Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 33
33. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn , miðvikudaginn 16. janúar 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Inga Jónsdóttir, Guðlaug Hestnes, Þorbjörg Arnórsdóttir, Heimir Heiðarsson og Sigurður Hannesson. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Útleiga Pakkhússins
Menningarmálanefnd felur Gísla Sverri að semja við Handraðann um leigu á Pakkhúsinu í samræmi við umræðu sem fram fór á fundinum.
3. Fjárveiting til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Gísli Sverrir fór yfir eftirfarandi tillögu að ráðstöfun 7 milljón kr. fjárveitingar frá Alþingi til stofnkostnaðar við Menningarmiðstöð Hornafjarðar 2002 :
|
- Stólakaup ( hluti af stærra verkefni sveitarfélagsins ) 100 stólar |
1,0 millj. kr. |
|
- Viðgerð á Pakkhúsinu lokið utan og innan. Gróf áætlun |
4,0 millj. kr |
|
- Til annara nota |
2,0 millj. kr |
Menningarmálanefnd samþykkir tillöguna .
4. Aðsókn og útlán árið 2001
Gísli Sverrir lagði fram yfirlit um aðsókn að söfnum 2001. 50% aukning varð á gestakomum í Gömlubúð á milli 2000 og 2001 og voru gestir á síðasta ári 3.603. Í Pakkhúsinu var 56% aukning milli ára og voru gestir safnsins á síðasta ári 2.849. 18,7% aukning varð á útlánum á bókasafninu sem alls voru 28.147 á árinu 2001.
5. Hafnarvík - Heppa. Mannlíf og minjar
Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur gefið út glæsilegann bækling um gamla hafnarsvæðið. Rætt var um möguleika á uppbyggingu við höfnina og ákveðið að stefna að almennum fundi um málið 9. febrúar n.k.
6. Menningarverðlaun 2001
Menningarmálanefnd gekk frá tilnefningum til menningarverðlauna 2001.
Tilnefningar ekki gefnar upp að sinni.
7. Humarhátíð 2002
Menningarmálanefnd sammála um að skipuleggja menningardagskrá sem falli inn í hátíðarhöld humarhátíðar.
8. Boð um tónleika
Farið var yfir þá tónleika sem okkur bjóðast á næstunni. Samþykkt að reyna að komast að samkomulagi við Tröllagígjurnar Kontrabassakvartett og skoða betur aðra tónleika sem í boði eru m.a. tónleika með Eyjólfi Kristjánssyni og Stefáni Hilmarssyni.
9. Afgreiðsla styrkja
Inga Jónsdóttir vék af fundi.
Samþykkt var að veita eftirfarandi aðilum styrk :
Kórar
|
Karlakórinn Jökull |
kr. 200.000 |
|
Kvennakór Hornafjarðar |
kr. 200.000 |
|
Gleðigjafar - kór aldraðra |
kr. 50.000 |
|
Samkór Hornafjarðar |
kr. 50.000 |
|
Barnakór Hornafjarðar og Vox Luminae |
kr. 100.000 |
Leiklist
|
Leikfélag Hornafjarðar |
kr. 200.000 |
|
Leikhópur Mána/Leikhópurinn Lopi |
kr. 50.000 |
|
Magnús J. Magnússon |
kr. 50.000 |
Tónlist
|
Harmonikkufélag Hornafjarðar |
kr. 75.000 |
|
Lúðrasveit Hornafjarðar |
kr. 75.000 |
|
Jassfélag Hornafjarðar |
kr. 50.000 |
Ýmis framlög
|
Listvinasjóður Hornafjarðar |
kr. 200.000 |
|
Camp Hornafjörður |
kr. 150.000 |
|
Fornleifafélag Öræfa |
kr. 50.000 |
Samþykkt að vísa umsókn um fornleifarannsókn við Hólm til bæjarráðs.
10. Önnur mál
Rætt var um að koma verkefninu „Menningardagskrá barna“ í ákveðinn farveg og fram kom Sigurður Hannesson er að kanna möguleika á að haldin verði dægurlaga-samkeppni hér á Höfn.
Fundi slitið kl 18:45


