Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 37
37. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Pakkhúsi, miðvikudaginn 22. maí 2002 kl. 16:00.
Mætt voru: Inga Jónsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir, Björn Kristjánsson, Guðlaug Hestnes, Heimir Heiðarsson og Sigurður Hannesson. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Formaður setti fund og bauð fólk velkomið til þessa síðasta fundar kjörtímabilsins.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Fundargerð síðasta fundar
Fram kom að ekki hefði tekist að fá þátttakendur í Íslandsleikhús sem var kynnt á síðasta fundi. Reynt verður áfram að finna tvö ungmenni.
2. Jöklasýning og sýning á verkum Svavars Guðnasonar
Inga sagði frá undirbúningi þess að setja upp þessar tvær sýningar í Vöruhúsi KASK en stefnt er að opnun þeirra 1. júní n.k. Bæjarfélagið og kaupfélagið gerðu skammtímasamning (til áramóta) með viljayfirlýsingu um áframhaldandi leigu. Ákvörðun um það byggist á viðtökum í sumar, fjármögnun ofl. Auglýst hefur verið eftir starfsfólki og hafa allmargar umsóknir borist.
3. Listvinasjóður
Lagðar voru fram tillögur að breytingum á Skipulagsskrá Listvinasjóðs Hornafjarðar sem Inga, Guðlaug og Gísli Sverrir hafa undirbúið. Samið hefur verið við Bókhaldsþjónustuna um að setja upp reikninga sjóðsins. Áætluð staða sjóðsins núna er tæplega ein milljón kr. Breytingatillögurnar voru samþykktar.
4. Ársskýrsla 2001
Lögð voru fram dög að ársskýrslu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og menningarmálanefndar Hornafjarðar fyrir árið 2001. Nefndarmenn fögnuðu skýrslunni sem sýnir vel hve viðburðarríkt sl. ár var í menningarmálum. Í tilefni af skýrslunni var rætt um menningar- og listahátíð barnasem haldin var sl. ár. Ákveðið að vinna að framhaldi á henni í samráði við grunnskóla, tónskóla o.fl. Ákveðið var að gefa skýrsluna út í sérstöku hefti.
5. Önnur mál
· Tveir samningar hafa verið gerðir um Pakkhúsið í sumar. Við Handraðann og Humarhátíðarnefnd.
· Kynntar voru nokkrar sýningar sem ráðgerðar eru í Pakkhúsi í sumar og haust.
· Sagt var frá áhuga Vinabæjarnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga á því að Hornafjörður eignaðist vinabæ á Grænlandi. Nefndin benti Hornfirðingum á bæinn Sisimiut á vesturströnd Grænlands en íbúafjöldi þar er 5.370.
Í lok fundar sagði Inga frá sýningunni „ að draga andann “ sem nú er að ljúka í Pakkhúsi.
Formaður þakkaði fyrir samstarfið á kjörtímabilinu og tóku aðrir fundarmenn undir og þökkuðu hver fyrir sig.
Fleira ekki tekið fyrir,
fundi slitið kl. 18:00


