Gamla - Menningarmálanefnd

Fundargerð Menningamálanefndar 39

39. fundur

Fundur haldinn í menningarmálanefnd í Ráðhúsinu á Höfn, mánudaginn 19. ágúst 2002  kl. 16:00.

Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðlaug Hestnes, Ágústína Halldórsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig Gísli Sverrir Árnason og Inga Jóna Halldórsdóttir.

 

Gengið var til dagskrár og eftirtalið tekið fyrir :

 

1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir.

 

2. Vígsla Nýheima

Farið var yfir drög að dagskrá vígslunnar. Gísli fór yfir þær sýningar sem boðið verður upp á í tengslum við vígsluna.

 

3. Kaup á flygli

Gísli fór yfir forsendur þess að ráðist var í kaup á flygli í Nýheima, en gengið hefur verið frá kaupum á Estonia flygli að upphæð 3,7 milljónir.  Menningarmálanefnd samþykkir að verja 1 milljón (af 7 milljón kr. framlagi ríkisins til stofnbúnaðar kaupa) til kaupa á  flyglinum. Leitað verður til ýmissa aðila um aðkomu að fjármögnun hljóðfærisins.

 

4. Flutningur Menningarmiðstöðvar í nýtt húsnæði

Meðfylgjandi er greinargerð forstöðumanns til bæjarráðs dags. 25. júlí 2002

Svar bæjarráðs er að finna í fundargerð þess frá 8. ágúst

Gísli Sverrir fór yfir kostnað við flutning Menningarmiðstöðvar í Nýheima og aukinn rekstrarkostnað í nýju húsnæði.

Gísli fór yfir drög að þjónustusamningi milli FAS og Menningarmiðstöðvar.

Menningarmálanefnd telur eðlilegt að hefja rekstur safnsins í nýju húsnæði með óbreyttan fjölda starfsmanna. Í ljósi fenginnar reynslu verður þörfin síðan endurmetin og skoðuð sérstaklega við fjárhagsáætlunargerð fyrir 2003. Nefndin felur Gísla Sverri að vinna áfram að gerð þjónustusamnings við FAS sem byggist á  fyrirliggjandi drögum og umræðum á fundinum.

 

5. Opnunartími bókasafns í nýju húsnæði

Tillaga starfsfólks:

Mánudagar-fimmtudagar kl. 09:00-19:00

Föstudagar kl. 11:00-17:00

Laugardagar kl. 13:00-17:00

Menningarmálanefnd samþykkir ofangreindar tillögur að opnunartíma safnsins.

 

6. Erindisbréf nefndarinnar

Meðfylgjandi er tillaga frá bæjarráði

Menningarmálanefnd samþykkir með smávægilegum leiðréttingum fyrirliggjandi erindisbréf.

 

7. Farskóli safnmanna

Gísli Sverrir sagði frá Farskólanum og fór yfir dagskrá ráðstefnu á vegum hans sem haldin verður á Höfn 11 - 13. september n.k. Menningarmálanefnd er sammmála um að dagskrá ráðstefnunnar sé mjög áhugaverð og samþykkir að veita framlag kr. 30.000 til að bjóða ráðstefnugestum veitingar að kvöldi fyrsta ráðstefnudagsins.

 

8. Vinabær á Grænlandi?

Menningarmálanefnd leggur til að fulltrúum frá Sisimiut verði boðið til Hornafjarðar þegar þeir sækja Ísland heim 3 - 6. september n.k. og þá verði farið yfir hvort og þá hvernig vinabæjarsamskiptunum verði háttað.

 

9. Önnur mál

Þorbjörg spurði um aðsókn að Jöklasýningu. Gísli Sverrir sagði aðsóknina viðunandi en að átak þurfi að gera í markaðsmálum. Þorbjörg spurði einnig um hvað liði þjóðgarðsstofnun. Hermann sagði síðasta fund Vatnajökulsnefndarinnar hafa verið í síðustu viku hér á Höfn en lokaskýrsla nefndarinnar liggi ekki fyrir.

Menningarmálanefnd fagnar því framtaki sem Camp - Hornafjörður er en harmar það virðingarleysi sem fáeinir einstaklingar hafa sýnt aðstandendum hennar með skemmdarfíkn sinni.

Í lok fundarins er gert ráð fyrir að skoða hið nýja húsnæði í Nýheimum.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:10


Fundargerðir

Dag.grein
14.05.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 101
16.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 100
01.04.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 99
11.03.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 98
13.02.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 97
09.01.2008 Fundargerð menningarmálanefndar 96
12.12.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 95
14.11.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 94
10.10.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 93
05.09.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 92
09.05.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 91
11.04.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 90
19.03.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 89
24.02.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 88
24.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 87
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
10.01.2007 Fundargerð menningarmálanefndar 86
13.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 85
06.12.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 84
29.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 83
22.11.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 82
11.10.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 81
13.09.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 80
23.06.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 79
17.05.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 78
24.04.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 77
08.03.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 76
08.02.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 75
11.01.2006 Fundargerð menningarmálanefndar 74
07.12.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 73
09.11.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 72
10.10.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 71
14.09.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 70
25.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 69
11.05.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 68
12.04.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 67
09.03.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 66
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 64
09.02.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 65
17.01.2005 Fundargerð menningarmálanefndar 63
08.12.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 62
10.11.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 61
27.10.2004 Fundargerð menningarmálanefndar 60
15.09.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 59
23.06.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 58
12.05.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 57
14.04.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 56
16.03.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 55
11.02.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 54
14.01.2004 Fundargerð Menningarmálanefndar 53
10.12.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 52
15.10.2003 Fundargerð Menningarmálanefndar 50
10.09.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 49
14.05.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 48
09.04.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 47
19.03.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 46
12.02.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 45
22.01.2003 Fundargerð Menningamálanefndar 44
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 40
11.12.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 43
12.11.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 42
09.10.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 41
19.08.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 39
01.07.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 38
22.05.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 37
17.04.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 36
20.03.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 35
13.02.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 34
16.01.2002 Fundargerð Menningamálanefndar 33
12.04.0005 Fundargerð menningarmálanefndar 289
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica