Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 76
76. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 8. mars 2006 kl. 16:00 í fundarsal Nýheima. Mætt voru: Hermann Hansson, Ágústína Halldórsdóttir (mætti á fundinn kl. 16.30), Guðlaug Hestnes og Ari Hannesson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Gerð grein fyrir fundi sem Albert Eymundsson, Hermann Hansson og Hjalti Þór Vignisson áttu með Sverri Scheving Thorsteinsyni um samskipti Sverris og Sveitarfélagsins.
2. Svör Safnaráðs vegna styrkja
Lagt fram úthlutun úr Safnasjóði 2006 sem samþykkt var á fundi Safnaráðs þann 16. febrúar 2006. Kom fram að til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar var samþykkt að veita 2,4 m.kr. í rekstrarframlag en engin styrkur fékkst vegna verkefna.
3. Þórbergssetur
(Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi Austurlands, mætti á fundinn kl. 16:40).
Mikil umræða skapaðist um aðkomu sveitarfélagsins og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar að uppbyggingu og rekstri Þórbergsseturs. Rætt um fordæmisgildi og jafnræði. Signý taldi eðlilegt að þessi samningur yrði lagður fyrir Menningarráð Austurlands.
Bæjarráð óskaði eftir umsögn Menningarmálanefndar Hornafjarðar um drög að samningi milli sveitarfélagsins og Þórbergsseturs. Í því sambandi vill Menningarmálanefnd bóka eftirfarandi:
“Menningarmálanefnd telur eðlilegt að komið sé á formlegu samstarfi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Þórbergsseturs og vísar þar sérstaklega til þess að í samningi milli sveitarfélaganna á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um Menningarráð Austurlands og menningarmiðstöðvar á Austurlandi er Menningarmiðstöð Hornafjarðar falið það sérsvið að fjalla um bókmenntir og handverk. Í því sambandi telur nefndin að samningur við Þórbergssetur geti orðið til þess að gera þessu sérstaka verkefni betri skil og auka samtímis samstarf við sambærilegar stofnarnir eins og t.d. Gljúfrastein og Gunnarsstofnun. Menningarmálanefnd leggur áherslu á eftirfarandi:
· að áður en samningur sá sem nú er til umfjöllunar kemur til framkvæmda verði tryggt að heildarfjármögnun Þórbergsseturs liggi fyrir og einnig verði lagðar fram upplýsingar um rekstrartilhögun og fjármögnun rekstrarins.
· að sá fjárhagslegi stuðningur sem í samningnum felst verði ekki með neinum hætti notaður í tengslum við rekstur á samkeppnisgrundvelli, sem rekinn kann að verða í tengslum við starfsemi Þórbergsseturs.
· að Menningarráð Austurlands staðfesti að samningur þessi uppfylli ákvæði 3. greinar samnings um þróunarverkefni á sviði bókmennta, sem Menningarmiðstöð Hornafjarðar er ætlað í samningi við Menningarráðið.
· Loks vill menningarmálanefnd árétta að ekki er unnt að uppfylla samning þennan nema til komi tilsvarandi breyting á fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvarinnar og fjárframlag sveitarfélagsins hækki um þá fjárhæð.”
4. Menningarráð Austurlands
Signý Ormarsdóttir, Menningarfulltrúi Austurlands, fór yfir stefnu og starfsemi Menningaráðs Austurlands. Í máli hennar kom fram að samvinna á milli einstakra svæða á Austurlandi í menningarmálum hefur ekki aukist eins og stefnt var að. Hins vegar hefur samvinna innan listgreina aukist, t.d. er tónlistarfólk allstaðar að úr fjórðungnum að vinna saman. Þá fór Signý yfir helstu verkefni Menningaráðsins og taldi að þau stóru verkefni sem ráðið hefur komið að séu til marks um gildi samningsins fyrir menningarmál á Austurlandi. Árangur samningsins felst einna helst í því að íbúar á Austurlandi eru í auknum mæli meðvitaðir um gildi menningarlífs, framboð af menningarviðburðum í heimabyggð hafa vaxið og meiri gróska er í listsköpun og menningarstarfi. Að lokum sagði Signý frá ýmsu sem betur má fara, t.d. að fjölga megi viðburðum að vetri til og betur þurfi að standa að markaðssetningu og kynningu á viðburðum. (Ari vék af fundi kl. 17.50)
Í kjölfarið skapaðist nokkur umræða um starf Menningarráðsins og um menningarmál á Austurlandi. (Signý vék af fundi kl. 18.05).
5. Framtíð Miklagarðs
Lögð fram drög að viðskiptaáætlun fyrir Miklagarð. Ráðgert er að kynna viðskiptaáætlunina á málþingi um skapandi atvinnugreinar sem er áætlað að halda þann 27. apríl 2006.
6. Myndir Jón Þorleifssonar, bréf Gunnars Más Haukssonar dags. 14. febrúar 2005
Menningarmálanefnd fagnar bréfi Gunnars þar sem kemur fram að Sveitarfélaginu er boðið málverk eftir Jón Þorleifsson til eignar. Gerð grein fyrir hugmynd um myndlistarsýningu í tengslum við 110 ára afmæli Hafnar á næsta ári þar sem sett yrði upp sýning með verkum hornfirskra myndlistarmanna.
Starfsmanni falið að svara erindinu.
7. Önnur mál
· Ákveðið að næsti fundur verði síðasta vetrardag, þann 19. apríl n.k. Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.15


