Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð Menningamálanefndar 38
38. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, mánudaginn 1. júlí 2002 kl. 16:00. Þetta var fyrsti fundur nýkjörinnar nefndar.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Heimir Ö. Heiðarsson, Ágústína Halldórsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason.
Formaður bauð fulltrúa í nýrri menningarmálanefnd velkomna til starfa.
Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :
1. Lögð fram eftirtalin gögn til kynningar og umræðu:
a) Kjörbréf nefndarmanna
b) Erindisbréf nefndarinnar (um er að ræða erindisbréf fyrri nefndar sem þarf að endurskoða)
Bent var á fáein atriði sem þyrftu að koma til athugunar áður en nýtt erindis-bréf verður gefið út. Meðal annars: fjöldi fulltrúa, heiti Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, lagaákvæði, ákvæði um vinabæjarsamstarf, Jöklasýning og/eða Jöklasetur sem verkefni nefndarinnar.
c) Ákvæði um menningarmál í málefnasamningi núverandi meirihluta
d) Stefna sveitarfélagsins í menningar- og safnamálum 2000-2010
Rætt var um nokkur atriði í stefnumótuninni svo sem listahátíð ungs fólks, Miklagarð og hafnarsvæðið, minnisvarða og útilistaverk og útnefningu bæjarlistamanns.
e) Fjárhagsáætlun og staða bókhalds nú
Lagt var fram yfirlit um stöðu bókhalds á liðnum 05 - Menningarmál og samanburður við fjárhagsáætlun ársins. Vakin var athygli á því að ekki er gert ráð fyrir kostnaði við flutning bóka- og skjalasafns í nýtt húsnæði eða rekstri í því. Brýn nauðsyn er að endurskoða fjárhagsáætlun ársins í tilefni af þessum breytingum.
f) Ársskýrsla Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2001
Farið var yfir skýrsluna og vakin athygli á nokkrum atriðum í henni. Samþykkt að stefna að því að gefa hana út á næstunni.
g) Skipulagsskrá Listvinasjóðs Hornafjarðar
h) Samningur um menningarmál á Austurlandi frá 14. maí 2001
Samningurinn var kynntur og sagt frá viðræðum um rekstrarframlög ríkisins til menningarmiðstöðva.
2. Meginverkefni Menningarmiðstöðvar í sumar
Upplýsingar um verkefni framundan, gestafjölda o.fl. voru lagðar fram.
3. Bréf frá bæjarráði dag. 24. júní um Styrktarsjóð EBÍ
Sveitarfélaginu er boðið að senda inn umsókn um styrk úr sjóðnum, m.a. til verkefna á sviði menningarmála. Menningarmálanefnd leggur til að sótt verði um styrk til þess að setja upp síritandi rannsóknartæki á Jöklasýningu í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Raunvísindadeild Háskólans o.fl.
4. Bréf frá bæjarráði dags. 24. júní um erindi Listasafns Íslands
Í bréfinu er vakin athygli á sýningum sem í boði eru frá Listasafninu en kostnaður við þær er talsverður. Áhugi var á að fá einstakar sýningar en samþykkt að bjóða Listasafninu upp á að fá lánaðar myndir eftir hornfirska listamenn í eigu sveitarfélagsins í stað sýningar frá því.
5. Bréf frá Þorgerði Sigurðardóttur dags. 4. júní
Kynnt var efni bréfsins sem varðaði listsýningu í Pakkhúsinu næsta sumar.
6. Fundatilhögun: Dagur, staður, tími
Lögð var fram tillaga frá bæjarskrifstofum um fundartíma nefnda. Ekki var gerð tillaga um breytingu á honum á þessu stigi. Næsti fundur verður þá annan miðvikudag í september.
7. Önnur mál
Þorbjörg sagði frá uppsetningu skilta um Þórberg Þórðarson og hvatti til þess að víðar verði hugað að uppsetningu fræðsluskilta. Kostnaður við þau þurfi ekki að vera mikill ef textagerð og önnur undirbúningsvinna er unnin heima fyrir.
Guðlaug ræddi um áhuga á að keypt yrði hljóðfæri í Nýheima. Hún sagði frá mjög góðu tilboði á flygli sem henni væri kunnugt um. Slíkt hljóðfæri yrði mjög mikil lyftistöng fyrir húsið og tónlistarlíf í byggðarlaginu. Nefndin tekur undir það að mikilvægt væri að kaupa gott hljóðfæri í húsið og hvetur til þess að leitað verði allra leiða til að fjármagna flygilkaup.
Fleira ekki tekið fyrir,
fundi slitið kl. 18:30


