Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 35
35. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, miðvikudaginn 20. mars 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Inga Jónsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir, Guðlaug Hestnes og Sigurður Hannesson. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð frá 13. febrúar. Óskað eftir eftirfarandi lagfæringum: Í lista yfir þá sem fengu tilnefningu til menningarverðlauna féll niður nafn Kvennakórs Hornafjarðar sem fékk tilnefningu fyrir öflugt kórstarf. Einnig misritaðist nafn Hanne Godtfeld myndlistarmanns. Umræðu um menningarverðlaun frestað til næsta fundar.
Einnig lögð fram fundargerð opins fundar um Hafnarvík - Heppu frá 7. mars 2002.
Greint frá því að Menningarmiðstöð Hornafjarðar hafi fengið 500.000 kr. styrk frá Húsafriðunarsjóði til þess að vinna áfram að þessu verkefni.
2. Gjaldskrá og reglur bókasafns
Lagðar fram tillögur að eftirfarandi breytingum á gjaldskrá bókasafns:
Fyrir nýtt bókasafnsskírteini í stað glataðs greiði lánþegi 250 kr. í stað 500 kr.
Sekt sem greiða þarf eftir skiladag vegna myndbanda verði 300 kr. á dag í stað 100 kr.
Breytingarnar samþykktar.
3. Jöklasýning
Lagt var fram minnisblað frá Ingu Jónsdóttur og Gísla Sverri Árnasyni dags. 19. mars 2002 þar sem varpað er fram til umræðu hugmyndinni um að Jöklasýning og sýning á verkum Svavars Guðnasonar yrðu í Vöruhúsi KASK frá næsta sumri. Gert er ráð fyrir að leigja 3ju hæð hússins og hluta miðhæðar eða rúmlega 500 fm. Húsið allt er rúmlega 1300 fm. Einnig voru lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir þetta verkefni fyrir árin 2002 og 2003. Í tengslum við þessa umræðu var rætt um ráðstöfun á 7 millj. kr. fjárveitingu til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá ríkinu árlega næstu 3 árin. Eftirfarandi var samþykkt:
Menningarmálanefnd telur að þessi kostur gæti gefið Hornfirðingum ný sóknarfæri í markaðssetningu og kynningu héraðsins allt árið. Nefndin hvetur bæjarráð til þess að taka ákvörðun sem fyrst, á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir og reynslu af Jöklasýningu sl. tvö ár, að tryggja þetta húsnæði þar til sérhannað húsnæði fyrir Jöklasetur verður að veruleika.
4. Starfið framundan
Eftirfarandi viðburðir verða nú næstu daga og um páska:
Tröllagígjurnar og Karlakórinn Jökull n.k. laugardag.
Sýning á ljósmyndum Hans Malmbergs í Pakkhúsi í samstarfi við Þjóðminjasafn.
Sýning á munum úr safni Sverris Scheving Thorsteinssonar í Gömlubúð.
Ennfremur voru kynnt erindi frá brúðuleikhúsi Hallveigar Thorlaciusar og Berglindi Björgúlfsdóttur sópransöngkonu.
5. Önnur mál
Meningarmálanefnd Hornafjarðar beinir því til Þjóðleikhússins að næsta leikferð um landið verði hugsuð fyrir börn. Bendir nefndin á leikritið um Karíus og Baktus sem nú er í gangi í leikhúsinu.
Þorbjörg vakti athygli á því að ástæða væri til þess að skipuleggja fleiri menningarviðburði í tengslum við Humarhátíð á Hornafirði.
Fleira ekki tekið fyrir,
fundi slitið kl. 18:00


