Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 48
48. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 14. maí 2003 kl. 16:00.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Þorbjörg Arnórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir og Ágústína Halldórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar, 9. apríl, lögð fram til kynningar. Einnig bréf með bókun bæjarráðs vegna þess fundar.
2. Málþing um Þórberg Þórðarson
Kynnt var dagskrá málþingsins en fjöldi fyrirlesara leggur því efni. Sagt var frá formlegri stofnun sjálfseignarstofnunar um Þórbergssetur og samstarfssamningi milli þess og ýmissa fræða- og menningarstofnana sem undirritaður verður á ráðstefnunni.
3. Rekstur
Lögð voru fram gögn um flygilkaup, styrkumsóknir og rekstur Menningarmiðstöðvar til 1. maí.
Einnig reglur um gjaldtöku fyrir notkun á húsnæði og búnaði í umsjón Menningarmiðstöðvar sem taka mið af nýsamþykktum reglum bæjarráðs. Sagt var frá fyrirhugaðri fjármögnun á listskreytingu í Nýheimum og boði um kaup bæjarins á ljósmyndasafni Jóhönnu Valgerðar. Menningarmálanefnd leggur áherslu á varðveislu þessa mikla heimildasafns heima í héraði auk þess sem mikilvægt er fyrir íbúana á staðnum að hafa áfram aðgang að því.
4. Vorfundur SFA
Kynnt var dagskrá vorfundar Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna sem haldinn verður á Höfn 14. – 16. maí.
5. Samningar um Pakkhúsið
Lagðir voru fram samningar við Handraðann og Humarhátíðarnefnd dags. 25. apríl 2003.
6. Önnur mál
• Kynnt var minnisblað um söfn Sverris Schevings Thorsteinssonar og Lovísu Gunnarsdóttur dags. 2. maí 2003. Menningarmálanefnd hvetur bæjarráð eindregið til þess að afgreiða málið á grunni minnisblaðsins.
• Sagt var frá ráðningu tveggja starfsmanna til Menningarmiðstöðvar.
• Menningarmálanefnd ítrekar að mikilvægt er að fá niðurstöðu í umræðu um Sindrabæ og fjárstuðning menntamálaráðuneytisins við uppbyggingu menningaraðstöðu.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:00


