Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 75
75. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 8. febrúar 2006 kl. 16.00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir og Guðlaug Hestnes. Einnig: Hjalti Þór Vignisson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð síðasta fundar til kynningar.
2. Listvinasjóður Hornafjarðar
Kom fram að tekjur ársins hafi numið kr. 557.526 og gjöld hafi numið kr. 499.760.
Eign sjóðsins í árslok 2005 var kr. 495.653.
3. Menningarráð Austurlands
Gerð grein fyrir verkefnum sem fyrirhugað er að sækja um í nafni menningarmiðstöðvar. Lögð áhersla á að Menningarmiðstöðin hvetji aðila á Hornafirði að sækja um styrki.
4. Önnur mál
· Hermann ræddi um stofnstyrki til menningarhúsa. Hjalti gerði grein fyrir að menntamálaráðuneytið hafi greitt út styrkinn en honum hafi ekki verið ráðstafað. Rifjað upp að Menningarmálanefnd lagði til að þeim yrði ráðstafað til uppbyggingar á Miklagarði. Menningarmálanefnd leggur áherslu á að tekin verði ákvörðun um framtíð Miklagarðs sem fyrst.
· Rætt um auglýsingar á Vatnstank og umhverfi hans. Rætt um að þörf sé að endurnýja samning varðandi auglýsingar og koma innheimtu í fastar skorður.
· Bryndís ræddi um söfn Sverris Scheving og lagði áherslu á að þau mál komist á hreint.
· Rætt um Þórbergssetur, RÚV á Austurlandi og markaðssetningu fyrir svæðið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30


