Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 80
80. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudagurinn 13. september 2006 kl. 16:00 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Ingvar Þórðarson, Gauti Árnason og Guðlaug Hestnes. Einnig: Björg Erlingsdóttir og Stefán Ólafsson.
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir gerðar.
Formaður býður nýjan forstöðumann og nefndarmenn velkomna til starfa.
2. Nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar kynntur
Björg Erlingsdóttir kynnir sig sem og nefndarmenn.
3. Vettvangsferð
Farið í skoðunarferð í Nýheima, Gömlubúð, Pakkhús og Verbúð í Miklagarði. Jöklasýning verður skoðuð í lok næsta fundar.
4. Önnur mál.
· Erindi Þorbjargar Arnórsdóttur um fyrirhugað hátíðarþing í Þórbergssetri 13. og 14. október næstkomandi, vísað til menningarmálnefndar af bæjarráði. Formaður leggur til að Björg verði fulltrúi Menningarmiðstöðvar en tekur jafnframt fram að öllum starfsmönnum og nefndarmönnum sé heimil þátttaka á þinginu. Nefndarmenn samþykkja þetta.
· Stefnumótun, ljúka þarf endurskoðun stefnumótunar og huga að undirbúningi stefnumótunarvinnunnar. Aðal og varamenn verði þátttakendur ásamt starfsmönnum Menningarmiðstöðvar.
· Hafnarvík-Heppa, er annað verkefni sem þarf að huga að.
· Þróunarstofa Austurlands vann viðskiptaáætlun fyrir Miklagarð.
· Nefndin þarf auk þessa að setja sér dagskrá fyrir þá fundi sem framundan eru.
· Tillaga að starfsáætlun á að vera tilbúin fyrir næsta fund Menningarmálanefndar.
· Guðlaug bendir á Fundarhúsið í Lóni og að ástand þess sé ekki gott.
· Fyrirspurn um safn Sverris Scheving Thorsteinssonar.
Fundargerð samþykkt af fundarmönnum með tölvupósti.
Fundi slitið kl. 18:30


