Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 78
78. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 17. maí 2006 kl. 16:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir, Guðlaug Hestnes, Bryndís Hólmarsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Rætt um málþing um skapandi atvinnugreinar. Kom fram að málþingið hafi að mörgu leiti verið jákvætt en einnig að ýmislegt hafi áður komið fram.
2. Þróun fjármála á yfirstandi kjörtímabili
Lögð fram gögn sem sýna þróun útgjalda til menningarmála í Sveitarfélaginu Hornafirði 2002-2006. Þar kom fram að sértekjur Menningarmiðstöðvar hafa aukist um 13 miljónir króna frá árinu 2002-2005. Útgjöld sveitarfélagsins til menningarmiðstöðvar hafa á sama tíma aukist úr rúmum 24 miljónum króna árið 2002 í rúmar 28 miljónir króna árið 2005. Vægi menningarmála hjá Sveitarfélaginu Hornafirði miðað við skatttekjur var 4,7% árið 2002 en var tæplega 4% árið 2005.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar er sammála um að framlögð gögn sýna að þrátt fyrir að haldið sé uppi öflugu menningarstarfi í sveitarfélaginu hafi framlag úr bæjarsjóði lækkað sem hlutfall af skatttekjum á þessu kjörtímabili.
3. Þórbergssetur
Þorbjörg Arnórsdóttir greindi frá stöðu mála hjá Þórbergssetri og þakkaði fyrir þá umfjöllun sem málefni þess hafa fengið hjá sveitarfélaginu. Hún rakti vinnu við fjármögnun sem gengið hafi vel og öll meginmarkmið hafi náðst. Stjórn Þórbergsseturs hafi hugsað setrið sem hliðstæðu Gljúfrasteins og Skriðuklausturs og það sé ein af meginástæðum fyrir því að ríkisstjórnin hafi ákveðið að koma myndarlega að uppbyggingu Þórbergsseturs. Einnig er stefnt að gerð samstarfsamnings milli Gljúfrasteins og Þórbergsseturs. Hann kemur m.a. til með að fela í sér að rekstrarform þessara tveggja setra verði áþekkt.
Framkvæmdir við sýninguna ganga ágætlega og þrátt fyrir knappan tímaramma verður setrið opnað þann 1. júlí 2006. Jón Þórisson er höfundur sýningarinnar og greindi Þorbjörg í grófum dráttum frá innihaldi sýningarinnar. Sýningin verður tvískipt. Annars vegar verður sýningarsalur þar sem hægt verður að setja upp ólíkar sýningar, t.d. með ljósmyndum og málverkum og hins vegar upplifunar- og fræðslusýning þar sem líf og list Þórbergs er í forgrunni ásamt sögu Suðursveitar í aldanna rás.
Menningarmálanefnd hvetur til þess að áður samþykktur samningur sveitarfélagsins við Þórbergssetur verði undirritaður sem fyrst.
4. Sisimuit boð um farandsýningu
Menningarmálanefnd vísar erindinu til starfsfólks Menningarmiðstöðvar en leggur áherslu á að verkefnið verði að rúmast innan fjárhagsáætlunar.
5. Önnur mál
· Guðlaug spurði um viðhald á Fundarhúsi Lónmanna. Hjalti gerði grein fyrir að styrkur hafi fengist úr Húsafriðunarsjóði að upphæði kr. 100.000. Í kjölfarið gerði Hjalti grein fyrir áformum um viðhald á Gömlubúð og Akurey.
· Bryndís spurði um frestun á útgáfu Skaftfellings. Hjalti greindi frá að í fyrsta lagi hafi orðið seinlegra að viða að efni í útgáfuna en áætlað var. Í öðru lagi eru nýir aðilar sem koma að útgáfunni og hafi þurfti tíma til að ná utan um verkefnið.
· Hermann ræddi um söfn Sverrir Scheving og hvar þau mál standa og rakti samskipti við Sverrir á undaförnum vikum og mánuðum. Menningarmálanefnd lýsir yfir miklum vonbrigðum að Sverrir Scheving hafi ekki enn tekið ákvörðun um framtíð sinna safna. Frá því að hann fyrst orðaði þann möguleika að afhenda söfnin til sveitarfélagsins og fékk geymslu undir þau frá sveitarfélaginu hafa liðið allmörg ár. Menningarmálanefnd telur afar mikilvægt að þessu máli ljúki sem fyrst.
· Hjalti greindi frá ferð á vegum NEST verkefnisins til Höga Kusten í Svíþjóð þar sem markmiðið var að kynna sér ferðaþjónustu á svæðinu og hvernig gæðamálum er háttað.
· Nefndarmenn þökkuðu hver öðrum fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili.
Fundi slitið kl. 17.50


