Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð Menningamálanefndar 34

34. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 13.febrúar 2002 kl. 16:00.

Mætt voru: Inga Jónsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir, Heimir Heiðarsson og Sjöfn Óskarsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.



Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :



1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.



2. Tilnefning til menningarverðlauna

Verðlaunahafi 2002 verður Jóhann Morávek fyrir tónlist við kvikmynd á jöklasýningu og þátt hans í menningarnótt í Reykjavík. Farið var yfir aðrar tilnefningar sem fram komu á síðasta fundi. Þessir fengu tilnefningu auk verðlaunahafans:

· Björn G. Arnarson fyrir óeigingjarnt starf að söfnun og varðveislu muna og fuglarannsóknir.

· Fornleifafélag Öræfa fyrir frumkvæði að fornleifarannsóknum.

· Guðbjartur Össurarson fyrir kveðskap og stuðning við menningarstarf.

· Gunnlaugur Þ. Höskuldsson fyrir áralangt og óeigingjarnt tónlistarstarf á Hornafirði.

· Horn.is fyrir áhugaverðan upplýsingavef.

· Kristín Gestsdóttir fyrir framlag í menningarnótt í Rvík.

· Þorbjörg Arnórsdóttir fyrir kynningu á Þórbergi Þórðarsyni með ratleik og fl..

· Þrykkjan og Haukur H. Þorvaldsson fyrir frumkvæði og fjölþætt starf fyrir ungmenni.



Samþykkt að taka upp umræðu um reglur varðandi menningarverðlaun á næsta fundi.



3. Jöklasýning

Inga fylgdi úr hlaði skýrslu um sýninguna sl. sumar. Gestir voru um 3000 þrátt fyrir að sýningin var opin 752 klst. í stað 1488 klst. árið áður. Margar nýjungar koma fram á sýningunni og sjö fyrirlestrar voru fluttir í tengslum við hana.

Inga varpaði fram hugmynd um að ókeypis yrði inn á sýninguna og söfnin á Höfn og vísaði til góðrar reynslu af því í gestastofu í Skaftafelli.

Rætt var um undirbúning jöklasýningar í sumar og bent á að tryggja þurfi betur fjárhagsgrundvöll hennar, skipuleggja dagskrá og endurbætur, athuga með húsnæði og halda áfram með undirbúning Jöklaseturs á Hornafirði.

Samþykkt að fela Ingu, Gísla Sverri og Ingu Jónu að leggja fram tillögur um jöklasýningu 2002 á næsta fundi.



4. Hafnarvík – Heppa, Mannlíf og minjar

Ekki tókst að halda opinn fund um málið 9. febrúar s.l.. Ákveðið að stefna að fundi

7. mars og bjóða hafnarstjórn að standa að fundinum með menningarmálanefnd.



5. Framkvæmdir í Nýheimum

Gísli Sverrir gerði grein fyrir byggingarframkvæmdum en bókasafn og skjalasafn flytja í Nýheima og sameinast bókasafni FAS síðar á þessu ári. Hann kynnti einnig tillöguteikningar að innréttingum á safnið.



6. Þórbergssetur

Þorbjörg gerði grein fyrir hugmyndum að stofnun Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit. Hugmyndirnar komu fram fyrir mörgum árum en hafa tekið á sig formlegri mynd s.l. tvö ár. Gert er ráð fyrir að stofna sjálfseignarstofnun um setrið og leita til ýmissa aðila varðandi stuðning við það. Í safninu verði sýningaraðstaða auk aðstöðu fyrir fræðimenn. Í fundargögnum fylgdi einnig grein um Þórberg sem birtist nýlega á horn.is auk tilboðs frá Galdri ehf. um að gera vefinn thorbergur.is í samvinnu við menningarmálayfirvöld.

Menningarmálanefnd fagnar þessu frumkvæði og hvetur til þess að unnið verði að stofnun setursins sem fyrst. Nefndin hvetur einnig skólana hér að taka þátt í að halda uppi heiðri Þórber hér heima í héraði.



7. Starfið framundar

Eftirtaldir viðburðir eru í undirbúningi eða athugun:

· Kontrabassakvartett (Tröllabassar) með Karlakórnum Jökli í mars.

· Eydís Franzdóttir óbó og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó 24. febrúar.

· Camerartica – sextett með verk eftir Mozart júní.

· Sýning í Pakkhúsinu í maí, Steinunn Helga Sigurðardóttir og HanneGotfeld.

· Rússibanarnir.

· Duo denum – tveir danskir tónslistarmenn.

· Menningarhátíð barna.



8. Önnur mál

Gísli Sverrir minnti á auglýsingu um styrki frá Menningarráði Austurlands.



Fleira ekki tekið fyrir

Heimir Heiðarsson Gísli Sverrir Árnason

Inga Jónsdóttir

Þorbjörg Arnórsdóttir

Sjöfn Óskarsdóttir


Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica