Listvinasjóð og um þá mælikvarða sem stungið er uppá í endurskoðun stefnumótunar.
Fundi slitið kl. 20:10
Fundargerð samþykkt í tölvupósti


